Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 9

Læknablaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 9
L ÆKNABL AÐIÐ 2021/107 573 R I T S T J Ó R N A R G R E I N Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir thorolfur.gudnason@landlaeknir.is Að mínu mati eru tvær meginleiðir í boði fyrir okkur til að komast út úr covid- krísunni. Annars vegar þurfum við að fá virka lyfjameðferð gegn veirunni og/eða hins vegar þurfum við að ná hjarðónæmi í samfélaginu. doi 10.17992/lbl.2021.11.663 Baráttan á Íslandi við COVID-19 hefur nú staðið í um 22 mánuði og sér ekki fyrir endann á henni enn sem komið er. Strax í byrjun faraldursins var ákveðið að helstu markmið sóttvarnaráðstafana yrðu að beita ekki of íþyngjandi aðgerðum en á sama tíma að hamla útbreiðslu faraldursins það mikið að hann yrði ekki of íþyngjandi fyrir heilbrigðiskerfið. Með þessari nálgun var hins vegar ljóst að það myndi líða langur tími þar til að hjarðónæmi næðist og far- aldurinn dæi út. Hjarðónæmi er náð þegar stór hluti samfélagsins er orðinn ónæmur fyrir smitsjúkdómi þannig að smit milli manna verður ólíklegt. Þannig verður allt sam- félagið ónæmt fyrir sjúkdómnum en ekki einungis þeir sem eru ónæmir sem einstaklingar. Ekki er ljóst hversu stórt hlutfall þjóðarinnar þarf að smitast til að hjarð ónæmi náist en talið hefur verið að það sé um 60-80%. Margir þættir hafa áhrif á hjarðónæmið eins og hversu virkt ónæmi myndast eftir sýkingu eða bólusetningu, hversu lengi ónæmið varir og hvort nýir stofnar kórónaveirunnar (SARS-CoV-2) koma fram sem fyrra ónæmi verndar ekki gegn. Miklar vonir hafa verið bundnar við að þeir sem smitast af COVID-19 öðlist varanlegt ónæmi gegn endursmiti. Hér á landi hafa einungis 27 manns endursýkst af 15.321 sem greinst hafa með COVID-19 (0,2%) sem sýnir að gott ónæmi myndast við nátt- úrulegt smit. Ekki er vitað hversu lengi það endist. Í lok árs 2020 var byrjað að bólusetja gegn kórónu- veirunni og bentu fyrstu rannsóknir til þess að gott ónæmi myndi skapast í kjölfarið. Raunin varð ekki sú því með tilkomu delta-afbrigðis veirunnar varð vernd gegn smiti einungis um 50% eftir tvær sprautur en vernd gegn alvarlegum veikindum um 90%. Þetta er ástæða þess að faraldurinn hefur verið í mikilli uppsveiflu þrátt fyrir að tekist hafi að full- bólusetja um 76% landmanna og 89% allra 12 ára og eldri. Ljóst er því að hjarðónæmi mun ekki nást með núverandi fyrirkomulagi bólusetninga. Þó að óhætt sé að fullyrða að bólusetning gegn COVID-19 hafi skilað góðum árangri hérlendis, erum við þrátt fyrir ýmsar takmarkanir að sjá það mörg smit að alvarleg veikindi eru spítalakerfinu og ýms um samfélagslegum innviðum nánast ofviða. Hvernig komumst við þá út úr COVID-19? Að mínu mati eru tvær meginleiðir í boði fyrir okkur til að komast út úr covid-krísunni. Annars vegar Hvernig komumst við út úr COVID-19? þurfum við að fá virka lyfjameðferð gegn veirunni og/eða hins vegar þurfum við að ná hjarðónæmi í samfélaginu. Nú eru vonir bundnar við að fljótlega komi á markað tvö ný lyf við COVID-19. Lyfin eru frá lyf- jafyrirtækjunum Merck (Molnupiravir) og Pfizer (Paxlovid) og eru nú metin hjá Lyfjastofnun Evrópu (EMA). Í skoðun er hvort sækja eigi um undanþágu fyrir notkun lyfjanna hér á landi þannig að ekki þurfi að bíða eftir markaðsleyfi en ljóst er að lyfin munu verða dýr og einungis í boði fyrir þá sem lík- legt er að veikist alvarlega af COVID-19. Einnig á eft- ir að koma í ljós hversu mikil virkni lyfjanna raun- verulega er og hvort þau eru laus við aukaverkanir. Okkar helsta von er sú að við náum víðtæku ónæmi í samfélaginu sem stöðva mun samfélagsleg smit. Ef við ætlum að ná hjarðónæmi með náttúrulegri sýkingu mun það taka 1-2 ár ef miðað er við að dagleg smit verði ekki fleiri en 100. Allan þann tíma þyrftum við að búa við töluverðar takmarkanir til að missa ekki tökin á fjölda smita og jafnvel 100 smit á dag væru of mörg fyrir okkar spítalakerfi og samfélag. Hvað þá með bólusetningu? Mun okkur takast að ná hjarðónæmi með bólusetningu? Ljóst er að hjarðónæmi mun ekki nást með tveim- ur spraut um af núverandi bóluefnum fyrir hvern ein stakling. Örvunarbólusetning 5-6 mánuðum eftir grunn bólusetningu (skammt tvö) gefur hins vegar góðar vonir um að með henni muni nást gott ónæmi sem hindra muni samfélagslega útbreiðslu. Því er mikilvægt að í fyrsta lagi takist að bólusetja sem flesta með grunnbólusetningu og í öðru lagi að flestir/allir þiggi örvunarbólusetninguna. Þannig tel ég raunhæfa möguleika á því að okkur muni takast á næstu vikum og mánuðum að komast að mestu út úr COVID-19. Hins vegar er óljóst hvort reglulega muni þurfa að gefa örvunarskammta í framtíðinni eða hvort þörf verði á nýjum bóluefnum. Eitt er þó ljóst að baráttunni við COVID-19 mun ekki ljúka fyrr en tekist hefur að vinna bug á faraldr- inum í heiminum öllum en það getur tekið nokkur ár. Við þurfum því að vera tilbúin til að beita ýmis konar aðgerðum á næstu árum í samræmi við þróun faraldursins hér á landi og annars staðar. Þórólfur Guðnason MD, PhD Chief Epidemiologist Centre for Health Security and Communicable Disease Control Directorate of Health How can we get out of COVID-19?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.