Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 47

Læknablaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 47
L ÆKNABL AÐIÐ 2021/107 611 „Stóra mál Læknafélags Reykjavíkur er samningsleysið við Sjúkratryggingar Íslands. Við þurfum að finna samningnum framtíðarfarveg,“ segir Guðmundur Örn Guðmundsson, nýr starfandi formaður LR fram að aðalfundi í vor. Hann var áður varaformaður en tekur nú við af Þórarni Guðnasyni sem er í leyfi Bíða eftir skýrum línum frá yfirvöldum „Þótt samningsleysið sé efst á baugi snúa verkefni LR einnig að innra starfi,“ segir Guðmundur Örn sem starfar sem bæklun- arskurðlæknir í Orkuhúsinu og auk þess að starfa við að meta örorku einstaklinga sem lent hafa í slysum. Verkefnin hafi undið upp á sig. „En veturinn leggst ágæt- lega í mig.“ Hann segir að félagsmenn hittist nokkrum sinnum á ári til að tala um annað en þref og kjarabaráttu. Hagsmuna- gæslan sé rík en málum sé nú í meira mæli útvistað til Læknafélagsins, eins og til að mynda Lækningaminjasafninu, árs- hátíð og öðrum félagsstörfum. „Við höfum verið að straumlínulaga starfsemina.“ En hvernig standa samningsmálin? Hann segir merki um að viðsemjandinn, ríkið, vilji standa öðruvísi að samningn- um en áður. „Það er þó óljóst hvernig. Ekki hefur verið lagt fram vel afmarkað skýrt módel, heldur aðeins sagt að gera eigi hlutina á annan hátt. Það leggst mis- vel í félagsmenn.“ Guðmundur segir að þótt venjast megi óvissunni sé hún óþægi- leg til lengri tíma. Lítil framlegð af einkarekstri „Eins og hér í Orkuhúsinu, þar sem eru tugir starfsmanna, gríðarleg fjárfesting í húsnæði og búnaði, þá er ekki besta ástand í heimi að hafa ekki skýra mynd af því í hvaða rekstrarumhverfi við erum,“ skýrir hann. „Við mætum bara í vinnuna og tökum við því sem kemur.“ En sér hann fram á að þessi óvissa eigi eftir að skapa vandræði í rekstri sjálfstæðra stofa? „Við sáum hvað lokanir vegna COVID-19 komu áþreifanlega niður á rekstrinum. Við eigendurnir þurftum að greiða inn í félagið. Það sýnir hver framlegðin er.“ Afdrif Domus Medica sem verður lokað um áramótin gefi innsýn í rekstur fyrirtækja á heilbrigðissviði. „Fyr- irtæki í góðu rekstrarumhverfi eru ekki lögð niður.“ Guðmundur bendir á að rekstur sjálf- stætt starfandi lækna sé að flækjast. Kröf- urnar verði sífellt meiri. „Við verðum að hafa tölvubúnað í hýsingu til að tryggja öryggi, hafa persónuverndarfulltrúa, skrá þjónustuna og senda skýrslur til land- læknis, sem dæmi. Allskonar nýtilkomnir þættir sem ekki voru til staðar þegar upp- runalega gjaldskráin var teiknuð upp,“ segir hann. „Veruleikinn er nýr og það virðist ekki alltaf vera skilningur á því.“ Guðmundur lýsir því hvernig sjálfstætt starfandi læknar hafi slitið viðræðum við SÍ í aðdraganda kosninga. Samstaða sé um að hefja þær ekki að nýju fyrr en ný ríkisstjórn taki við taumunum og línurnar skýrist. „Enn er sama staða og fyrir kosn- ingar og því ekki vitað hverjar áherslurn- ar verða.“ Margir félagsmenn séu þeirrar skoðunar að lítill ávinningur væri af frek- ari samningaviðræðum. „Þessir félagsmenn eru hvekktir vegna þess hvernig staðið var að málum þegar samningur gilti. Lokað var fyrir nýliðun og læknar sem höfðu hug á að koma heim og vinna lentu í málaþrefi.“ Félagsmenn séu því varkárir og bíði skýrrar sýnar. „Læknafélagið er að velta vöngum yfir því hvað er skynsamlegt að gera á meðan við fáum ekki skýrari merki hinum megin frá,“ segir hann. Samstaða meðal félagsmanna Læknafélag Reykjavíkur er eitt stærsta að- ildarfélag Læknafélagsins með 490 félags- menn. Guðmundur segir hópinn virkan. Samstaða ríki sem sjáist á þeim einhug sem birtist þegar samningaviðræðunum var slitið. En hvers vegna tekur hann þátt í félagsstörfum? Guðmundur segir að Ragnar Jónsson, sem var formaður Félags íslenskra bæklunarlækna, hafi beðið hann að koma í samninganefndina fyrir það félag. „Ég fór í kjölfarið í samninganefnd LR.“ En af hverju er hann læknir? Hann var ungur og ómótaður og elti félaga sína í námið. Enginn læknir er í fjölskyldunni. „Það var tilviljun. „En ég byrjaði og gekk ágætlega þannig að þá var bara að halda áfram,“ segir hann. En af hverju þessi sérgrein? „Margt kom til greina en einhvern veginn komu bæklunarlækningar upp.“ Aðgerðir hafi heillað hann og að vinna með höndunum. „Það brýtur upp flæðið. Svo vann ég á Borgarspítalanum og þar var fagið mjög sýnilegt.“ Guðmundur Örn Guðmundsson, bæklunarskurðlækn- ir í Orkuhúsinu, er starfandi formaður Læknafélags Reykjavíkur. Hér er hann á einni skurðstofunni í lok vinnudags. Mynd/gag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.