Læknablaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 20
584 L ÆKNABL AÐIÐ 2021/107
R A N N S Ó K N
við (42%) og var vatn eða aðrir vökvar algengustu brunavaldar,
samanber töflu I. Rúmur þriðjungur hafði brennst í andliti eða á
höfði (35%) og rúmur helmingur (54%) hafði fengið húðágræðslu
(tafla I).
Áhrif bruna á líðan og heilsu samkvæmt kvörðum BSHS-B-
listans mældist á bilinu 4,4-5,0 (miðgildi) og miðgildi líkamlegra
einkenna var sömuleiðis á bilinu 4,0 til 5,0. Yfirlit yfir niðurstöður
BSHS-B-spurningalistans um áhrif brunaslyss á líðan og heilsu er
að finna í töflu II. Um helmingur þátttakenda (51%) taldi sig eiga
við tilfinningaleg vandamál að stríða, svo sem að vera einmana og
að forðast samneyti við aðra. Rúmur þriðjungur þátttakenda (37%)
taldi að brunaslysið og afleiðingar þess hefðu neikvæð áhrif á lík-
amsímynd (frekar mikil, talsverð, mjög mikil áhrif) og 34% þátt-
takenda fann fyrir skömm vegna breytinga á útliti (frekar mikil,
talsverð, mjög mikil). Rúmur fjórðungur (28%) taldi brunaslysið
og afleiðingar þess hafa áhrif á núverandi kynheilsu sína, svo sem
áhuga á kynlífi og að forðast faðmlög og kossa.
Konur höfðu lakari líkamsímynd en karlar (M 3,7 (sf 1,37) á
móti 4,4 (sf 0,97), p=0,023) og fundu fyrir meiri skömm en þeir (M
3,9 (sf 1,05) á móti 4,7 (sf 0,56), p=0,002).
Þeir sem brenndust á barnsaldri höfðu betri hitaskynjun (M 4,5
(sf 0,86) á móti 3,8 (sf 1,22), p=0,028), færni handa (M 4,9 (sf 0,38) á
móti 4,6 (sf 0,74), p= 0,022), starfshæfni (M 4,7 (sf 0,63) á móti 4,1 (sf
1,22), p=0,026) og kynheilsu (M 4,9 (sf 0,35) á móti 4,4 (sf 1,02), p=
0,039) en þeir sem brenndust á fullorðinsaldri.
Þeir sem tapað höfðu líkamshluta höfðu verri hitaskynjun
(M 3,2 (sf 0,89) á móti 4,2 (sf 1,03), p=0,011), þurftu að sinna meiri
sjálfsumönnun (M 3,9 (sf 0,99) á móti 4,7 (sf 0,65), p=0,008), höfðu
lakari starfshæfni (M 3,9 (sf 1,28) á móti 4,4 (sf 1,08), p=0,039), kyn-
heilsu (M 3,63 (sf 1,15) á móti 4,66 (sf 0,82), p=0,011), líkamsímynd
(M 2,50 (sf 1,20) á móti 4,53 (sf 0,86), p<0,001) og fundu fyrir meiri
skömm (M 3,73 (sf 1,19) á móti 4,61 (sf 0,61), p=0,022) en þeir sem
ekki misstu líkamshluta.
Þeir sem höfðu fengið húðágræðslu höfðu neikvæðari líkams-
ímynd (M 3,81 (sf 1,26) á móti 4,65 (sf 0,73), p<0,001) og þurftu að
sinna meiri sjálfsumönnun (M 4,38 (sf 0,84) á móti 4,71 (sf 0,73),
p=0,023) en þeir sem ekki fengu húðágræðslu. Ekki var munur á
kynheilsu þeirra eða skammartilfinningu.
Niðurstöður EQ-5D-5 sýndu að miðgildi skora var á bilinu
1-2 (spönn 1-5) og mátu þátttakendur heilsu sína að miðgildi 80
(spönn 10-100) samanber töflu III. Samkvæmt EQ-5D-5-listanum
átti meirihluti þátttakenda (82-94%) ekki eða í svolitlum vandræð-
um með atriði tengd hreyfingu, sjálfsumönnun og venjubundn-
um störfum. Þó átti hluti þátttakenda (16%) í vandræðum með
að sinna venjubundnum störfum og athöfnum og svipaður fjöldi
upplifði skerta hreyfigetu (18%).
Tæpur einn þriðji þátttakenda (30%) greindi frá þó nokkrum,
verulegum eða mjög miklum kvíða og þunglyndi og 26% svarenda
voru með þó nokkra, verulega eða mjög mikla verki.
Þátttakendur voru spurðir hvað hefði reynst þeim erfiðast að
glíma við eftir útskrift af sjúkrahúsi og hvað hefði mátt fara betur.
Spurningunum svöruðu 27 (41%) þátttakendur, og töldu 18 (67%)
Tafla II. Niðurstöður kvarða* BSHS-B-spurningalistans um áhrif brunaáverka á líðan og heilsu og viðbótarspurninga
um einkenni.
Kvarðar BSHS-B Áhrif n (%)
Miðgildi (spönn) Engin Dálítil Frekar mikil Talsverð Mjög mikil
Hitaskynjun 4,6 (1-5) 33 (52) 14 (22) 9 (14) 4 (6) 3 (5)
Tilfinningar 4,4 (2-5) 30 (49) 18 (29) 9 (15) 4 (7) 0 (0)
Færni handa 5,0 (3-5) 51 (83) 3 (5) 7 (11) 0 (0) 0 (0)
Meðferðarúrræði 5,0 (2-5) 45 (76) 7 (12) 5 (8) 2 (3) 0 (0)
Starfshæfni 5,0 (1-5) 40 (65) 12 (19) 5 (8) 1 (2) 4 (6)
Kynheilsa 5,0 (1-5) 45 (73) 9 (15) 4 (6) 3 (5) 1 (2)
Samband við aðra 5,0 (2-5) 54 (90) 3 (5) 2 (3) 1 (2) 0 (0)
Einföld verk 5,0 (1-5) 47 (76) 10 (16) 3 (5) 1 (2) 1 (2)
Líkamsímynd 4,8 (1-5) 39 (63) 10 (16) 6 (10) 5 (8) 2 (3)
Skömm** 4,8 (2-5) 42 (67) 12 (19) 7 (11) 1 (2) 1 (2)
Einkenni tengd brunaáverka
Verkir 5,0 (1-5) 39 (63) 11 (18) 6 (10) 5 (8) 1 (2)
Kláði 5,0 (1-5) 33 (52) 14 (22) 5 (8) 8 (13) 3 (5)
Dofi 4,0 (1-5) 29 (47) 16 (26) 6 (10) 10 (16) 1 (2)
Trufluð sjón 5,0 (1-5) 52 (85) 3 (5) 2 (3) 3 (5) 1 (2)
Trufluð heyrn 5,0 (1-5) 52 (85) 4 (7) 4 (7) 0 (0) 1 (2)
*Möguleg skor 1-5; hærra skor þýðir minni áhrif (betri líðan)
Vegna námundunar er mögulegt að samanlögð prósentutala sé ekki nákvæmlega 100
*Byggðar á gildum svörum
**Þessi kvarði (5 spurningar) var saminn af rannsakendum og tilheyrir því ekki upprunalega BSHS-B-spurningalistanum