Skessuhorn - 15.12.2021, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 202118
SK
ES
SU
HO
RN
2
02
1
Aðalskipulag Akraness 2021-2033
Kynning á drögum að endurskoðuðu aðalskipulagi.
Undanfarin ár hefur verið unnið að endurskoðun aðalskipulags
Akraness 2005-2017. Drög að endurskoðuðu skipulagi eru nú lögð
fram til kynningar í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Upplýsingabæklingi um meginatriði skipulagsdraganna hefur
verið dreift á Akranesi. Skipulagsuppdráttur og greinargerðir eru
aðgengilegar á vefsíðu bæjarins www.akranes.is
Kynningarfundur verður haldinn á netfundi í gegnum Teams
fimmtudaginn 16. desember n.k. klukkan 17:00. Tengill á fundinn
verður á vefsíðu Akraneskaupstaðar www.akranes.is/
skipulag-i-kynningu. Fundurinn verður tekinn upp og verður
aðgengilegur á heimasíðu og á Facebooksíðu kaupstaðarins. Kjörið
er að senda inn spurningar í streymi á meðan á fundi stendur.
Spurningar skulu lagðar fram undir nafni. Spurningum verður
svarað í lok kynningar.
Í drögum þessum eru kynnt viðfangsefni, sem ekki voru komin
á dagskrá þegar skipulagslýsing verkefnisins var kynnt haustið
2011. Þess vegna er óskað sérstaklega eftir ábendingum og
sjónarmiðum hagsmunaaðila og umsagnaraðila við nýja verkþætti
áður en gengið verður frá endanlegri tillögu til auglýsingar og
afgreiðslu.
Á kynningartíma til 30. desember verður hægt að senda inn
ábendingar í gegnum þjónustugátt Akraness á www.akranes.is
Að lokinni yfirferð ábendinga og umsagna frá íbúum, öðrum
hagsmunaaðilum og umsagnaraðilum mun skipulags- og
umhverfisráð ganga frá tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi
Akraness til bæjarstjórnar, sem síðan verður auglýst skv. 31. gr.
skipulagslaga. Þá mun gefast kostur á að leggja fram formlegar
athugasemdir.
Íbúar eru hvattir til að senda inn spurningar á meðan á fundi
stendur og ábendingar á kynningartíma.
FLUGELDASALA
Björgunarsveitin OK í Borgarfirði
Björgunarsveitin Ok í Borgarfirði verður með sölu
á flugeldum fyrir áramótin.
Salan fer fram í Bútæknihúsinu á Hvanneyri og
Þorsteinsbúð í Reykholti frá kl. 13-22 fimmtudaginn 30. desember
og á gamlársdag frá klukkan 11-15
Verðum einnig með til sölu Rótarskot sem er óhefðbundið umhverfisskot
til að fagna nýju ári og um leið að styrkja starf björgunarsveitanna.
Þökkum íbúum og öðrum velunnurum stuðninginn á liðnum árum.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
Skólablað Menntaskóla Borgar-
fjarðar, Egla, var gefið út í sjö-
unda skipti í dag og var ritstýrt að
þessu sinni af Elisabethu Ýr Mos-
bech Egilsdóttur. „Þetta var rosa-
leg upplifun. Ekki beint erfitt,
heldur virkilega krefjandi, á góð-
an hátt, og tók vel á á köflum,“ seg-
ir Elisabeth um vinnuna í kring-
um útgáfuna en þetta var í fyrsta
skipti sem hún tók að sér verkefni
af þessu tagi. Ásamt Elisabethu í
ritstjórn voru þær Eygló Sól Páls-
dóttir, Freyja Ebba Halldórsdótt-
ir, Þórunn Tinna Jóhannsdóttir og
Unnur Björg Ómarsdóttir og seg-
ir Elisabeth ritstjórnina hafa unnið
virkilega vel saman. „Allar tóku á sig
ábyrgð og allar komu með sniðugar
hugmyndir fyrir blaðið. Svo unn-
um við líka mjög vel saman,“ segir
Elisabeth stolt um ritstjórn Eglu en
allar eru þær nemendur í Mennta-
skóla Borgarfjarðar.
Vill helst vera með kúta
Bragi skólameistari Menntaskóla
Borgarfjarðar hafði samband við
Elisabethu á síðustu önn um hvort
hún væri ekki til í að taka slaginn
og koma sjöunda tölublaði Eglu af
stað, sem Elisabeth svo gerði. Hug-
myndavinna fór strax af stað í vor
og svo fór allt á fullt þegar skólinn
byrjaði að nýju í haust. „Það mætti
segja að ég hafi komið sjálfri
mér á óvart. Ég fór langt út fyr-
ir þægindarammann og náði virki-
lega að opna mig,“ segir Elisabeth
um reynsluna. „Ég á það nefnilega
til að stíga til baka og er ekki mikið
fyrir að hoppa ofan í djúpu laugina,
allavega ekki að fyrra bragði, ég vil
helst vera með kúta,“ bætir hún við
og hlær. „En oft er mér ýtt af stað
og svo fatta ég þegar ég er kom-
in eitthvað áleiðis,
hey, ég get alveg gert
þetta. Ég er góð í að
sýna frumkvæði, ég
er mjög ákveðin og
peppandi, svo rit-
stýru hlutverkið átti
vel við mig, svona
eftir á að hyggja,“
segir hún.
Það er í hlutverki
ritstjórnar Eglu að
fjármagna blað-
ið. Þær gera það
með því að selja
auglýsingar og er
Elisabeth þakklát hvað fyrirtæki
í héraðinu og víða tóku þeim vel.
„Fyrirtækin tóku vel í þetta hjá
okkur og voru tilbúin að styrkja
okkur í þessu skemmtilega verk-
efni. Án þeirra væri engin Egla,“
segir Elisabeth þakklát að lokum.
Eins og fyrr segir er skólablaðið
Egla gefið út í sjöunda skiptið og
er 42 blaðsíðna blað. Að þessu sinni
er það prentað út í 2.000 eintökum
sem er stærsta upplagið til þessa.
Blaðinu verður dreift um stór-
-Borgarfjarðarsvæðið auk þess sem
því verður dreift í alla 10. bekki á
Vesturlandi til að kynna Mennta-
skóla Borgarfjarðar.
glh
Forsíða Eglu. Hefðin frá upphafi er
að forsíðuna prýði ritstjórn hvers
tölublaðs og er forsíðan í ár engin
undantekning.
Nýtt tölublað Eglu komið út
Elisabeth Ýr Mosbech
Egilsdóttir, ritstýra 7.
tölublaðs Eglu sem
kom út í dag.
E G L A
Samvera
er besta
jólagjöfin
Fjölskyldan
saman um jólin