Skessuhorn - 15.12.2021, Blaðsíða 99
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021 99
Dagur í lífi...
Nafn: Stúfur Grýlu- og
Leppalúðason
Fjölskylduhagir/búseta: Ein-
stæður hellisbúi, bý með móð-
ur minni Grýlu og föður mínum
Leppalúða. Á tólf hrekkjótta bræð-
ur og einn snarvitlausan jólakött.
Starfsheiti/fyrirtæki: Sjálfstætt
starfandi jólasveinn.
Áhugamál: Syngja jólalög og gefa
krökkum í skóinn, svo finnst mér
rosalega gaman að stríða jólak-
ettinum.
Dagurinn: 13. desember 2021
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Ég sef lítið þessa dag-
ana, minnir að ég hafi vaknað síð-
ast klukkan 14:30, þann 11. des-
ember síðastliðinn. Mitt fyrsta
morgunverk var að veiða mús úr
hárinu á Grýlu, hugleiða og sækja
fötin mín og húfuna í hreinsun til
Þrifkrafts Skessusonar, nágranna
okkar.
Hvað borðaðirðu í morgun-
mat? Ég fæ mér alltaf hafragraut
í morgunmat sem útbúinn er úr
sérstökum tröllahöfrum.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Hreindýrasleðinn klikk-
ar ekki, lagði af stað rétt eftir
miðnætti í gærkvöldi.
Fyrstu verk í vinnunni? Fara yfir
skógjafirnar og sjá til þess að allt
sé klárt í pokann.
Hvað varstu að gera klukkan
10? Klukkan 10 er fyrsti kaffitími
dagsins, þá fæ ég mér rótsterk-
an expressó og borða piparkök-
ur með.
Hvað gerðirðu í hádeginu? Ég
er vanur því að borða hádegis-
mat á vinnustaðnum með bræðr-
um mínum. Það er allur gangur á
því hvað við borðum en við reyn-
um að halda okkur við það sem
úti frýs. Í dag voru það snjóbolta-
bollur og við drukkum fíflamjólk
með. Til þess að búa til notalega
stemningu kveiktum við bræðurn-
ir á nokkrum grýlukertum.
Hvað varstu að gera klukkan
14? Undirbúa sleðann fyrir bróð-
ir minn Þvörusleiki, við græj-
um alltaf sleðann svo hægt sé að
bruna af stað upp úr miðnætti. Ég
fór síðan heim, enda tek ég venju-
lega styttingu vinnuvikunnar út á
mánudögum.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni? Ég
var búinn að gefa í síðasta skóinn
um klukkan sex og þá fór ég aft-
ur á sleðann og brunaði upp í fjall
þar sem hellirinn okkar er stað-
settur.
Hvað gerðirðu eftir vinnu? Ég
æfði mig aðeins í steppdansi og
hjálpaði pabba að hengja upp síðu
nærbrækurnar sínar út á snúr-
ur. Pabbi á því miður bara ein-
ar nærbuxur, svo það er oft ansi
skrautlegur dagur þegar þær eru
í þvotti.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Það var tánaglasúpa í
kvöldmat, mamma eldaði. Við
borðum saman við matarborðið
en við þurftum að senda matinn
upp til pabba, það er þetta með
nærbuxurnar og þvottadaginn.
Hvernig var kvöldið? Kvöldið
var eðalfínt, við bræðurnir horfð-
um á uppáhalds jólamyndina okk-
ar, Love Actually. Við bræðurn-
ir erum mikið fyrir rómantískar
gamanmyndir en stundum skæl-
um svo mikið að það myndast
rakaskemmdir í hellinum. Það er
ekki á ástandið bætandi, enda höf-
um við verið að glíma við myglu-
vesen. En samkvæmt Grýlu er
ekkert að óttast, þetta séu að-
eins væg loftgæða vandamál.
Varla verra en prumpið úr honum
pabba okkar.
Hvenær fórstu að sofa? Ég hef
líklega sofnað klukkan hálfsjö um
morguninn.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að
hátta? Ég kom svo seint heim að
ég þurfti að læðast inn í rúmið til
að vekja ekki bræður mína. Þeir
Stekkjarstaur og Giljagaur eru
svo lúnir ennþá eftir sínar reisur
og mamma segir að ég megi alls
ekki vekja þá. Ég læddist því inn í
hellinn okkar og gaf Jólakettinum
smá harðfisk. Ég er að lesa svo
spennandi bók um ástir og örlög
jólaálfa á Norðurpólnum. Bókin
er partur af rauðu jólaseríunni og
ég fæ hreint ekki nóg af þeim.
Hvað stendur upp úr eft-
ir daginn? Það skemmtilegasta
sem ég geri er að gleðja börnin og
ég bíð allt árið eftir því að fá að
skottast um borg og bæ með gjaf-
ir í poka.
Eitthvað að lokum? Við bræð-
urnir viljum hvetja öll börn til að
njóta aðventunnar og reyna að
gera eins og eitt góðverk í desem-
ber og vera góð hvert við annað.
Jólasveins
Sendum öllum félagsmönnum og
fjölskyldum þeirra hugheilar óskir um
gleðilega hátíð og farsæld á komandi ári.
Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða.
Stjórn SDS
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
4
Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu
Sjóvá Akranesi, sími 440-2360
Sjóvá Borgarnesi, sími 440-2390
Óskum Vestlendingum og
landsmönnum öllum gleðilegra
jóla og farsældar á nýju ári.
Þökkum ánægjulegt samstarf
á árinu sem er að líða.
Kæru nemendur, foreldrar og starfsfólk
Grunnskólans í Borgarnesi
Sendum ykkur okkar bestu jóla- og
nýárskveðjur með þökk fyrir ánægjulegt
samstarf á árinu sem er að líða
Skólastjórnendur
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
9
Sólbakka 8 • Borgarnesi • ejiehf@simnet.is
Eiríkur 894 5151 • Ingólfur 892 8610
Óska starfsmönnum mínum og viðskiptavinum
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Þakka samskiptin á árinu sem er að líða.
Eiríkur Ingólfsson
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4