Skessuhorn - 15.12.2021, Side 22
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 202122
Fæst hjá N1, OLÍS,
veiðibúðum og veidikortid.is
Frelsi til
að veiða!
Ertu búinn að fá
þér Veiðikortið?
8.900 kr
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Grundarfjarðarbær og Starfs-
mannafélag Slökkviliðs Grundar-
fjarðar eru þessa dagana að ýta
úr vör átaksverkefni um bættar
eldvarnir með Félagi eldri borg-
ara í Grundarfirði. Verkefnið er
sett þannig upp að Starfsmanna-
félag Slökkviliðs Grundarfjarð-
ar býður eldri íbúum bæjarins að
endurnýja reykskynjara á heimil-
um þeirra. Reykskynjararnir eru
gjöf frá starfsmannafélaginu og
verða settir upp þeim að kostnaðar-
lausu. Grundarfjarðarbær leggur til
vinnu slökkviliðsmann við uppsetn-
ingu og útskiptingu á reykskynjur-
um á heimilum eldri borgaranna.
Einnig mun Grundarfjarðarbær og
Slökkviliðið bjóða upp á almenna
eldvarnarfræðslu og kennslu í notk-
un slökkvitækja og eldvarnarteppa.
Félag eldri borgara mun kynna
þetta verkefni fyrir félagsmönnum
sínum á fundi þann 22. desember
næstkomandi og eftir það verður
tekið á móti pöntunum. Grundar-
fjarðarbær hefur verið að leggja
aukna áherslu á forvarnir og er
þetta verkefni hluti af því. Starfs-
mannafélag slökkviliðsins hefur
undanfarin ár staðið fyrir sölu á
dagatali þar sem ágóðinn er nýttur
til góðra verka eins og þetta verk-
efni er.
tfk
Jólaútvarp Grunnskóla Snæfells-
bæjar hóf útsendingar á mánu-
dagsmorgun klukkan 9:00. Er
þetta í sjötta sinn sem nemendur
GSNB standa fyrir útvarpi með
dyggri aðstoð kennara. Dagskrá-
in er metnaðarfull og fjölbreytt
eins og alltaf. Mikil vinna ligg-
ur á bak við svona útsendingar og
hafa nemendur unnið að þátta-
gerð í nokkrar vikur. Þættirn-
ir hjá yngri nemendum eru tekn-
ir upp fyrir fram en nemendur á
unglingastigi eru með sína þætti
í beinni útsendingu og fá með-
al annars gesti í viðtöl. Nemenda-
ráð heldur utan um auglýsinga-
málin, bjóða fyrirtækjum að aug-
lýsa, semja texta og taka upp. Ljós-
myndari kíkti í Stúdíó skólans á
fyrsta degi útsendingar og smellti
mynd af tæknimönnum ásamt ein-
um af þáttastjórnendunum Magn-
úsi Guðna Emanúelssyni í 9. bekk
rétt áður en Magnús fór í loftið.
þa
Það lá vel á strákunum hjá Bílaað-
stoð og flutningum ehf. í Ólafs-
vík á mánudagsmorgun þegar ljós-
myndari Skessuhorns var þar á
ferðinni. Starfsmenn voru að fara
að umfelga dráttarvéladekk í stærra
lagi þegar Einar Magnús Gunn-
laugsson, starfsmaður fyrirtækis-
ins og markmannsþjálfari Víkings,
vildi endilega máta sig inn í dekk-
ið. Skemmst er frá því að segja að
hann smellpassaði. Annar starfs-
maður gantaðist við ljósmyndar-
ann, að miðað við stærð Einars
gætu lesendur Skessuhorns haldið
að þarna væri um að ræða dekk
undan hjólbörum!
af
Einar smellpassaði í
stórt dráttarvéladekk.
Mátaði sig inn í dekk
Félag eldri borgara og starfsmanna-
félag slökkviliðsins í samstarf
F.v. Guðmundur Reynisson varðstjóri, Ragnheiður Sigurðardóttir formaður Félags
eldri borgara og Valgeir Magnússon slökkviliðsstjóri.
Jólaútvarp GSNB í
loftinu þessa vikuna
Gaman saman
um áramótin
Fjölskyldan saman
18 ár a ábyrgð