Læknablaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 50
614 L ÆKNABL AÐIÐ 2021/107
Bjarni Benediktsson, fjármálaráð-
herra, Davíð O. Arnar, yfirlæknir
hjartadeildar Landspítala, Jakob
Falur Garðarsson, framkvæmdastjóri
Frumtaka og Runólfur Pálsson,
settur framkvæmdastjóri með-
ferðarsviðs Landspítala, á málþingi á
Lyflæknaþingi 2021. Mynd/gag
Bjarni telur stjórn yfir
spítalanum til bóta
Gagn væri að faglegri stjórn milli heil-
brigðisráðuneytisins og yfirstjórnar
spít alans. Stjórn með mikla þekkingu
sem styddi spítalann í verkum sínum
og setti honum ákveðinn ramma. Þetta
sagði Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra á Lyflæknaþingi 2021. Útfærslan
skipti máli.
„Ég er ekki að tala um pólitíska
varðhunda. Ég er ekki að tala um
þverpólitíska stjórn heldur okkar
allra besta fólk í faginu og með rekstr-
arþekkingu sem gæti verið fram-
kvæmdastjórninni og forstjóranum
til stuðnings og aðhalds,“ sagði hann.
Davíð O. Arnar læknir tók undir þetta
og sagði að útvíkka mætti hugmyndina
í að einhvers konar fagráð væri heil-
brigðisráðuneytinu til stuðnings í að
skipuleggja þjónustuna í heild sinni.
„Ég held að allir geti verið sammála
um að heildarmyndin um hvernig eigi
að veita heilbrigðisþjónustu; hvar rétti
staðurinn er fyrir hvern og einn sjúk-
ling, er pínulítið óskýr,“ sagði Davíð.
Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra segir þjóðina hafa efni á
framúrskarandi heilbrigðiskerfi en
skoða þurfi hvernig fé sé nýtt
Nýta megi heilbrigðiskerfið
betur og auka samvinnu
Arna Guðmundsdóttir, kennslustjóri í lyf-
lækningum, benti að bæði heimilis læknar
og barnalæknar væru með þjónustu eftir
dagvinnutíma. Ekki lyflæknar.
„Hins vegar er fasti kostnaðurinn kom-
inn. Við rekum fyrirtæki okkar út í bæ og
borgum fasteignafélögum Regin og Eik
„Auðvitað hefur verið vilji til þess að ná
samningum en það er mjög óheppilegt
hversu langan tíma það hefur tekið. Von-
andi getur ný ríkisstjórn leitt þær viðræð-
ur til lykta sem allra fyrst,“ segir Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins og fjármálaráðherra síðustu fjögur ár,
um samningaviðræður ríkisins við sér-
fræðilækna. Læknablaðið talaði við Bjarna
eftir að hann sat málþing á Lyflæknaþingi
2021. Þingið var haldið í Hörpu 5.-6. nóv-
ember.
„Við höfum efni á því að bera okkur
saman við það sem best gerist,“ sagði
Bjarni um íslenska heilbrigðiskerfið á mál-
þinginu. „Það er vegna þess að þegar við
skoðum hagtölurnar framleiðum við Ís-
lendingar hvað mest allra þjóða í heimin-
um á mann. Stundum erum við á topp 5.
En aldrei neðar en topp 10 undanfarin ár,“
sagði Bjarni. „Það þýðir að við getum gert
kröfu um framúrskarandi opinbera þjón-
ustu; þar með talið heilbrigðisþjónustu.“
Umræðurnar fóru fram undir yfir-
skriftinni; Heilbrigðisþjónusta í kjölfar
heimsfaraldurs: hvernig höldum við
sjó? Runólfur Pálsson, settur fram-
kvæmdastjóri meðferðarsviðs og yfir-
læknir COVID-göngudeildar Landspítala,
stýrði pallborðinu. Davíð O. Arnar, fyrr-
um formaður Félags íslenskra lyflækna
og yfirlæknir hjartalækninga á Landspít-
ala, og Jakob Falur Garðarsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka frumlyfjafram-
leiðanda á Íslandi, Frumtökum, sátu fyrir
svörum ásamt fjármálaráðherra.
Arna Guðmundsdóttir
á Lyflæknaþingi 2021.
Mynd/gag
Arna vill lyflæknavakt
leiguna en lokum klukkan 5. Við erum
ekki með vaktþjónustu,“ benti hún á og
spurði hvort ekki væri hægt að semja við
lyflækna um slíka.
„Við höfum öll séð hvað þetta virkar
vel hjá hinum og getum gert þetta frá
mánudegi. Gætum við fengið svona
samning?“ spurði hún úr sal þegar rætt
var um verkaskiptingu innan heilbrigð-
iskerfisins.
Davíð sagði málið stundum hafa kom-
ist í umræðuna en þó ekki farið á flug.
„Við tölum oft um fráflæðisvandann á
spítalanum en ég held að það sé líka viss
aðflæðisvandi,“ sagði hann. Margt sem
þangað kæmi mætti leysa með einfaldari
hætti fyrr í ferlinu.
„Það verður að skoða hvaða verkefni
Landspítali sem þriðja stigs sjúkrahús á að
Lyflæknaþing 2021