Skessuhorn


Skessuhorn - 15.12.2021, Side 116

Skessuhorn - 15.12.2021, Side 116
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021116 Vörur og þjónusta R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com S K E S S U H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Dreifi bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Pennagrein Fjárhagsáætlun Borgarbyggðar var lögð fram til seinni umræðu 9. des- ember sl. Oddviti Framsóknar hef- ur slegið fram gagnrýni á forgangs- röðun í henni og fullyrt að fram- kvæmd á nauðsynlegri nýbyggingu grunnskóla á Kleppjárnsreykjum fari ekki undir tvo milljarða króna. Hið rétta er að gert er ráð fyr- ir í áætlun að verja 60 milljónum í verkið á næsta ári, 670 milljón- um á árinu 2023 og 55 milljónum 2025. En þá á að hefjast vinna við lokaáfanga. Þessu verkefni verður áfangaskipt og áætlað er að hægt verði að taka hluta húsnæðisins í notkun innan þriggja ára og verð- ur lokið á árunum 2026 - 2028. Með frágangi á lóð og bílastæð- um verður kostnaður því eitthvað yfir 1,3 milljarð. Hafa ber í huga að stór hluti af húsnæðinu hefur verið dæmdur ónýtur og því óhjákvæmi- legt að fara í framkvæmdir og horfa til lengri tíma. Gera þarf ráð fyrir að húsnæðið sem þarna verði byggt rúmi þá nemendur sem áætlað er að verði á svæðinu til framtíðar og jafnvel af stærra svæði. Þegar svo er talað um að kostnaður geti far- ið upp í tvo milljarða er hreinlega verið að ýkja í þeim tilgangi einum að mála skrattann á vegginn. Eins er rétt að benda á að allt verklag Borgarbyggðar í kringum kostn- aðaráætlanir og eftirlit með fram- kvæmdum hefur nú verið endur- skoðað og bætt. Í grein sinni í Skessuhorni dags 1.12.2021 er oddvitanum tíð- rætt um forgangsröðun og telur að ekki sé forgangsraðað fjármun- um í íþróttamannvirki. Hið rétta er að aldrei nokkurn tímann hef- ur áherslan á þessi mál verið meiri í neinni fjárhagsáætlun. Fjárhags- áætlunin sem lögð verður fram til samþykktar í sveitarstjórn í vikunni gerir ráð fyrir tæpum 1,1 milljarði í íþróttamannvirki og þar af 400 milljónum þegar á næsta ári. Það er langhæsta fjárhæðin í einstakt verkefni á næsta ári. Langhæsta! Leikskólahúsnæði í Borgarnesi er einnig á áætlun en þar erum við skemur á veg komin í greiningum á þörfum og mögulegum útfærsl- um en þó gerir áætlunin ráð fyr- ir fjármunum í slíkar framkvæmd- ir auk þess sem fjárfest verður í færanlegum kennslurýmum til að bregðast við tímabundið. Ljóst er að gera þarf ráð fyrir að þessi liður taki til sín töluvert fjármagn á árun- um 2026 - 2028 og að þá verði lok- ið framkvæmdum við nýjar deildir í leikskólunum í Borgarnesi. Þegar spurt er hvort allt skólahús- næði og aðstaða verði á endanum jafn góð fyrir öll börn í sveitar- félaginu þá ætti svarið að vera já. Já, það er stefnan. Bætt starfsskil- yrði barna og starfsfólks allra skól- anna í Borgarbyggð er stefna þessa meirihluta. Það gerist ekki á einu ári og heldur ekki á einu kjör- tímabili en með því að fara í kröft- ugar framkvæmdir og endurbætur er verið að borga þá innviðaskuld sem hlóðst upp á árunum eftir hrun og bæta starfsskilyrði þeirra sem starfa í skólum bæði barna og fullorðinna. Sú vegferð er gríðar- lega mikilvæg þar sem sú réttmæta krafa þeirra sem í skólunum starfa að skilyrðin séu eins góð og nokk- ur kostur er verður meira áberandi með hverju árinu og er mikilvæg- ur hlekkur í því að líðan, heilsa og starfsþrek allra sé gott. Sumir sveitarstjórnarfulltrúar Framsóknar kvarta undan skorti á framtíðarsýn og bent er á þá stað- reynd að í okkar sveitarfélagi séu margar starfsstöðvar skóla. Það gera þau reyndar reglulega en alltaf án þess að kynna fyrir okkur þeirra framtíðarsýn. Hver hún er veit enginn en þau hafa (sum) bæði lýst því yfir að fækka þurfi starfs- stöðvum og að þau styðji okkur í meirihlutanum í því að fækka þeim ekki. Nú er hins vegar bent á að ný- bygging á Kleppjárnsreykjum sé ekki nægjanlega stór til að réttlæta fjárfestinguna ef breytingar yrðu á fjölda starfsstöðva. Þá er því til að svara að stefnan liggur fyrir. Þessi meirihluti sem nú situr tók ákvörðun um að halda öllum starfs- stöðvum opnum en fylgjast engu að síður með þróun á svæðum starfs- stöðvanna og aðlaga stefnu að þeirri þróun. Það sem vakti fyr- ir þeim framboðum sem standa að meirihlutanum var að það fengist ákveðinn vinnufriður án átaka um skólamál til að gefa háskólahverf- unum okkar á Bifröst og Hvann- eyri tækifæri til að vaxa og dafna auk þess að sjálfsögðu að styðja við byggðarþróun í dreifbýlinu. Þró- unin hefur verið með þeim hætti að mikil uppbygging hefur átt sér stað á Hvanneyri. Hús eru byggð og börnum hefur fjölgað þegar fjöl- skyldufólk hefur sest þar að. Það er mikil gæfa að starfsstöðinni þar var ekki lokað á sínum tíma. En mikil átök urðu á sínum tíma þegar loka átti starfstöðinni þar. Sem endaði með því að þáverandi meirihluti sprakk. Á Bifröst hefur þróunin hins vegar verið á annan veg. Íbú- um svæðisins hefur fækkað og fá börn nú í leik- og grunnskólum. Það er því ljóst að huga þarf að því með hvaða hætti best verður staðið að þessari þjónustu á því svæði. Þó að ákveðið hafi verið að fara í framkvæmdir á Kleppjárnsreykjum þá þýðir það ekki að leggja þurfi niður eða loka öðrum starfsstöðv- um í sveitarfélaginu á sama tíma. Rekstur sveitarfélagsins er stöðug- ur og það er því svigrúm til þess að taka vel ígrundaðar ákvarðanir og velta upp fleiri leiðum sem jafnvel styðja enn betur við faglegt starf og byggðarþróun til framtíðar. Á nýju ári verður farið í sam- tal við þá sem nýta þessa þjónustu á svæðinu um þessi mál. Mark- miðið með því samtali verður að leggja mat á það hvernig börnum verður best tryggð gæða menntun og gott félagslíf. Kanna hug fólks varðandi það hvort kominn sé tími til að gera breytingar sem tryggja áframhaldandi skólahald en hugs- anlega með breyttum áherslum. Fræðslunefnd hefur fengið það hlutverk að endurskoða skólastefnu sveitarfélagsins og mun samhliða taka þetta samtal og kalla eftir hug- myndum og viðhorfi þeirra sem nýta sér þjónustuna nú. Fram und- an er samtalið um þessar hugmynd- ir og aðrar og mikilvægt að ekki sé anað að neinu. Markmiðið verð- ur alltaf að bjóða börnunum upp á bestu mögulegu menntun og starfs- skilyrði. Þó svo gagnrýni sé mikilvægur þáttur í hlutverki kjörinna fulltrúa þá er gagnrýni oddvitans á áætlan- ir á kostnað á endurbætur á nýju ráðhúsi Borgarbyggðar einfaldlega stórundarleg. Allir kjörnir fulltrú- ar voru hlynntir þessum kaupum og voru vel upplýstir um að fara þyrfti í breytingar á húsnæðinu og aðlögun að þörfum stjórnsýslunn- ar þegar samþykkt var að festa kaup á húsinu að Digranesgötu. Allir voru meðvitaðir um að sá kostnað- ur gæti orðið allt að 120 milljónir. Þegar þessi gjörningur er skoðað- ur vandlega sjá allir það að fjárfesta í framtíðarhúsnæði ráðhúss Borg- arbyggðar fyrir 375 milljónir sam- hliða því að gerður er 10 ára leigu- samningur við Arionbanka er góð- ur ráðahagur. Við þurfum að muna að húsnæðið þar sem starfsemin var til húsa var mjög illa farið af raka- skemmdum og myglu og því verð- ur að segjast eins og er að lukkan hafi verið með okkur þegar okk- ur bauðst þetta hús. Húsið fékkst á góðu verði, það er vel staðsett og hentar vel undir starfsemi ráð- hússins. Það er framkvæmdahugur í Borgarbyggð. Vissulega höfum við orðið fyrir höggi þegar stór hluti af húsnæði reyndist mikið skemmdur eða ónýtur. En nú er kominn tími til að setja kraft í framkvæmdir á innviðum. Bæta aðstöðu fyrir alla íbúa. Magnús Smári Snorrason, Samfylking og óháðir, Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir Vinstri hreyfingin grænt framboð og Lilja Björg Ágústsdóttir Sjálfstæðisflokki. Höfundar eru oddvitar þeirra framboða sem standa að meirihluta sveitarstjórnar Borgarbyggðar. Fjárfestum í íþróttamannvirkjum og skólahúsnæði
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.