Skessuhorn - 15.12.2021, Page 34
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 202134
Fréttaannáll ársins 2021 í máli og myndum
væri talin sterk í kjördæminu og þingsæti svo gott sem öruggt.
Nokkrir sóttust eftir því að leiða listann í kjördæminu en eftir
prófkjör var ljóst að Stefán Vagn Stefánsson myndi taka odd-
vitasætið. Hart var barist um oddvitasæti Sjálfstæðisflokks-
ins í kjördæminu en Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir,
varaformaður flokksins, og Haraldur Benediktsson, þáverandi
oddviti í Norðvesturkjördæmi, sóttust bæði eftir því að leiða
listann. Svo fór að Þórdís Kolbrún sigraði í prófkjörinu og
Haraldur færðist niður í 2. sæti. Snemma á árinu var ljóst að
Magnús D. Norðdahl myndi leiða lista Pírata í kjördæminu
og að Guðmundur Gunnarsson yrði efstur á lista Viðreisn-
ar. Bjarni Jónsson hafði betur gegn Lilju Rafneyju Magnús-
dóttur í forvali VG. Valgarður Lyngdal Jónsson tók fyrsta sæti
á lista Samfylkingarinnar eftir að Guðjón Brjánsson, fyrrum
þingmaður, gaf ekki kost á sér að nýju. Bergþór Ólason var
áfram efsti maður á lista Miðflokksins, Eyjólfur Ármannsson
var efstur á lista Flokks fólksins, Helga Thorberg tók odd-
vitasæti Sósíalistaflokksins í kjördæminu og Sigurlaug Gísla-
dóttir leiddi lista Frjálslynda Lýðræðisflokksins.
Vertíðarstemning
Vertíðarstemning var í höfnum Snæfellsbæjar í byrjun árs
þegar vetrarvertíðin var komin á fullt og afli báta góður. Þá
var líka líf og fjör á höfninni í Grundarfirði fyrsta mánuð
ársins en þá var aflinn rúmlega helmingi meiri en hafði kom-
ið á land í sama mánuði árið áður. Einnig voru mjög góð afla-
brögð hjá bátum sem gera út frá Akranesi í byrjun árs og sagði
Eymar Einarsson skipstjóri að þorsk væri að finna um allan sjó
auk þess sem hann væri vænn. Veðrið setti aðeins strik í reikn-
inginn hjá sjómönnum í haust en það kom ekki að sök því
þegar viðraði veiddist mjög vel. Landaður afli í Grundarfirði
í október var 2.100 tonn sem var helmingsaukning frá sama
mánuði á síðasta ári. Þá var afli nóvembermánaðar einnig
töluvert meiri en í nóvember árið áður.
Leikskólinn Hnoðraból
í nýtt húsnæði
Leikskólinn Hnoðraból var formlega opnaður í nýju hús-
næði á Kleppjárnsreykjum í byrjun árs. Forsvarsmenn Borg-
arbyggðar kíktu í heimsókn og færðu starfsfólki og nem-
endum rósir í tilefni þess að starfsemin væri alfarið flutt frá
Grímsstöðum þar sem skólinn hafði verið rekinn í þrjá ára-
tugi. Sungið var fyrir gesti, blóm afhent og starfsmenn leik-
skólans fengu köku með kærri kveðju frá Borgarbyggð. Var
starfsmönnum þakkað sérstaklega fyrir ómælda þolinmæði og
sveigjanleika í gegnum þessar breytingar á húsakosti og starf-
semi skólans.
Rakavandamál í ráðhúsum
Á árinu komu upp raka- og
mygluvandamál í Ráðhúsi Borg-
arbyggðar við Borgarbraut 14 í
Borgarnesi og á bæjarskrifstof-
um Akraneskaupstaðar við Still-
holt á Akranesi. Í Borgarnesi var
tekin sú ákvörðun að festa kaup
á nýju Ráðhúsi og keypti sveitar-
félagið húsnæði Arion banka við
Digranesgötu 2. Í september fékk
Borgarbyggð loks afhent húsnæð-
ið og hófst strax vinna við að inn-
rétta það fyrir starfsemi Ráðhússins. Á Akranesi var brugð-
ist við vandamálinu með því að flytja starfsemi bæjarskrifstof-
unnar í tímabundið húsnæði við Dalbraut 4 nú í lok sumars.
Brákarhlíð 50 ára
Í lok janúar voru 50 ár frá vígslu Dvalarheimilis aldraðra í
Borgarnesi, nú Brákarhlíð. Ekki var hægt að hafa stór hátíðar-
höld í tilefni þessa merka áfanga í ljósi Covid-19 í kringum
afmælið.
Hinsegin Vesturland stofnað
Systurnar Guðrún St. og Bjargey Anna Guðbrandsdætur
stofnuðu félagið Hinsegin Vesturland í byrjun árs. Hinseg-
inhátíð Vesturlands var svo haldin í fyrsta skipti í Borgarnesi
í júlí. Hátíðin var gríðarlega vel sótt og margir sem skreyttu
sig regnbogalitum ýmist í klæðum, höfuðbúnaði eða andlits-
málningu, eða veifuðu fánunum litríku auk þess sem íbúar
voru búnir að skreyta bæinn í öllum regnbogans litum. Fjöl-
menni tók þátt í skrúðgöngunni á hátíðinni sem endaði með
skemmtidagskrá í Dalhallanum. Gert er ráð fyrir að Hinseg-
inhátíð Vesturlands muni flakka um landshlutann næstu sum-
ur.
Heilbrigðisstarfsmenn voru
Skagamenn ársins
Þorrablót Skagamanna var haldið í janúarlok og var það í um-
sjón árgangs 1979 að þessu sinni, en Club 71 hafði séð um
blótið frá upphafi. Vegna faraldursins var blótinu streymt
í beinni útsendingu frá Bárunni Brugghúsi. ÍATV sá um
myndatöku og útsendingu þorrablótsins til Skagamanna hvar
sem þeir voru staddir í heiminum. Sævar Freyr Þráinsson,
bæjarstjóri, kynnti Skagamenn ársins sem voru að þessu sinni
heilbrigðisstarfsmenn.
Hönnunarverðlaun Íslands
fyrir Dranga
Arkitektastofan Studio Granda hlaut Hönnunarverðlaun Ís-
lands 2020 fyrir hönnun Dranga á Skógarströnd á Snæfells-
nesi. Á bænum hefur eldri útihúsum verið breytt í gistiheimili
þaðan sem ægifagurt útsýni er yfir Breiðafjörð. Í rökstuðningi
dómnefndar segir að Drangar séu metnaðarfullt hönnunar-
verkefni og afar vel heppnuð birtingarmynd aðkallandi við-
fangsefnis arkitekta í nútíma samhengi, endurhugsun og
endurnýting gamalla bygginga.
Öflugt kraftlyftingafólk
Kristín Þórhallsdóttir kraftlyftingakona átti gott ár. Hún sigr-
aði í kvennaflokki og var stigahæsti keppandinn í klassískum
kraftlyftingum á Reykjavíkurleikunum sem fram fóru í lok jan-
úar. Á Íslandsmeistaramótinu í kraftlyftingum og klassískum
kraftlyftingum í júní varð hún einnig stigahæst í flokki kvenna
í klassískum kraftlyftingum auk þess sem hún varð Íslands-
meistari í -84 kg flokki kvenna. Að lokum gerði hún sér lítið
fyrir og nældi í bronsverðlaun á HM í klassískum kraftlyfting-
um í Halmstad í október, um leið og hún setti ný Íslandsmet
og jafnaði Evrópumetið. Fleiri Vestlendingar áttu einnig gott
ár í kraftlyftingum. Sylvía Ósk Rodriguez var önnur í flokki
-84 kg kvenna á Íslandsmeistaramótinu og Einar Örn Guðna-
son var á sama móti stigahæstur í karlaflokki í kraftlyftingum
með búnaði auk þess sem hann varð Íslandsmeistari í -120 kg
flokki karla. Helgi Arnar Jónsson gerði einnig góða hluti á
þessu móti og varð stigahæsti unglingurinn í klassískum kraft-
lyftingum og Íslandsmeistari í -83 kg U23 flokki karla. Borg-
nesingurinn Alexandrea Rán Guðnýjardóttir stóð sig heldur
betur vel á árinu. Á Heimsmeistaramóti unglinga í klassískri
bekkpressu sem fram fór í Vilníus í Litháen nú í byrjun vetr-
ar gerði hún sér lítið fyrir og nældi í silfrið í -63 kg flokki. Þá
varð hún Norðurlandameistari í klassískri bekkpressu á árinu
auk þess sem hún bætti Íslandsmet unglinga.
Starfsemi lokað í Brákarey
Húsnæði Öldunnar, vinnu- og hæfingarstaðar í Brákar-
ey í Borgarnesi, var lokað í byrjun febrúar í ljósi alvarlegra
athugasemda eldvarnaeftirlits. Í kjölfarið var allri starfsemi í
húsnæði Borgarbyggðar við Brákarbraut 25-27 í Brákarey gert
að flytja úr húsinu með stuttum fyrirvara. Húsnæðið hafði um
árabil verið í notkun ýmissa félaga og klúbba auk þess sem
nokkur fyrirtæki höfðu þar starfsemi. Alls voru 14 rekstrar-
aðilar með aðstöðu í húsunum í febrúar. Verkís vann kostnað-
armat á lagfæringum á húsunum og var niðurstaðan sú að það
myndi kosta 654 milljónir að koma húsunum í nothæft ástand.
Í yfirlýsingu sem Borgarbyggð birti í nóvember vegna málsins
er sagt að forsvarsmenn sveitarfélagsins telji óraunhæft að fara
í slíkt viðhald og óskuðu eftir viðræðum við félagasamtök um
uppbyggingu starfsemi þeirra í öðrum húsum.
Hvernig á að vera klassa drusla
Í byrjun febrúar var kvikmyndin „Hvernig á að vera klassa
drusla“ frumsýnd og varð söluhæsta mynd helgarinnar.
Myndin var tekin upp í Hvalfirði og á Akranesi en leikstjóri
og handritshöfundur er Ólöf Birna Torfadóttir á Akranesi, en