Skessuhorn


Skessuhorn - 15.12.2021, Page 86

Skessuhorn - 15.12.2021, Page 86
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 202186 Þórhildur María Kristinsdótt- ir, eða Tóta eins og hún er í dag- legu tali kölluð, er fædd og uppalin í Breiðholtinu en náttúran og dýrin hafa alla tíð dregið hana til sín. 17 ára gömul árið 1998 ákvað hún því að leita að vinnu í sveit og setti aug- lýsingu í Bændablaðið. Hún fékk vinnu á Bjarnastöðum í Hvítársíðu og hefur ekki farið úr Borgarfirðin- um síðan. Blaðamaður Skessuhorns hitti Tótu í liðinni viku á skrifstofu hennar í Reykholti í Borgarfirði en hún starfar sem Landvörður fyrir svæðið frá Steðja í Kjós og alla leið upp á Langjökul. Leið vel á Bjarnastöðum Tóta ólst upp við Elliðaárnar sem efalaust er ástæðan fyrir því hversu mikið hún sækir í náttúruna. „Það hafði örugglega líka áhrif hvað for- eldrar mínir ferðuðust mikið með mig sem barn. Það voru þá ekk- ert ferðalög yfir helgi á tjaldstæði þar sem margir voru heldur var bara pakkað vel í bílinn og haldið af stað upp á hálendi með tjald í marga daga,“ segir Tóta og hlær. Hún er mjög hrifin af dýrum, en hestum kynntist hún í gegnum afa sinn og bróður sem báðir voru með hesta þegar hún var yngri. „Ég fékk að fara á nokkur reiðnámskeið og svona og elskaði að fara á hestbak. En þegar ég kom fyrst á Bjarna- staði var sauðburður að byrja og ég var alveg logandi hrædd við kindur á þeim tíma,“ segir hún og hlær. Kindurnar vöndust fljótt og hræðslan hvarf. „Ég var líka mest bara í hestaleigunni. Upphaflega ætlaði ég bara að vinna á Bjarna- stöðum yfir sumarið en ílengdist fram í nóvember. Svo kom ég aft- ur sumarið eftir og líka sumarið þar á eftir. Mér leið alltaf rosalega vel á Bjarnastöðum og það varð smá svona „heima“ fyrir mér. Ég fór svo í skóla á Hvanneyri og á með- an hinir nemendurnir fóru heim í fríum fór ég frekar á Bjarnastaði en til Reykjavíkur. Ég var orðin al- gjör heimalningur þar og á rosa- lega margar góðar minningar,“ seg- ir Tóta. Fékk draumavinnuna Tóta flutti svo alfarið í Borgar- fjörðinn þar sem hún býr enn í dag með dætrum sínum tveimur; Lisbeth 16 ára og Ólöfu 13 ára. Nokkrum árum eftir að hún lauk búfræðinámi á Hvanneyri ákvað Tóta að skrá sig þar í háskólanám og valdi BS nám í náttúru- og um- hverfisvernd með áherslu á þjóð- garða og verndarsvæði. Vorið 2016 þegar hún gekk út úr síðasta próf- inu kom áfangastjórinn til henn- ar og sagði henni að Jón Björns- son, þjóðgarðsvörður á Snæfells- nesi, væri að reyna að ná í hana. „Hann hafði verið að kenna mér einn áfanga svo við þekktumst en ég vissi ekkert af hverju hann ætti að vera að reyna að ná í mig. Ég hringdi í hann og þá kom í ljós að landvörðurinn sem átti að koma hingað yfir sumarið gat ekki kom- ið og bauð hann mér starfið. Ég var á þessum tíma búin að fá vinnu í Hönnubúð hér í Reykholti og hafði um hálfan dag til að ákveða mig. Ég sló svo til og sé ekki eftir því í dag,“ segir Tóta sem starfar nú sem landvörður í fullu starfi allt árið um kring. En starf landvarðar á þessu svæði var bara sumarstarf fram til ársins 2019. „Þetta er í raun alveg draumavinna fyrir mig. Ég elska að geta verið úti en að geta líka unnið á skrifstofunni þegar veðrið er leiðinlegt,“ segir hún og brosir. Fjölbreytt starf Aðspurð segir Tóta starf landvarða fyrst og fremst vera að hafa umsjón og eftirlit með friðlýstum svæðum. „Það hljómar kannski einhæft en er ótrúlega fjölbreytt. Einn daginn er ég kannski að fylgjast með fugla- lífinu á Akranesi og næsta dag er ég að leiðbeina ferðamönnum við Hraunfossa, græða upp mosa við Grábrók eða hlaða þrep upp á Eld- borg,“ segir Tóta og hlær. Á vor- in og sumrin fylgist Tóta sérstak- lega vel með fuglalífinu við Blaut- ós og Innstavogsnes rétt utan við Akranes og svo á Hvanneyri. „Þá er ég með reglulegt eftirlit á þess- um svæðum og fylgist með því hvenær farfuglarnir koma og hvort ég verði vör við breytingar. Ég kem þá svona einu sinni í viku, alltaf á sama tíma, og sit kannski í svona klukkutíma að fylgjast með og tel fuglana. Ég fylgist sérstaklega vel með æðarfuglinum við Blaut- ós og Innstavogsnes en þar finnst mér honum fara fækkandi og máf- um fjölgandi. En ég hef bara mína tilfinningu fyrir því og hún nær bara aftur til ársins 2017,“ segir Tóta. „Ég elska dagana sem ég er að fylgjast með fuglalífinu. Maður verður stundum rosalega þreyttur í kraðakinu á ferðamannastöðunum og þá er þetta svona smá núllstill- ing,“ bætir hún við. Mikill tími fer í akstur Á því svæði sem Tóta hefur umsjón með eru 14 friðlýst svæði og þar af tvö Ramsarsvæði, annars vegar Andakíll og hins vegar Grunna- fjörður. Svæðið er víðfeðmt og verk efnin mörg. „Ég er eini land- vörðurinn á þessu svæði og það er eiginlega bara alls ekki nóg,“ seg- ir Tóta og bætir við að vegalengd- irnar séu langar og að mikill tími fari í akstur. „Ég þarf að fylgjast vel með helstu ferðamannastöðunum sem eru Hraunfossar, Grábrók og Eldborg, en svo þarf ég líka að hafa tíma til að sinna allskonar verkefn- um og eftirliti með öllum hinum svæðunum. Best væri að hafa fasta viðveru landvarðar á háannatíma á þessum f erðamannasvæðum. En þegar ég fer til dæmis á Eldborg þá geri ég ekkert annað þann daginn, það er bara svo langt að keyra,“ segir hún og bætir við að á sumr- in fái hún oft sjálfboðaliða til að að- stoða með ýmis verk en það dugi ekki til. „Stundum fæ ég sjálfboða- liða í einhver afmörkuð verkefni og þeir geta bjargað sér sjálfir og ég sinnt öðru á meðan. En þegar það eru mörg lítil verkefni sem sjálf- boðaliðarnir eru að aðstoða með þá er ég í raun bara verkstjóri og þarf að vera á staðnum líka og önnur svæði sitja á hakanum.“ Grábrók skorar hæst Aðspurð segir Tóta stærstan hluta ferðamanna ganga mjög vel um svæð- in og að þá skipti mestu máli að hafa góðar upplýsingar og merkingar. „Ef við erum með góða stýringu á svæð- um, aðgengilegar og skýrar upplýs- ingar og svæðin eru snyrtileg og vel skipulögð þá er ferðahegðunin öðru- vísi en þar sem er mikið kaos,“ út- skýrir Tóta og bætir við að þess vegna er mikilvægt að halda vel við ferðamannastöðum, til að minnka hættuna á óþarfa ágangi á náttúruna. Tóta segir Grábrók vera gott dæmi um vel skipulagt og snyrtilegt ferða- mannasvæði. „Grábrók skorar hæst í ástandsmati hjá okkur, ef ekki bara á öllu landinu. Enda er búið að gera rosalega mikið þar síðustu ár. Við erum búin að girða meðfram stíg- um og það eru komnar tröppur al- veg upp svo það ætti ekki að fara fram hjá neinum hvar megi ganga og hvar ekki. Það er líka búið að laga bílastæði mikið og vonandi verða þau malbikuð næsta vor,“ segir hún. Þrepin upp Eldborg „Núna, þegar ég er búin að vera í þessu starfi í nokkur ár, er alveg ótrú- lega gaman að geta horft til baka og séð allt það sem ég hef náð að ýta úr vör. Núna er til dæmis byrjað að laga gömlu réttina við Grábrók og setja upp skilti því ég barðist fyrir að það yrði gert. Ég er líka rosalega montin af þrepunum sem við erum búin að gera upp á Eldborg en ég ýtti því „Við þurfum að gæta þess hvernig við skiljum náttúruna eftir fyrir komandi kynslóðir“ segir Þórhildur María Kristinsdóttir landvörður Þórhildur María Kristinsdóttir landvörður á Vesturlandi. Ljósm. arg Þrep hlaðin upp á Eldborg. Falleg mynd sem Tóta tók af Kistuhöfða í Andakíl. Sjálfboðaliðar við mosavinnu á Grábrók.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.