Skessuhorn - 15.12.2021, Side 75
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021 75
Kannanir hafa sýnt að eldvarnir eru
ófullnægjandi á mörgum heimilum
og íbúarnir því berskjaldaðir fyrir
eldsvoðum. Hættan er mest þegar
líður að jólum, þegar skreytingum
fjölgar. Svo um sjálfar hátíðirnar
þarf að passa upp á enn fleira, svo
sem raforkunotkun, ástand reyk-
skynjara, logandi kerti og margt
fleira.
Í ljósi þess að nú gengur í garð
sá árstími þar sem hætta er á elds-
voðum af völdum kertaljósa og
jólaskreytinga hefur Bjarni K. Þor-
steinsson slökkviliðsstjóri í Borg-
arbyggð tekið saman lista með at-
riðum sem nauðsynlegt er að hafa
í huga um hátíðirnar. Bjarni tek-
ur fram að hann mælir fyrir hönd
allra slökkviliða í landshlutanum,
sömu heilræði eiga alls staðar við.
Ábendingar Bjarna fylgja hér á eftir.
Lágmarkseldvarnir á
heimilum eru:
• Virkir reykskynjarar, tveir eða
fleiri.
• Léttvatns- eða duftslökkvitæki
við helstu flóttaleið.
• Eldvarnateppi á sýnilegum
stað í eldhúsi.
Gætum varúðar
um jól og áramót
• Reykskynjarar eru sjálfsögð
og ódýr líftrygging, skipta
skal um reykskynjara á tíu ára
fresti. Og rafhlöður í byrjun
desember ár hvert eða oftar ef
þörf er á.
• Átt þú handslökkvitæki? Er
það í lagi? Hvenær var það síð-
ast yfirfarið?
• Slökkvitæki á að vera á sýni-
legum stað, ekki í felum inni
í skáp!
• Ofhlöðum ekki fjöltengi og
gætum að gömlum og lélegum
rafbúnaði.
• Notum ávalt viðurkennd-
ar rafvörur og fjöltengi með
slökkvara og gaumljósi.
• Eldvarnateppi skal vera í
hverju eldhúsi og á aðgengi-
legum og sýnilegum stað.
• Gerum flóttaáætlun úr íbúð-
inni vegna eldsvoða með öll-
um á heimilinu og æfum
hana reglulega. Tvær greiðar
flóttaleiðir úr hverri íbúð!
• Gætum varúðar í umgengni
við kertaljós og skreytingar,
skiljum börn aldrei eftir eft-
irlitslaus nærri logandi kertum
eða eldi.
• Aðgætum íbúðir okkar áður
en gengið er til hvílu, eða þær
eru yfirgefnar að degi til, hvort
nokkurs staðar logi á kerti eða
skreytingum.
• Logandi kertaljós séu aldrei
höfð í gluggum vegna drag-
súgs og lausra gardína.
• Dreifið sem mest raforku-
notkun við matseld um jól og
áramót. Það kemur í veg fyr-
ir hugsanleg óþægindi vegna
mikils álags á dreifikerfi raf-
magns.
• Ullar- eða leðurvettlingar á
höndum og öryggisgleraugu
á öll nef við meðferð flugelda
um áramót.
• Munum 112 Neyðarlínuna ef
slys, veikindi eða eldsvoða ber
að höndum.
mm
Gagnleg ráð og ábendingar vegna eldvarna
og slysahættu um hátíðirnar