Skessuhorn - 15.12.2021, Síða 115
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021
SMIÐJUVÖLLUM 32 •AKRANESI
WWW.DOTARI .IS•WWW.SMAPRENT.IS
NÝJAR VÖRUR
6.990
14.990
5.990
9.990
4.990
9.990
2.990
3.990 6.990
2.990
2.990
3.490
3.990
3.490
OPNUNARTÍMI
ALLA VIRKA DAGA 13-18
HELGAR 11-15
(LENGRI OPNUN AUGLÝST INN Á
FACEBOOK OG INSTAGRAM)
2.990
1.290
3.990
Skagamenn heimsóttu lið Sel-
fyssinga í Vallaskóla á Selfossi
á laugardaginn í 1. deild karla í
körfuknattleik og lauk leiknum
með öruggum sigri heimamanna,
109:73. Selfoss er nú í fimmta sæti
deildarinnar með 14 stig á með-
an Skagamenn sitja fast á botnin-
um án stiga. Það sást fljótlega hvert
stefndi því eftir rúmlega fimm mín-
útna leik var staðan orðin 20:7 fyr-
ir Selfoss og við lok fyrsta leikhluta,
27:14. Munurinn jókst enn meir í
öðrum leikhluta, heimamenn skor-
uðu að vild og alls 33 stig gegn að-
eins 13 stigum Skagamanna, staðan
í hálfleik 62:27.
Ansi mikið jafnræði var með
liðunum í seinni hálfleik, jafnt í
stigaskori eftir þriðja leikhluta og
Selfoss skoraði einu stigi meira en
gestirnir í lokafjórðungnum, loka-
staðan stórsigur Selfyssinga eins og
áður sagði, 109:73.
Stigahæstir Skagamanna í leikn-
um voru þeir Cristopher Clover
með 22 stig, Nestor Saa var með 19
stig og 12 fráköst og Þórður Freyr
Jónsson með 11 stig. Hjá Selfossi
var Trevon Evans með 32 stig og 10
fráköst, Gerald Robinson með 31
stig og 19 fráköst og Gasper Rojko
með 26 stig og 12 fráköst.
Næsti leikur Skagamanna er
gegn Álftanesi á föstudaginn en í
gær léku þeir á móti Hrunamönn-
um og var leiknum ólokið áður en
Skessuhorn fór í prentun. Leik-
urinn gegn Álftanesi fer fram í
íþróttahúsinu á Vesturgötu og hefst
klukkan 19.15. vaks
Skallagrímur lék tvo leiki í liðinni
viku í 1. deild karla í körfuknattleik.
Fyrst mættu þeir Selfossi sunn-
an heiða á þriðjudagskvöldið fyrir
rúmlega viku síðan og lauk leiknum
með sigri Selfyssinga, 85:79. Jafnt
var nánast á öllum tölum í byrjun
leiks en undir lok fyrsta leikhluta
skoruðu heimamenn níu stig í röð
og leiddu 26:16. Í öðrum leikhluta
bætti Selfoss enn meir við forskot-
ið og munurinn orðinn 20 stig eft-
ir rúmlega þriggja mínútna leik. En
þá spýttu gestirnir í lófana og náðu
góðum kafla, skoruðu ellefu stig
í beit og minnkuðu muninn í tíu
stig. Þeir náðu svo að krafsa aðeins
meir í heimamenn og staðan í hálf-
leik 45:39 og komin spenna í leik-
inn á ný.
Skallagrímsmenn reyndu hvað
þeir gátu að minnka muninn enn
frekar í þriðja leikhluta og það tókst
loksins eftir mikið hark og mikla
baráttu, staðan jöfn fyrir lokafjórð-
unginn, 65:65. Í fjórða leikhluta var
þvílík spenna nánast allan hlutann
og staðan 80:79 fyrir Selfoss þegar
tæpar þrjár mínútur voru eftir. En
þá settu heimamenn í lás, skor-
uðu síðustu fimm stig leiksins og
tryggðu sér mikilvægan sigur, loka-
staðan 85:79.
Stigahæstir hjá Skallagrími voru
þeir Bryan Battle með 23 stig, Mar-
inó Þór Pálmason með 16 stig og
Davíð Guðmundsson með 14 stig.
Hjá Selfossi var Trevon Evans með
32 stig, Gerald Robinson með 25
stig og 16 fráköst og Vito Smojver
með 24 stig.
Skallagrímur og Hamar úr
Hveragerði áttust síðan við á föstu-
daginn í Fjósinu í Borgarnesi. Fyr-
ir leikinn höfðu Skallagrímsmenn
tapað síðustu þremur leikjum sín-
um í deildinni og Hamarsmenn
tapað síðustu sex þannig að það
var ljóst að það var mikið í húfi til
að ná að stöðva taphrinu liðanna.
Skallagrímsmenn mættu grimmir
til leiks, komust í 8:0 og um miðjan
leikhlutann var staðan orðin 21:11.
Hamar náði að minnka muninn í
fjögur stig, 21:17 en þá tóku heima-
menn smá kipp og staðan 29:22 eft-
ir fyrsta fjórðung. Hamar náði síð-
an aftur að minnka muninn og nú
í tvö stig eftir fimm mínútna leik,
43:41. En þá sögðu Skallagríms-
menn hingað og ekki lengra, skor-
uðu 19 stig gegn aðeins fjórum frá
Hamarsmönnum og staðan í hálf-
leik, 62:45 Skallagrími í vil.
Í þriðja leikhluta var jafnt á með
liðunum, liðin skoruðu á víxl og
gestirnir náðu að minnka forskot-
ið í tíu stig um tíma en nær komust
þeir ekki. Skallagrímur gaf aftur í
og staðan fyrir síðasta leikhlutann,
84:68. Í honum var farið að draga
af Hamarsmönnum og þeir höfðu
engan kraft í það að koma til baka.
Það sem gerði gæfumuninn í þess-
um leik var afar góð liðsheild,
leikgleði og mikil barátta leik-
manna Skallagríms allan tímann og
kannski var kominn tími á að þeir
sýndu loksins sitt rétta andlit.
Stigahæstir í liði Skallagríms
voru þeir Bryan Battle með 31 stig,
Simun Kovac með 20 stig og 11
fráköst og Davíð Guðmundsson
með 15 stig. Hjá Hamri var Dareial
Franklin með 36 stig og 10 fráköst,
Joao Lucas með 26 stig og Ragn-
ar Magni Sigurjónsson með 15 stig.
Næstu leikur Skallagríms og síð-
asti leikur fyrir jól er næsta fimmtu-
dag gegn toppliði Hauka á Ásvöll-
um í Hafnarfirði og hefst leikurinn
klukkan 19.30.
vaks
Snæfell og Hamar-Þór mættu-
st síðastliðið þriðjudagskvöld í 1.
deild kvenna í körfuknattleik og fór
leikurinn fram í Hveragerði. Mik-
ið jafnræði var með liðunum í fyrsta
leikhluta en Snæfell skoraði síðustu
sjö stigin og var með fjögurra stiga
forystu, 14:18, eftir fyrsta fjórðung.
Þegar tæplega fjórar mínútur voru
liðnar af öðrum leikhluta var stað-
an 19:23 fyrir Snæfell en þá sögðu
heimakonur lok, lok og læs, náðu
ótrúlegum kafla og skoruðu 17
stig í röð gegn engu stigi gestanna,
staðan í hálfleik 36:23 fyrir Ham-
ar-Þór.
Lítið gekk hjá Snæfelli að
minnka muninn í þriðja leikhluta,
liðin skoruðu svipað og staðan fyrir
fjórða leikhluta, 58:44 fyrir heima-
konur. Þó að Snæfell hafi unnið
síðasta leikhlutann með fimm stig-
um var sigurinn aldrei í hættu hjá
Hamri-Þór, lokastaðan 77:68.
Yfirburðarmanneskja í liði Snæ-
fells var Sianni Martin sem var
með 45 stig og 13 fráköst, Preslava
Radoslavova var með 12 stig og
Rebekka Rán Karlsdóttir með 6
stig. Hjá Hamri-Þór var Astaja
Tyghter með 39 stig og 19 fráköst,
Hildur Björk Gunnsteinsdótt-
ir með 9 stig og Helga María Jan-
usdóttir og Berglind Karen Ingv-
arsdóttir með 8 stig hvor.
Næsti leikur Snæfells í deildinni
er gegn toppliði ÍR. Leikurinn fer
fram í Stykkishólmi laugardaginn
18. desember og hefst klukkan 14.
vaks
Sianni Martin var allt í öllu hjá
Snæfelli gegn Hamar-Þór. Hér í leik
gegn KR fyrr í vetur. Ljósm sá
Snæfellskonur töpuðu á
móti Hamri-Þór
Þórður Freyr var með 11 stig gegn Sel-
fossi. Hér í leik gegn Haukum. Ljósm. jhó
Skagamenn töpuðu fyrir Selfossi
Skallagrímur með góðan sigur gegn
Hamri en tap gegn Selfossi