Læknablaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 52
616 L ÆKNABL AÐIÐ 2021/107
B Ó K A D Ó M A R
er hann fluttist til Vest-
urheims.“ Ekki orð um
fangelsisvist.
Nú er komin út bókin
Læknirinn í Englaverksmiðj-
unni. Saga Moritz Halldórs-
sonar eftir Ásdísi Höllu
Bragadóttur. Í formála rek-
ur höfundur persónulegar
ástæður þess að hún fékk
áhuga á Móritz og segir
svo: „Forvitnin rak mig í
umfangsmikla heimildaleit
í fjórum löndum. Smám
saman fann ég gögn sem vörpuðu ljósi á
lífshlaup Moritz og hvers vegna þegjandi
samkomulag var um að opinbera ekki þær
miklu raunir sem hann lenti í.“
Þetta er lipurlega skrifuð heimilda-
skáldsaga en það sem heillaði mig var
aðalpersónan Moritz sem er margslunginn
og áhugaverður.
Moritz Hans Edvards Halldórsson
fæddist í Reykjavík árið 1854. Faðir hans
var Halldór Kr. Friðriksson yfir kennari,
bæjarfulltrúi og alþingismaður og móðir
hans, sem var dönsk, ræktaði matjurtir
þar sem nú er Alþingisgarðurinn. Guð-
faðir drengsins var Trampe greifi og
má því segja að hann hafi fæðst inn í
íslenskan aðal. Að loknu námi í Lærða
skólanum hélt hann til Hafnar þar sem
hann las læknisfræði og var virkur í stúd-
Læknirinn í
Englaverksmiðjunni
Saga Moritz Halldórssonar
Ragnheiður Ingibjörg Bjarnadóttir
kvensjúkdómalæknir
Fyrst heyrði ég af lækninum Móritz Hall-
dórssyni þegar ég las skáldsögu Helga
Ingólfssonar Þegar kóngur kom (2009).
Sögumaðurinn er skólapilturinn Móri eða
Moritz Halldórsson. Sagan byrjar þegar
ung kona finnst myrt í Reykjavík sum-
arið 1874 og fylgjast Móri og vinir hans
úr Lærða skólanum með Jóni Hjaltalín
landlækni kryfja hana. Í sögulok segir
meðal annars: „Ef til vill er hér líka komin
skýringin á ógæfu Moritzar Halldórssonar
sem tók upp á því sem velmegandi læknir
í Kaupmannahöfn að hjálpa portkonum
að leysast við höfn sína, hlaut fyrir vikið
fangelsisdóm og flutti í kjölfarið vestur
um haf með fjölskyldu sína“. Áhugi minn
var vakinn en rannsóknir mínar urðu
ekki meiri en þær að ég fletti Moritz upp
í Læknatalinu. Þar stendur undir kafl-
anum um störf hans: „Starfandi læknir í
Kaupmannahöfn frá jan. 1885 til júní 1892
entapólítík. Þar var hann heima-
gangur hjá Jóni Sigurðssyni og
Ingibjörgu konu hans og var
áhugasamur um sjálfstæðis-
baráttu Íslendinga. Hann var
læknir fátæks fólks á Norður-
brú og vildi bæta heilsu þeirra,
ekki síst kvenna.
En hvernig stóð á því að
þessi velviljaði og vel tengdi
læknir komst í kast við lögin,
hlaut dóm og var fangelsaður?
Bókin segir frá því og svo frá
útlegð hans í Vesturheimi
eftir að hann var náðaður af konungi með
því skilyrði að hann stigi aldrei aftur fæti
á danska grund, þar með talið á Ísland.
Sagan fjallar um lækni sem dregst inn
í pólitísk átök og kemst á forsíður blað-
anna. Hún höfðar til okkar tíma þegar
fjöldagrafir barna hafa fundist við mun-
aðarleysingjahæli og verið er að skerða
rétt kvenna til þungunarrofs beggja vegna
Atlantsála. Moritz taldi sig ekki hafa gert
neitt rangt heldur væri löggjöfin ranglát.
Það kallast á við bréf læknisins Alan Braid
í Washington Post í haust, þar sem hann ját-
ar að hafa framkvæmt þungunarrof eftir 6
vikna meðgöngu, enda mundi hann þá tíð
að konur dóu í kjölfar ólöglegra aðgerða.
Það er líka harmur Moritzar í sögunni að
þurfa að lokum að hlíta lögunum á kostn-
að heilsu og lífs kvenna.
11.000 volt – þroskasaga Guðmundar Felix
Skrásett af Erlu Hlynsdóttur, Sögur 2021
Jóhann Róbertsson
bæklunarlæknir
Íslenska þjóðin hefur fylgst með Guð-
mundi Felix frá því hann slasaðist í
janúar 1998 og þessi saga því verið að
gerast fyrir framan okkur. Undirtitillinn
þroskasaga er réttnefni. Frásögnin er eig-
inlega í ,,Maður er nefndur“ stíl þar sem
hann rekur lífshlaup sitt. Inn í það skotið
stuttum umsögnum samferðafólks og
gögnum, svo sem úr málaferlum og fleiru.
Þarna eru lýsingar frá gömlu Reykjavík
um frjálsræðið sem fylgdi því að alast upp
til dæmis í Kleppsholtinu, ævintýragirni
og tilraunamennsku unglingsáranna.
Lýsingar á ungu fólki að finna sér stefnu í
lífinu, mynda fjölskyldu og svo framvegis.
Síðan lendir hann í þessu grafalvarlega
slysi 26 ára gamall, sem útaf fyrir sig er
ótrúlegt að hann hafi lifað af. Eins og
margir Íslendingar þá þekkir maður til
sögu hans úr fjölmiðlum. Samt er ým-
islegt sem kemur á óvart og þá einkum
tengt baráttu hans við alkóhólisma. Hann
átti eitthvað í þeirri glímu fyrir slysið en
þó á allt öðrum skala ítrekað eftir það.
Finnast mér lýsingar hans á þeirri glímu
um margt áhugaverðastar í frásögninni.
Hann nálgast þann þátt af einlægni og
ósérhlífni. Áherslur sem hann leggur á
sjálfsskoðun, það að maður hefur alltaf
eitthvert val, kærleika og að losa sig við
Eftir Ásdísi Höllu Bragadóttur,
Veröld 2021
Braid A. Why I violated Texasī extreme abortion ban. Washington Post 2021/09/18.