Skessuhorn - 15.12.2021, Blaðsíða 63
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021 63
Það var kátt hjá vatnsleikfimigörp-
um í sundlauginni í Borgarnesi í
síðustu viku þegar Íris Grönfeldt,
íþróttafræðingur og vatnsleikfimis-
leiðbeinandi, mætti með hangikjöt
á sundlaugarbakkann að loknum
leikfimitímanum. Um er að ræða
jólahefð til tveggja áratuga. „Þetta
byrjaði í kringum 2001 þegar af ein-
hverjum ástæðum mér dettur í hug
að koma með smakk af hálfu hangi-
kjötslæri fyrir fólkið í vatnsleikfim-
inni og ég fer með fyrsta hangikjöt-
ið frá Brekku niður í íþróttahús,“
rifjar Íris Gönfeldt upp. „Hangi-
kjötið er heimareykt af Þórhildi og
Elvari á Brekku en þar er löng hefð
fyrir að reykja sitt eigið kjöt. Þau
tóku við keflinu af foreldrum Þór-
hildar, þeim Önnu og Þorsteini, og
hafa haldið hefðinni á lofti. Þetta er
náttúrulega allt annað en það sem
þú færð út í búð. Þetta er alvöru
hangikjöt hjá þeim Elvari og Þór-
hildi,“ bætir Íris stolt við. „Af því
ég fékk alltaf fyrsta hangikjötið úr
framleiðslunni hjá þeim, þá átti ég
alltaf að láta þau Elvar og Þórhildi
vita hvernig smakkaðist, og hvort
kjötið væri ekki alveg rautt í gegn.“
Einn veturinn kom Íris með heilt
læri sem var ætlað öllum sundgörp-
unum, bæði konum og körlum.
„Lærið kláraðist af kvennahópn-
um og karlarnir fengu ekki neitt
það árið. Síðan þá hef ég alltaf tek-
ið með mér tvö læri. Uppsetningin
er afar einföld hjá okkur, eingöngu
hangikjöt, jólaöl, kaffi og konfekt,“
segir Íris.
Hörku æfingar í vatni
Íris byrjaði með vatnsleikfimina
þegar hún flutti heim frá Bandaríkj-
unum árið 1987 og hefur verið að
bjóða Borgnesingum og nærsveit-
ungum upp á þessa alhliða heilsu-
rækt síðan. „Það hefur alltaf verið
mjög góð aðsókn og góð endurnýj-
un yfir árin í vatnsleikfiminni. Fólk
heldur oft að þetta sé bara fyrir ein-
hverja eldri borgara, en þetta eru
alvöru þrekæfingar í vatni og eru
fyrir alla ef út í það er farið,“ út-
skýrir Íris sem segir jafnframt að af-
reksíþróttafólk geri mikið af þolæf-
ingum í vatni til að minnka álag á
fótleggina. „Æfingarnar eru bæði
fyrir þol og aukinn styrk og í raun
er hægt að útfæra allar þrekæfingar
úr líkamsræktarsal yfir í vatn,“ bæt-
ir hún við.
Góður hópur stundar vatnsleik-
fimi hjá Írisi þetta tímabil, eða 23
konur og 13 karlar. Tímabilið var-
ir frá 1. september ár hvert fram að
31. maí, alla þriðjudaga og fimmtu-
daga eða sex tíma samtals á viku.
„Við erum yfirleitt í innilauginni.
En ég þurfti að bæta við útitíma
þegar Covid skall á í fyrra vegna
þess hversu margar konurnar voru
og til að tryggja hæfilega fjarlægð
á milli iðkenda. Útitíminn er gíf-
urlega vinsæll og hefur haldist síð-
an þá. Við förum út í öllum veðr-
um, hagléli eða roki, skiptir engu
máli. Ég skelli mér bara í gallann,
set dúndrandi góða tónlist í há-
talara kerfið og við tökum hörku
útiæfingu í sundlauginni,“ segir Íris
kát að endingu.
glh
Hangikjötsveisla á sundlaugarbakkanum í Borgarnesi
Kátar konur á sundlaugarbakka. Íris Grönfeldt, íþróttafræðingur og sundleikfimikennari.
Baldur Jónsson bíður þolinmóður eftir að menn setjist við borð.
Hangikjöt frá Þórhildi og Elfari á Brekku í Norðurárdal.
Kátir karlar.
Reykkofinn á Brekku.