Skessuhorn


Skessuhorn - 15.12.2021, Page 107

Skessuhorn - 15.12.2021, Page 107
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021 107 leiðari, samgöngur og fleira. Þetta skiptir allt máli. Það hefur t.d. áhrif hvort verið sé að undirbúa vindmyllugarða í nágrenninu, það hefur greinilega neikvæð áhrif. Ég upplifi það þó þannig að menn séu ekkert á móti vindmyllum, en þeir vilja bara ekki hafa þær við laxveiðiár eða þar sem fólk er í út- reiðum eða við tamningar. Þetta vita allir sem hafa farið nálægt vindmyllum, það er dálítill hvinur af þeim,“ segir Magnús, en hann telur víða hægt að koma upp vind- myllum fjarri byggð. Getur verið viðkvæmt „Sölumeðferð er alltaf erf- iðari þegar það eru mjög margir eigendur að jörð sem á að selja. Mjög víða hafa orðið ættliðaskipti á jörðum án þess að gengið sé frá eignarhaldi. Við getum nefnt sem dæmi; eign er í eigu fimm systk- ina, fjögur þeirra hafa flutt burtu en eitt verður eftir. Sá sér um rekstur búsins í jafnvel áratugi og fellur svo frá eða eitthvað breyt- ist. Þá kemur í ljós að eigend- ur jarðarinnar er hópur fólks sem ekki er endilega sammála um hvað skuli gera í stöðunni. Þetta geta verið ótrúlega miklar flækj- ur, ekki síst ef ábúandinn hefur aukið verðmæti jarðarinnar með byggingum sem hann hefur einn staðið kostnað af. Þetta geta ver- ið erfiðar aðstæður og það þarf að vera með mikla yfirvegun til að komast í gegnum hvernig skuli standa að sölu jarðarinnar þegar svona stendur á. Þetta tekur yfir- leitt mjög langan tíma og það geta verið miklar tilfinningar í spilinu. Stundum gefast menn upp og við- komandi jörð gæti þá hreinlega farið í eyði.“ Verðhækkanir Jarðir eru ekkert öðruvísi en fast- eignir í þéttbýli hvað það varðar að markaðurinn ræður verðinu. Ýmislegt hefur þó breyst á þeim árum sem Magnús hefur verið í þessum viðskiptum. Framan af voru jarðir gjarnan seldar innan fjölskyldna, sem skekkti töluvert myndina hvað verð varðaði. „Jarðaverð hefur hækkað tölu- vert frá því að ég byrjaði í þessu. Þá voru miklu fleiri jarðir í rekstri en eru í dag og yfirleitt seldu menn jarðir til búrekstrar. Þá létu menn búnaðarráðunauta reikna út hvað þeir þyldu að skulda og það var reynt að gera þetta svo- lítið vísindalega. Bændur voru al- mennt mjög áhugasamir um að selja til búrekstrar, höfðu metnað fyrir því. Það var meginreglan. Ef menn áttu ekki bara ein- hverja sjóði sjálfir þá gátu þeir gjarnan keypt sér íbúð í næsta þéttbýli fyrir jarðarverð. Bóndi sem seldi jörð t.d. í Borgarfirði gat keypt sér íbúð í Borgarnesi, sá sem var í Húnavatnssýslu gat keypt sér hús á Blönduósi. Það var ódýrara eftir því sem lengra var komið frá höfuðborgarsvæðinu. Það var helst ef það voru einhver hlunnindi, laxveiði eða eitthvað slíkt, sem gat breytt verðinu.“ Magnús segir það hafa verið svo til óþekkt að útlendingar hafi ver- ið að kaupa íslenskar jarðir. „Ég man bara ekki eftir því, það var allavega mjög rólegt og hefur í raun alla tíð verið. Svo hafa kom- ið einstaka menn sem hafa brotið upp það munstur.“ Allir þurfa góða granna Töluverð eftirspurn hefur ver- ið eftir jörðum undanfarin ár og Magnús segir það nánast ein- göngu vera Íslendinga sem hafa aukið eftirspurnina. Mjög mikið hafi aukist að Íslendingar sem búa erlendis vilji eignast jarðir. „Margir af þeim hafa sagt mér að þeir hafi átt íbúð á höfuð- borgarsvæðinu og finna það út að það sé bara skemmtilegra að eiga hús uppi í sveit. Ef menn eru sæmilegir í mannlegum samskipt- um er oft hægt að ná samkomu- lagi við nágrannabændur um að hirða túnin og sjá um girðingarn- ar. Þetta verða kaup kaups. Flestir eru sniðugir í því. Einstaka menn fara t.d. út í að loka gömlum reið- leiðum eða því um líkt, sem er auðvitað ekki skynsamlegt. Ég er alltaf að benda fólki m.a. á þetta.“ Þessa speki lærði Magnús af föð- ur sínum. Hún gengur fyrst og fremst út á að vera hluti af sam- félagi, að láta sér lynda við ná- granna sína og sveitunga. Alltaf að Magnús er orðinn 75 ára en hann er ekki á þeim buxunum að fara að slaka á meðan heilsan leyfir. Hann vinnur virka daga á Fast- eignamiðstöðinni og af fundi við blaðamann, sem lauk klukk- an 18, lá leið hans til dæmis aft- ur í vinnuna að ganga frá laus- um endum. Þá reynir hann að vera hverja einustu helgi í Borg- arfirðinum, enda nóg við að vera þar; laga fjárhús, hækka skjól hjá hestunum, mála og sitthvað fleira. Úr Borgarfirðinum fer hann síð- an í skoðunarferðir eftir því sem þarf til að meta jarðir. ,,Í seinni tíð, eftir að ég hef haft svo mik- ið að gera, þá flýg ég meira. Á Ísa- fjörð, Egilsstaði, Akureyri. Nema ég tek mig einstaka sinnum til og keyri hringinn. Tek svona fimm til sex jarðir á tveimur, þremur dög- um, sérstaklega á vorin. Það get- ur samt verið erfitt, því það er svo mikið fuglalíf á vorin og maður má ekki keyra of hratt. Það getur verið ótrúlega mikið af ungum á vegum, ég er dálítill dýravinur og gæti að þeim.“ En hefur fortíðin háð honum í starfi? „Í stórum dráttum hefur það komið ótrúlega vel út. Það var að- eins erfiðara hérna á Reykjavíkur- svæðinu fyrst, en mér hefur þótt það tiltölulega jákvætt að fólk veit hver ég er, enda var ég þekktur sem framkvæmdastjóri í Klúbbn- um á sínum tíma.“ Magnús segir að ekki sé hægt að upplifa það sem hann lenti í – að sitja saklaus í fangelsi grunað- ur um skelfilegan glæp, án þess að það breyti manni. „Þannig er að þegar maður lendir í mjög mikl- um hrakningum þá heldur maður sig til hlés á eftir.“ Góð fjárfesting Magnús hefur um árabil tek- ið sæti í matsnefnd eignarnáms- bóta þegar hann er kallaður til og nýtir þar yfirgripsmikla þekk- ingu sína á jörðum. Sömuleið- is hefur hann verið meðdómandi þegar sérþekkingar hans er ósk- að. Um tíma kenndi hann nem- um sem voru í námi fyrir fast- eignasala. Hann segist stundum undra sig á því að þegar setja á ný lög varðandi eignarhald á jörðum, eða breyta gömlum, sé ekki meira um að leitað sé til sérfræðinga. ,,Jarðakaup geta verið góð fjár- festing og undrast ég að lífeyris- sjóðir og aðrir fjárfestar, sem eiga þolinmótt fé, skuli ekki fjárfesta meira í landi. Jarðir eru svo skemmtilegar að því leyti að þær margfald- ast í verði ef það myndast eft- irspurn eftir þeim. Bara á einni nóttu, ef ákveðið er að búa til einhvern byggðakjarna eða eitt- hvað, eða það rís upp starfsemi. Það er ódýrt að eiga land, það eru kannski engin mannvirki og fast- eignamatið er lágt. Ef ég væri ungur maður og ætti eitthvað fé mundi ég kaupa land til að eiga. Lönd í nágrenni borg- arinnar hafi t.a.m. margfaldast í verði,“ segir Magnús Leópolds- son fasteignasali að lokum. kóp Tígull Magnúsar á hestadögum í Garðabæ 1984, knapi Hans George Gundlach sem var þá ríkjandi heimsmeistari í fjórgangi. Árný á Grímu með Frakk í taumi á hlaðinu á Hvassafelli. Fjölskyldumynd frá 1993. María móðir Magnúsar með sonum sínum; f.v. Elvari, Halli og Magnúsi. Afastrákarnir Magnús og Pétur. Árný 6 ára gömul á leið ríðandi á merinni Krús til Krossbæjar sem er næsti bær við Setberg.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.