Skessuhorn - 15.12.2021, Síða 40
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 202140
Fréttaannáll ársins 2021 í máli og myndum
Bragi Þór Dalamaður ársins
Bragi Þór Gíslason var valinn Dalamaður ársins á Jörvagleði
sem haldin var í Dölum snemma í vor. Hann hlaut yfirburða
fjölda tilnefninga og er Bragi Þór sagður vera bjartsýnn, dug-
legur, hugmyndaríkur og góð fyrirmynd fyrir unga fólkið auk
þess sem hann er sagður leggja sig fram við að þjónusta fólk
með gleði og létta lund.
Gott strandveiðitímabil
Strandveiðarnar hófust í blíðskaparveðri í byrjun maímánað-
ar eins og sjá má á meðfylgjandi mynd sem Gunnhildur Lind
Hansdóttir tók á Arnarstapa daginn sem veiðarnar hófust.
Aflaheimildir til strandveiða voru auknar um samtals 1.171
tonn af þorski þegar leið á sumarið en með þeirri aukningu
varð heildarmagn á þorski á strandveiðum 11.171 tonn eða
12.271 tonn af óslægðum botnfiski. Gengu veiðarnar almennt
mjög vel.
Kisi fannst eftir átta ár á flækingi
Mikil gleði var þegar köttur
fannst á Akranesi í síðast-
liðið vor en kisi átti upphaf-
lega heimili í Reykjavík og
hafði verið á flækingi í átta
ár. Kötturinn var að verða
tólf ára þegar hann fannst
svo hann hafði verið týndur
meirihluta ævi sinnar. Eig-
andi hans trúði vart sínum
eigin eyrum þegar hann fékk
símtalið um að kisi væri fund-
inn og urðu miklir fagnaðar-
fundir þegar eigandi og kisi
voru sameinaðir á ný.
Fólk lét sig vaða í Akraneshöfn
Líklegt er að Íslandsmet hafi verið sett í bryggjustökki í upp-
hafi maímánaðar þegar 177 manns stukku í Akraneshöfn.
Um var að ræða söfnun fyrir Sveinbjörn Reyr Hjaltason, eða
Svenna eins og hann er alltaf kallaður. Svenni slasaðist alvar-
lega á síðasta ári þegar hann var við akstur í mótorkrossbraut-
inni á Akranesi en safnað var fyrir sérsmíðuðu handknúnu
reiðhjóli fyrir Svenna. Alls söfnuðust 8.102.000 krónur sem
dugðu vel rúmlega fyrir kaupum á hjólinu.
Vorið var þurrt
Vorið var þurrt og lýst var yfir hættustigi almannavarna í maí
vegna hættu á gróðureldum. Sett var bann við meðferð opins
elds á vissum svæðum vegna þurrkatíðar en við slíkar aðstæð-
ur getur mikil eldhætta skapast af litlum neista. En á Vestur-
landi eru mörg sumarhúsasvæði þar sem gróður liggur þétt að
húsum og á sumum þessara svæða eru undankomuleiðir ekki
margar. Landsmenn tóku aðstæðunum almennt vel og gættu
sín og sem betur fer urðu ekki gróðureldar. Vegagerðin hóf
vinnu í sumar við að styrkja flóttaleið austur úr Skorradal með
styrkingu gamals línuvegar sem þar er.
Tvö ár frá því Fjöliðjan brann
Í maí voru tvö ár frá bruna sem varð í húsnæði Fjöliðjunnar á
Akranesi. Var starfsemi vinnustaðarins þá komið fyrir í bráða-
birgðahúsnæði í Akurshúsinu við Smiðjuvelli þar sem hún er
enn í dag. Aðstaðan er góð svo langt sem hún nær, að sögn
starfsfólks, en engan veginn hentug fyrir mismunandi þarfir
starfsfólksins. Hópur starfsfólks Fjöliðjunnar á Akranesi gekk
frá Smiðjuvöllum að Dalbraut, þar sem Fjöliðjan var, í þeim
tilgangi að minna á þá brýnu þörf sem er fyrir úrbætur á hús-
næðismálum vinnustaðarins. Í nóvember var svo byrjað að rífa
innan úr húsi Fjöliðjunnar við Dalbraut, um tveimur og hálfu
ári eftir brunann. Hönnun á nýju húsi gerir ráð fyrir að nýta
útveggi og þak hússins sem brann auk þess sem byggja á við
núverandi hús.
Árnasetur var opnað
Skrifstofu- og nýsköpunarsetur var opnað að Aðalgötu 10 í
Stykkishólmi í maímánuði. Hlaut það nafnið Árnasetur til
minningar um Árna Helgason sem vann á árum sínum mikið
frumkvöðlastarf Stykkishólmsbæ til heilla. Markmið setursins
er að auðvelda frumkvöðlastarf og tækifæri til fjarvinnu, óháð
aðsetri vinnuveitanda, og stuðla að því að fjölga íbúum Stykk-
ishólms.
Hopp á Akranesi
Deilileiga fyrir rafskútur á Akranesi undir merkjum Hopp var
opnuð á Akranesi í maí. En þessar rafskútur eru þær sömu og
hafa þeyst um götur Reykjavíkur undanfarin misseri. Um er
að ræða þjónustu þar sem hægt er að leigja rafskútur innan
ákveðins þjónustusvæðis og skilja þær eftir á endastöð þar sem
næsti leigjandi getur nálgast þær.
Kýr bar þremur kálfum
Á bænum Miðskógi í Dölum bar kýrin Mjöll þremur lifandi
kálfum í byrjun sumars; tveimur nautum og einni kvígu. Afar
fátítt er að kýr beri þremur kálfum og nánast einsdæmi að
þeir hafi þá allir lifað, eins og í tilfelli kálfanna hennar Mjall-
ar frá Miðskógi.
Krummar komust á
legg á lögreglustöðinni
Hrafnspar gerði sér í vor laup á austurgafli hússins við Þjóð-
braut 13 sem hýsir lögreglustöðina á Akranesi, og komu þar
upp þremur ungum. Má því segja að þessir hrafnar hafi alist
upp undir eftirliti lögreglu.
Hlupu 100 mílur
Í byrjun júní fór fram keppni í utanvegahlaupinu Hengill
Ultra í Hveragerði og nágrenni. Ragnheiður Sveinbjörns-
dóttir frá Hvanneyri varð fyrsta konan til að hlaupa í mark í
100 mílna hlaupi, sem eru rúmlega 160 km. Þá var Dalamað-
urinn Jósep Magnússon annar í mark í hópi karla í 100 mílna
hlaupinu.
Gleði í Auðarskóla
Mikil gleði var í Búðardal þegar Auðarskóla var slitið og
börnin héldu af stað út í sumarið. Boðið var upp á ýmis-
legt skemmtilegt fyrir börnin og kepptu útskriftarnemar við
starfsfólk í vítaspyrnukeppni en úrslit úr þeirri keppni voru
ekki gefin upp.