Skessuhorn - 15.12.2021, Side 48
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 202148
Kveðjur úr héraði
Jólakveðja úr Borgarnesi
Allir dagar
eru hátíðardagar
Sunnudagur og annar í að-
ventu, rok og rigning og sannkall-
að inniveður. Nonni minn búinn að
kveikja upp í kamínunni og ég að
gera playlista fyrir spinning þegar
yndislega Gunnhildur Lind hr-
ingir og spyr hvort ég væri til í að
skrifa smá pistil í jólablað Skessu-
horns. Þar sem ég á alltaf erfitt með
að segja nei, sagði ég auðvitað já og
minningarnar fóru að flæða en um
leið kom hnútur í magann, hvað á
ég að skrifa um?
Það er margs að minnast þegar
maður hefur verið svo lánsamur
að lifa 59 jól með þessum komandi
með. Búin að lifa allskonar jól eins
og við flest, yndisleg jól, veikinda
jól, erfið jól, saknaðar jól og allt þar
á milli, en við ætlum að hafa þetta
skemmtilegt og einlægt og ég er að
spá í að stikla á stóru og fara út um
víðan völl.
Ein minning frá æsku minni á ég
um ömmu mína Gunnu Dan, sem
var langt á undan sinni samtíð í svo
mörgu, hún var að taka upp jóla-
tréð, taka upp segi ég því að hún
geymdi jólatréð í svona stórri tré-
tunnu með loki fullskreytt með
englahárinu og öllu á, ekkert vesen,
bara að stinga í samband.
Það var svo gaman þegar maður
varð mamma og börnin voru komin
á þann aldur að trúa á jólasveininn.
Ég lagði mikið á mig við að setja í
skóinn, setti stiga úti við gluggana
þeirra, borðaði kökurnar sem þau
settu á disk fyrir sveinana og svar-
aði bréfunum sem þau sendu þeim
(þau bréf á ég mörg enn). Ég gerði
spor í snjóinn og vaknaði samvisku-
samlega eldsnemma til að setja eitt-
hvað sniðugt í skóinn. Svo kom að
því að börnin uxu úr grasi og kom
að einum jólunum þar sem sonur-
inn var orðinn pínu efins í trúnni,
og þá kom skellurinn; „mamma, þið
eruð búin að ljúga að mér öll þessu
ár, það er enginn jólasveinn til.“ Og
úff, þá láku nú tár hjá mömmunni
en minningin samt skondin.
Ein minning sem snart mig djúpt
voru fyrstu jól foreldra minna á
Brákarhlíð (blessuð sé minning
þeirra). Ég borðaði með þeim og
því yndislega fólki sem þar var á
aðfangadagskvöld, það var svo há-
tíðleg stund svo mikill friður og ró.
Þessi stund með foreldrunum er of-
arlega í minningabankanum.
Nú á seinni árum þá eiga barna-
börnin hug minn allan og gaman
að fá að upplifa jólin með þeim. Ég
mundi segja að ég væri mikið jóla-
barn, skreyti mikið og baka, en það
er ekkert stress (núna seinni árin).
Ég er alveg sultuslök og hef lært
það í áranna rás að það eru litlu
hlutirnir sem skipta máli en ekki
hvort þetta eða hitt sé klárt.
Í dag eru allir dagar hátíðardagar
í mínum huga þegar árin fara að
hellast yfir mann þá hugsar maður
öðruvísi en þegar maður var ung-
ur. Ég er svo þakklát fyrir mig og
mína, fyrir að geta farið alla virka
daga í íþróttahúsið að rækta lík-
ama og sál og ekki síst fyrir að fá að
vera með spinn- og þrektíma með
yndislegu fólki. Gott fólk, aldur
er nefnilega afstæður, bara tala á
blaði.
Ég myndi segja að ég væri mjög
trúuð, bið bænirnar mínar á hverju
kvöldi, þakka fyrir og bið fyrir öll-
um. Finnst svo skrítið að 2022 sé
handan við hornið en enn geisa
stríð í heiminum, hungursneyð og
fólk að fara illa með aðra og einelti
enn við líði. Sýnum náungakær-
leika og látum okkur málið varða,
saman getum við meira.
Að lokum óska ég ykkur öllum
lesendur góðir gleðilegra jóla og
að nýja árið leggist vel í alla. Mun-
um að njóta litlu hlutanna í lífinu
í botn og frestum engum gleði-
stundum þar til síðar, eða á morgun
eða hinn eða á næsta ári eða...
Njótum hvers dags í botn og
reynum að sjá alltaf allt það já-
kvæða og góða sem lífið hefur upp
á að bjóða.
Langar að enda með einni fal-
legri vísu sem hún móðir mín orti
til okkar Jóns þegar við giftum
okkur árið sautján hundruð og súr-
kál, með von um að árið 2022 verði
okkur öllum gjöfult og gott.
Í birtu vorsins batnar hagur,
bestu óskir færum við.
Að allur ykkar ævidagur
eigi skylt við sólskinið.
óí
Kær jólakveðja,
Guðrún Dan
Jólakveðja úr Skorradal
„Jólin eru okkar“
Mér finnst tilvalið að vitna í texta
úr nýja uppáhalds jólalaginu mínu.
„Jólin eru kertaljós og knús. Jólin
eru máðar minningar sem mildi-
lega fegra allt sem var.“ Þessi texti
sem Valdimar og Bríet syngja er
einmitt það sem jólin eiga að vera.
Ég er mjög mikið jólabarn eða
meira kannski bara vetrarbarn. Vet-
urinn er uppáhalds tíminn minn og
finnst mér ekkert dásamlegra en
fallegir vetrardagar, með alls konar
bleikum himnum, stjörnum, norð-
urljósum og auðvitað helst allt fullt
af snjó. En jólin eru samt toppur-
inn, með öllum minningunum úr
barnæskunni. Eina sem mér finnst
ekkert spes er þegar ég rifja upp
fylgifisk jólanna, Þorláksmessuna,
en ég hef mínar ástæður fyrir því.
Lyktin sem sumir verða að upplifa
er ég mjög fegin að vera nokkurn
veginn laus við. Laufabrauðið sem
við höfum alltaf gert fyrir jólin svo
lengi sem ég man er það sem kom
öllu í gang. Það er samt svo skrýtið
að það var auðvitað spenna að bíða
eftir aðfangadegi og öllum pökkun-
um en það var ekki það sem ég beið
óþreyjufull eftir. Það sem stóð upp
úr var jóladagur. Jóladagur hjá Ingu
ömmu, það eru örugglega einhverj-
ir sem vita vel hver hún var. Hún
var eitt það allra besta í lífinu og að
hitta alla hennar afkomendur var
alveg svakalega gaman. En hún átti
einn afkomanda sem ég beið eft-
ir að hitta hver jól. Það var frænka
mín, mikilvægasta manneskjan í
lífi mínu þá. Hún bjó nefnilega
erlendis og var ekki alltaf heima
um jólin. Þegar hún var heima þá
var það allra besta við jólin að fá
að hitta hana og verja tíma með
henni. Pakkarnir voru aukaatriði.
Á jóladag spiluðum við alltaf Púkk,
sem er peningaspil, spilað með aur-
um sem amma safnaði og gengur
aðallega út á það að hafa sem mest
læti. Það er nefnilega svo merkilegt
að ég man sáralítið eftir öllum gjöf-
unum og þess háttar. Það eru sam-
verustundirnar og fólkið sem lýsti
upp jólin sem eru mér efst í huga.
Ég er náttúrulega mikil félagsvera
og finnst frábært að eiga þessa risa-
stóru fjölskyldu til að njóta lífsins
með, sérstaklega jólanna.
Þegar maður eldist og eignast
sjálfur fjölskyldu þá breytist margt
í tengslum við jólin. Ég er svo
heppin að búa með unnusta mín-
um honum Tryggva Val og eigum
við saman þau Val Snæ, Hlyn Blæ
og Guðrúnu Ástu. Börnin mín fá
líka að alast upp við laufabrauðs-
gerðina, Púkkið og margt fleira síð-
an ég var lítil, en við höfum einnig
búið til ýmsar skemmtilegar hefðir.
Jólahátíðin byrjar dálítið snemma
hjá okkur, eða fyrir aðventu. Við
förum nefnilega ekki og sækjum
okkur jólatré heldur flytjum við
jólatré úr Skorradalnum, hvort á
sínum trailernum, um víðan völl
sem standa hingað og þangað fal-
lega skreytt á torgum eða við fyr-
irtæki. Þetta er ótrúlega skemmti-
legt verkefni og gaman að koma að
og stundum koma strákarnir okkar
með í þetta ferðalag.
Valur Snær er fæddur 22. desem-
ber. Hann fær alltaf að velja hvað
við gerum á afmælisdaginn. Ef veð-
ur leyfir þá er stefnan alltaf tek-
in hjá honum eitthvert upp á fjöll.
Það er líklega ekki tilviljun að hann
heitir Snær því líf hans og yndi er
snjórinn. Allt þaulskipulagt hjá
okkur. Um kvöldið á afmælinu hans
setjum við alltaf upp jólatréð og
skreytum saman. Á Þorláksmessu
förum við í kirkjugarða og kveikj-
um á kerti hjá fólkinu okkar sem er
farið og við söknum svo mikið. Svo
á aðfangadag reynum við að gera
sem minnst fyrir utan að elda góð-
an mat, eða ég geri allavega mitt
besta í því. En yfir jólahátíðina höf-
um við verið að velja okkur þáttar-
aðir sem við horfum oft á, en okkar
uppáhalds er Nonni og Manni.
Málið er nefnilega að jólin snú-
ast fyrst og fremst um samveruna
og að njóta stundarinnar. Ég viður-
kenni að ég gleymi mér stundum
í stressinu sem fylgir aðventunni.
Ef hægt er að gera hlutina þannig
á aðventunni að börnunum líði vel,
þá er nokkuð öruggt að fullorðn-
um líður líka vel. Jólin eru nefni-
lega svo mikið bara kertaljós og
knús. Að búa til minningar sem ylja
manni er svo dýrmætt. Að njóta jól-
anna með þeim sem maður elskar
og geta knúsað alla, sem var reynd-
ar erfitt um síðustu jól í jólakúlun-
um sem allir þurftu að vera í. Ver-
um nægjusöm og þakklát fyrir það
sem við höfum, það er nefnilega
svo margt í kringum okkur sem við
tökum sem sjálfsögðum hlut, en
kannski of seint áttar maður sig á
hversu dýrmætt það var.
Kristín Jónsdóttir,
Fagurhóli á Hálsum