Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 7
L ÆKNABL AÐIÐ 2021/107 571 R I T S T J Ó R N A R G R E I N Insulin for 100 years Arna Guðmundsdóttir MD, MBA Internist, endocrinologist Landspítali University Hospital Insúlín í 100 ár Virðulegum lesendum Læknablaðins hefur eflaust brugðið í brún við að sjá forsíðu blaðsins að þessu sinni. Hana prýðir fáklædd ung kona á tískupalli. Kona þessi heitir Lila Moss og er 19 ára. Móðir hennar er Kate Moss, ein þekktasta fyrirsæta heims. Dóttirin hefur fetað í fótspor móður sinnar við fyrir- sætustörfin. Þær mæðgur gengu saman eftir sýn- ingarpöllunum á tískuvikunni í Mílanó í september síðastliðnum þar sem þær auglýstu fatnað frá Fendi og Versace. Lila notaði ekki aðeins tækifærið til að auglýsa fatnað. Hún sýndi líka umheiminum að hún er með tegund 1 sykursýki. Það má sjá á insúlíndæl- unni sem fest er á utanvert vinstra læri hennar. Á upphandlegg sést auk þess blóðsykur-síriti á mynd- um af tískusýningunni. Myndirnar vöktu verð- skuldaða athygli á samfélagsmiðlum.1 Þessi búnaður telst í dag vera hefðbundin meðferð við tegund 1 sykursýki (standard-of-care).2 Tilefni þessara skrifa eru að nú eru liðin 100 ár frá uppgötvun insúlíns, meðferð sem breytti áður ban- vænum sjúkdómi í langvinnan, krónískan sjúkdóm. Sykursýki hefur verið þekkt frá örófi alda. Eyjafrum- ur í brisinu sem framleiða insúlínhormónið voru uppgötvaðar 1869 af Paul Langerhans og voru lengi þekktar sem Langerhanseyjar. Rannsóknir áranna á eftir sýndu að með því að fjarlægja briskirtilinn úr hundum mátti framkalla sykursýki. Fjölmargir reyndu að einangra virka efnið sem brisið framleiðir og árið 1921 tókst þeim Frederick Banting, Charles Best og James Collip það loks. Þessir þrír mynduðu teymi vísindamanna við eðlisfræðideild Tórontó-há- skóla en henni stýrði John Macleod. Skurðlæknirinn Banting átti upphaflegu hugmyndina en það var fyrir tilviljun að Best, sem þá var ungur læknanemi, varð aðstoðarmaður hans eftir að hafa varpað hlut- kesti við annan nema um að hreppa umrættstarf. Þeir félagar Banting og Best unnu að rannsóknum sínum allt sumarið 1921. Í lok ágúst voru þeir komn- ir með efni sem virkaði til lækkunar á blóðsykri hjá sykursjúkum hundum. Veturinn á eftir fengu þeir Collip til liðs við sig til að hreinsa efnið og gera það öruggt fyrir menn. Í janúar 1922 var efnið loks orðið nægilega þróað til að hefja tilraunir hjá mönnum. Sykursýkideildir voru stofnaðar við sjúkrahúsin í Tórontó og rann- sóknarstofur háskólans þar gerðu samning við lyf- jafyrirtækið Eli Lilly & Co um framleiðslu efnisins í miklu magni. Fyrsti sjúklingurinn sem fékk insúlín var 14 ára gamall drengur, Leonard Thompson, en hann var nær dauða en lífi þegar hann fékk fyrstu sprautuna. Skjótur bati þeirra sem fengu lyfið líktist mest kraftaverki. Nóbelsverðlaunanefndin í Stokkhólmi var fljót að átta sig á þessu gríðarlega afreki innan læknis- fræðinnar og verðlaunaði þá Banting og Macleod með hinum eftirsóttu Nóbelsverðlaunum árið 1923. Í kjölfarið upphófust hatrammar deilur um hver ætti mestan heiðurinn af þróun lyfsins sem lauk með því að Banting deildi sínum verðlaunum með Best og Macleod gerði slíkt hið sama með Collip. Á sjöunda áratugnum var orðið ljóst að um fleiri en eina tegund sykursýki er að ræða og að tegund 2 væri líklega sú algengasta en æ fleiri tegundir upp- götvast nú með hjálp erfðafræðirannsókna. Rosalyn Yalow hlaut Nóbelsverðlaunin 1977, önnur kvenna, fyrir uppgötvun sína á insúlínmælingum sem aftur gerði það kleift að aðgreina tegund 2 sykursýki frá tegund 1. Blóðsykurmælar fyrir einstaklinga komu á markað á áttunda áratugnum og var það bylting í meðferð á sínum tíma. Fyrsti insúlínpenninn kom á markað 1985 og 1999 kom fyrsti sírit- inn til sögunnar. Nú erum við stödd þar sem insúlíndælur fá sendar upp- lýsingar með bluetooth-tækni beint frá síritum og geta þannig að nokkru leyti stýrt insúlíngjöf í sídreypi, án beinnar aðkomu sjúklingsins. Þessi stórkostlega tækni er enn ein byltingin í meðferð við þessum sjúkdómi þó ekki bóli á lækningu enn sem komið er. Alþjóðadagur sykursýki er 14. nóvember ár hvert. Þemað að þessu sinni er Aðgengi að þjónustu, ef ekki nú, þá hvenær? Þar er átt við aðgengi að sykursýki- lyfjum, læknisþjónustu og tækjabúnaði sem er það dýr að hann hefur aukið enn á ójafnræði í heim- inum þegar kemur að þessum sjúkdómi. Fólk með sykursýki á Íslandi er þar ekki undanskilið en mikill kostnaður leggst á þá sem þurfa á þessum vörum að halda. Okkar hlutverk er að jafna aðgengi allra að læknisþjónustu og halda kostnaði sjúklinga við lyf og tækjabúnað í lágmarki. doi 10.17992/lbl.2021.12.662 Mikill kostnaður leggst á fólk með sykursýki á Íslandi. Okkar hlutverk er að jafna aðgengi allra að læknisþjónustu og halda kostnaði sjúklinga við lyf og tækjabúnað í lágmarki. Arna Guðmundsdóttir lyf- og innkirtlalæknir arnagu@landspitali.is Heimildir 1. Abramson A. Kate Moss' Daughter Lila Walks Runway With Insulin Pump Showing for Her Type 1 Diabetes. health.com/celebrities/lil a- moss-walks-runway-with-insulin-pump-showing - nóvember 2021. 2 . American Diabetes Association. 7. Diabetes Technology: Standards of Medical Care in Diabetes-2021. Diabetes Care 2021; 44: S85-S9. 3. Sims EK, Carr ALC, Oram RA, et al. 100 years of insulin: celebrating the past, present and future of diabetes therapy. Nat Med 2021; 27: 1154-64.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.