Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 55

Læknablaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 55
L ÆKNABL AÐIÐ 2021/107 619 B R É F T I L B L A Ð S I N S Síðastliðinn áratug hefur ófremdarástand ríkt á Landspítala vegna fjölda bráðveikra sjúklinga sem ekki komast tímanlega á legudeildir og liggja því langdvölum á bráðamóttöku sjúkrahússins. Ýmsar ástæður liggja að baki en þyngst vegur ónógur fjöldi sjúkrarúma á Landspítala. Um síðustu aldamót var byrjað að fækka rúmum á spítalanum líkt og á flestum sjúkrahúsum Vesturlanda samhliða auk- inni áherslu á göngu- og dagdeildarþjón- ustu. En svo virðist sem ekki hafi verið tekið nægilegt tillit til fyrirsjáanlegrar fjölgunar aldraðra sem hófst í kringum síðustu aldamót og mun halda linnulaust áfram næstu áratugi. Hér verður leitast við að greina hve mörg bráðalegurými vantar á Landspítala til að mæta þörfum landsmanna fyrir sjúkrahúsvist og tryggja öryggi sjúklinga. Staða Íslands í samanburði við önnur Evrópulönd Frá aldamótum hefur Íslendingum fjölgað um 90 þúsund (30%) og þar af hefur 67 ára og eldri fjölgað um 18.500 (60%).1 Á sama tímabili hefur sjúkrarúmum fækkað um meira en 500 á Landspítala og hlið- stæð fækkun orðið á öðrum sjúkrahúsum landsins. Í dag eru á Íslandi einungis 2,85 sjúkrarúm á hverja 1000 íbúa,sem Skortur á legurými fyrir bráðveika á Landspítala Elías Sæbjörn Eyþórsson læknir og PhD, sérnámslæknir í svæfinga- og gjör- gæslulækningum, Landspítala Elísabet Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og MS, verkefnastjóri, hagdeild Landspítala Kristlaug Helga Jónasdóttir hjúkrunarfræðingur/hagfræðingur og MS, verk- efnastjóri, hagdeild Landspítala Runólfur Pálsson læknir, settur framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Landspítala; prófessor, læknadeild Háskóla Íslands er fækkun um 69% frá aldamótum er fjöldi sjúkrarúma var 9,1 á 1.000 búa.2,3 Rúmafjöldinn er nú 28% lægri en meðaltal annarra þjóða í vesturhluta Evrópu sem er 3,94 á 1000 íbúa.3 Hér er þó ekki öll sagan sögð því Ísland er um margt ólíkt öðrum Evrópuþjóðum, hvort sem horft er til stað- setningar, landfræðilegrar stærðar, fólks- fjölda eða íbúadreifingar. Í flestum öðrum löndum eru mörg stór sjúkrahús og þegar legurými fyllast tímabundið í álagstopp- um er lokað fyrir nýjum innlögnum og sjúklingar fluttir á nágrannasjúkrahús. Slíkt öryggisviðbragð er ekki til staðar á Íslandi og við erum því illa í stakk búin til að takast á við umfangsmikla sjúkdóms- faraldra eða stórslys. Fjöldi sjúkrarúma í íslenska heilbrigðiskerfinu verður að taka mið af þessu og ætti því hlutfallslega að vera meiri en hjá öðrum þjóðum í Evrópu. Hve mörg bráðasjúkrarúm vantar á Landspítala? Þörfina má meta út frá tölum í útgefnum starfsemisupplýsingum Landspítala. Fjórar klínískar þjónustueiningar á spít- alanum taka við 70% allra bráðainnlagna vegna líkamlegra veikinda og slysa full- orðinna. Þessar einingar eru lyflækninga- og bráðaþjónusta, hjarta- og æðaþjónusta, skurðlækningaþjónusta og krabbameins- þjónusta. Við kjöraðstæður þyrfti rúma- nýting þar að vera um 85% að meðaltali til að starfsemin gengi eðlilega fyrir sig og unnt sé að bregðast við tilfallandi álagstoppum.4 Meðalrúmanýting á þess- um einingum hefur verið of há í langan tíma, eða á bilinu 95-104%. Til samanburð- ar er rúmanýting á bráðasjúkrahúsum í Noregi, Frakklandi og Þýskalandi um 80% að meðaltali.5 Í október 2021 voru að jafnaði 277 sjúkl ingar inniliggjandi á áðurnefndum fjór um þjónustueiningum Landspítala. Til viðbótar dvöldu að meðaltali 19 sjúk- lingar á dag á bráðamóttökunni lengur en 24 klukkustundir. Ef stefnt yrði að því að enginn þyrfti að vera á bráðamóttökunni í svo langan tíma og meðalrúmanýting færi ekki upp fyrir 85% þyrfti 78 bráðarúm til viðbótar á legudeildir þessara fjögurra eininga spítalans. Þetta myndi þýða 29% fjölgun sjúkrarúma og samsvara opnun fjögurra nýrra legudeilda. Sambærilegir útreikningar leiða í ljós að 80 bráðalegu- rými skorti í október 2019 og 64 í október 2017 (tafla I). Ef sömu forsendur væru yf- irfærðar á allan spítalann þyrfti að fjölga legurýmum um 100. Lokaorð Það er sama með hvaða augum horft er á stöðu sjúkrahúsmála á Íslandi, við blasir kolsvört mynd. Við reiðum okkur á eitt þjóðarsjúkrahús á þéttbýlasta svæði landsins og annað minna sjúkrahús á Norðurlandi. Varla leikur vafi á að íslenska þjóðin vill búa við heilbrigðis- þjónustu sem er samanburðarhæf við nágrannaþjóðir okkar. Til að svo megi vera þarf að fjölga verulega legurýmum á Landspítala og eftir atvikum á öðrum sjúkrahúsum, ásamt því að leita nýrra lausna til að efla þjónustu við sjúka og aldraða sem búa við skerta færni. Ljóst er að ógjörningur er að fjölga sjúkrarúmum að því marki sem þörf krefur án þess að ráðist verði í fjárfestingar í heilbrigðiskerf- inu með framtíðarhagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi. Heimildir 1. Mannfjöldi eftir kyni og aldri 1841-2021. Hagstofa Íslands 2021. px.hagstofa.is/pxis/pxweb/is/Ibuar/Ibuar__mann- fjoldi__1_yfirlit__Yfirlit_mannfjolda/MAN00101.px - nóvember 2021. 2. Health Statistics in the Nordic Countries 2000. Nordic Medico-Statistical Committee (NOMESKO). Kaupmannahöfn 2002. 3. Hospital beds (indicator). OECD. oecd-ilibrary.org/soci- al-issues-migration-health/hospital-beds/indicator/eng- lish_0191328e-en - nóvember 2021. 4. Bed occupancy. NICE. nice.org.uk/guidance/ng94/ evidence/39.bed-occupancy-pdf-172397464704 - nóvember 2021. 5. Occupancy rate of curative (acute) care beds, 2009 and 2019 (or nearest year). OECD. oecd-ilibrary.org/social- issues migration-health/occupancy-rate-of-curative-acute- carebeds-2009-and-2019-or-nearest-year_9886c0af-en - nóvember 2021. Tafla I. Þörf fyrir viðbótarlegurými innan lyflækninga- og bráðaþjónustu, hjarta- og æðaþjónustu, skurðlækningaþjónustu og krabbameinsþjónustu Landspítala Tímabil Fjöldi sjúkrarúma Meðalfjöldi sjúklinga á sólarhring Rúmanýting % Meðalfjöldi sjúklinga sem dvaldi >24 klst. á bráðamóttöku Heildarfjöldi rúma sem þarf til að meðalnýting yrði 85% Heildarfjöldi bráðarúma sem skortir Október 2021 270 277 103 19 348 78 Október 2019 255 258 101 27 335 80 Október 2017 274 273 100 14 338 64
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.