Læknablaðið - 01.12.2021, Side 55
L ÆKNABL AÐIÐ 2021/107 619
B R É F T I L B L A Ð S I N S
Síðastliðinn áratug hefur ófremdarástand
ríkt á Landspítala vegna fjölda bráðveikra
sjúklinga sem ekki komast tímanlega
á legudeildir og liggja því langdvölum
á bráðamóttöku sjúkrahússins. Ýmsar
ástæður liggja að baki en þyngst vegur
ónógur fjöldi sjúkrarúma á Landspítala.
Um síðustu aldamót var byrjað að fækka
rúmum á spítalanum líkt og á flestum
sjúkrahúsum Vesturlanda samhliða auk-
inni áherslu á göngu- og dagdeildarþjón-
ustu. En svo virðist sem ekki hafi verið
tekið nægilegt tillit til fyrirsjáanlegrar
fjölgunar aldraðra sem hófst í kringum
síðustu aldamót og mun halda linnulaust
áfram næstu áratugi. Hér verður leitast
við að greina hve mörg bráðalegurými
vantar á Landspítala til að mæta þörfum
landsmanna fyrir sjúkrahúsvist og tryggja
öryggi sjúklinga.
Staða Íslands í samanburði við önnur
Evrópulönd
Frá aldamótum hefur Íslendingum fjölgað
um 90 þúsund (30%) og þar af hefur 67
ára og eldri fjölgað um 18.500 (60%).1 Á
sama tímabili hefur sjúkrarúmum fækkað
um meira en 500 á Landspítala og hlið-
stæð fækkun orðið á öðrum sjúkrahúsum
landsins. Í dag eru á Íslandi einungis
2,85 sjúkrarúm á hverja 1000 íbúa,sem
Skortur á legurými fyrir bráðveika á Landspítala
Elías Sæbjörn Eyþórsson
læknir og PhD, sérnámslæknir í svæfinga- og gjör-
gæslulækningum, Landspítala
Elísabet Guðmundsdóttir
hjúkrunarfræðingur og MS, verkefnastjóri, hagdeild
Landspítala
Kristlaug Helga Jónasdóttir
hjúkrunarfræðingur/hagfræðingur og MS, verk-
efnastjóri, hagdeild Landspítala
Runólfur Pálsson
læknir, settur framkvæmdastjóri meðferðarsviðs
Landspítala; prófessor, læknadeild Háskóla Íslands
er fækkun um 69% frá aldamótum er
fjöldi sjúkrarúma var 9,1 á 1.000 búa.2,3
Rúmafjöldinn er nú 28% lægri en meðaltal
annarra þjóða í vesturhluta Evrópu sem er
3,94 á 1000 íbúa.3 Hér er þó ekki öll sagan
sögð því Ísland er um margt ólíkt öðrum
Evrópuþjóðum, hvort sem horft er til stað-
setningar, landfræðilegrar stærðar, fólks-
fjölda eða íbúadreifingar. Í flestum öðrum
löndum eru mörg stór sjúkrahús og þegar
legurými fyllast tímabundið í álagstopp-
um er lokað fyrir nýjum innlögnum og
sjúklingar fluttir á nágrannasjúkrahús.
Slíkt öryggisviðbragð er ekki til staðar á
Íslandi og við erum því illa í stakk búin til
að takast á við umfangsmikla sjúkdóms-
faraldra eða stórslys. Fjöldi sjúkrarúma í
íslenska heilbrigðiskerfinu verður að taka
mið af þessu og ætti því hlutfallslega að
vera meiri en hjá öðrum þjóðum í Evrópu.
Hve mörg bráðasjúkrarúm vantar
á Landspítala?
Þörfina má meta út frá tölum í útgefnum
starfsemisupplýsingum Landspítala.
Fjórar klínískar þjónustueiningar á spít-
alanum taka við 70% allra bráðainnlagna
vegna líkamlegra veikinda og slysa full-
orðinna. Þessar einingar eru lyflækninga-
og bráðaþjónusta, hjarta- og æðaþjónusta,
skurðlækningaþjónusta og krabbameins-
þjónusta. Við kjöraðstæður þyrfti rúma-
nýting þar að vera um 85% að meðaltali
til að starfsemin gengi eðlilega fyrir sig
og unnt sé að bregðast við tilfallandi
álagstoppum.4 Meðalrúmanýting á þess-
um einingum hefur verið of há í langan
tíma, eða á bilinu 95-104%. Til samanburð-
ar er rúmanýting á bráðasjúkrahúsum í
Noregi, Frakklandi og Þýskalandi um
80% að meðaltali.5
Í október 2021 voru að jafnaði 277
sjúkl ingar inniliggjandi á áðurnefndum
fjór um þjónustueiningum Landspítala.
Til viðbótar dvöldu að meðaltali 19 sjúk-
lingar á dag á bráðamóttökunni lengur en
24 klukkustundir. Ef stefnt yrði að því að
enginn þyrfti að vera á bráðamóttökunni í
svo langan tíma og meðalrúmanýting færi
ekki upp fyrir 85% þyrfti 78 bráðarúm til
viðbótar á legudeildir þessara fjögurra
eininga spítalans. Þetta myndi þýða 29%
fjölgun sjúkrarúma og samsvara opnun
fjögurra nýrra legudeilda. Sambærilegir
útreikningar leiða í ljós að 80 bráðalegu-
rými skorti í október 2019 og 64 í október
2017 (tafla I). Ef sömu forsendur væru yf-
irfærðar á allan spítalann þyrfti að fjölga
legurýmum um 100.
Lokaorð
Það er sama með hvaða augum horft
er á stöðu sjúkrahúsmála á Íslandi, við
blasir kolsvört mynd. Við reiðum okkur á
eitt þjóðarsjúkrahús á þéttbýlasta svæði
landsins og annað minna sjúkrahús
á Norðurlandi. Varla leikur vafi á að
íslenska þjóðin vill búa við heilbrigðis-
þjónustu sem er samanburðarhæf við
nágrannaþjóðir okkar. Til að svo megi
vera þarf að fjölga verulega legurýmum
á Landspítala og eftir atvikum á öðrum
sjúkrahúsum, ásamt því að leita nýrra
lausna til að efla þjónustu við sjúka og
aldraða sem búa við skerta færni. Ljóst er
að ógjörningur er að fjölga sjúkrarúmum
að því marki sem þörf krefur án þess að
ráðist verði í fjárfestingar í heilbrigðiskerf-
inu með framtíðarhagsmuni þjóðarinnar
að leiðarljósi.
Heimildir
1. Mannfjöldi eftir kyni og aldri 1841-2021. Hagstofa Íslands
2021. px.hagstofa.is/pxis/pxweb/is/Ibuar/Ibuar__mann-
fjoldi__1_yfirlit__Yfirlit_mannfjolda/MAN00101.px -
nóvember 2021.
2. Health Statistics in the Nordic Countries 2000.
Nordic Medico-Statistical Committee (NOMESKO).
Kaupmannahöfn 2002.
3. Hospital beds (indicator). OECD. oecd-ilibrary.org/soci-
al-issues-migration-health/hospital-beds/indicator/eng-
lish_0191328e-en - nóvember 2021.
4. Bed occupancy. NICE. nice.org.uk/guidance/ng94/
evidence/39.bed-occupancy-pdf-172397464704 -
nóvember 2021.
5. Occupancy rate of curative (acute) care beds, 2009 and
2019 (or nearest year). OECD. oecd-ilibrary.org/social-
issues migration-health/occupancy-rate-of-curative-acute-
carebeds-2009-and-2019-or-nearest-year_9886c0af-en -
nóvember 2021.
Tafla I. Þörf fyrir viðbótarlegurými innan lyflækninga- og bráðaþjónustu, hjarta- og æðaþjónustu,
skurðlækningaþjónustu og krabbameinsþjónustu Landspítala
Tímabil Fjöldi sjúkrarúma
Meðalfjöldi
sjúklinga á
sólarhring
Rúmanýting
%
Meðalfjöldi sjúklinga
sem dvaldi >24 klst. á
bráðamóttöku
Heildarfjöldi rúma sem
þarf til að meðalnýting
yrði 85%
Heildarfjöldi bráðarúma
sem skortir
Október 2021 270 277 103 19 348 78
Október 2019 255 258 101 27 335 80
Október 2017 274 273 100 14 338 64