Læknablaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 9
L ÆKNABL AÐIÐ 2021/107 573
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Þórólfur Guðnason
sóttvarnalæknir
thorolfur.gudnason@landlaeknir.is
Að mínu mati eru tvær meginleiðir í boði
fyrir okkur til að komast út úr covid-
krísunni. Annars vegar þurfum við að fá
virka lyfjameðferð gegn veirunni og/eða
hins vegar þurfum við að ná hjarðónæmi
í samfélaginu.
doi 10.17992/lbl.2021.11.663
Baráttan á Íslandi við COVID-19 hefur nú staðið í um
22 mánuði og sér ekki fyrir endann á henni enn sem
komið er. Strax í byrjun faraldursins var ákveðið að
helstu markmið sóttvarnaráðstafana yrðu að beita
ekki of íþyngjandi aðgerðum en á sama tíma að
hamla útbreiðslu faraldursins það mikið að hann
yrði ekki of íþyngjandi fyrir heilbrigðiskerfið. Með
þessari nálgun var hins vegar ljóst að það myndi
líða langur tími þar til að hjarðónæmi næðist og far-
aldurinn dæi út.
Hjarðónæmi er náð þegar stór hluti samfélagsins
er orðinn ónæmur fyrir smitsjúkdómi þannig að smit
milli manna verður ólíklegt. Þannig verður allt sam-
félagið ónæmt fyrir sjúkdómnum en ekki einungis
þeir sem eru ónæmir sem einstaklingar. Ekki er ljóst
hversu stórt hlutfall þjóðarinnar þarf að smitast til
að hjarð ónæmi náist en talið hefur verið að það sé
um 60-80%. Margir þættir hafa áhrif á hjarðónæmið
eins og hversu virkt ónæmi myndast eftir sýkingu
eða bólusetningu, hversu lengi ónæmið varir og
hvort nýir stofnar kórónaveirunnar (SARS-CoV-2)
koma fram sem fyrra ónæmi verndar ekki gegn.
Miklar vonir hafa verið bundnar við að þeir sem
smitast af COVID-19 öðlist varanlegt ónæmi gegn
endursmiti. Hér á landi hafa einungis 27 manns
endursýkst af 15.321 sem greinst hafa með COVID-19
(0,2%) sem sýnir að gott ónæmi myndast við nátt-
úrulegt smit. Ekki er vitað hversu lengi það endist.
Í lok árs 2020 var byrjað að bólusetja gegn kórónu-
veirunni og bentu fyrstu rannsóknir til þess að
gott ónæmi myndi skapast í kjölfarið. Raunin varð
ekki sú því með tilkomu delta-afbrigðis veirunnar
varð vernd gegn smiti einungis um 50% eftir tvær
sprautur en vernd gegn alvarlegum veikindum um
90%. Þetta er ástæða þess að faraldurinn hefur verið
í mikilli uppsveiflu þrátt fyrir að tekist hafi að full-
bólusetja um 76% landmanna og 89% allra 12 ára og
eldri. Ljóst er því að hjarðónæmi mun ekki nást með
núverandi fyrirkomulagi bólusetninga.
Þó að óhætt sé að fullyrða að bólusetning gegn
COVID-19 hafi skilað góðum árangri hérlendis,
erum við þrátt fyrir ýmsar takmarkanir að sjá það
mörg smit að alvarleg veikindi eru spítalakerfinu og
ýms um samfélagslegum innviðum nánast ofviða.
Hvernig komumst við þá út úr COVID-19? Að
mínu mati eru tvær meginleiðir í boði fyrir okkur
til að komast út úr covid-krísunni. Annars vegar
Hvernig komumst við út úr COVID-19?
þurfum við að fá virka lyfjameðferð gegn veirunni
og/eða hins vegar þurfum við að ná hjarðónæmi í
samfélaginu.
Nú eru vonir bundnar við að fljótlega komi á
markað tvö ný lyf við COVID-19. Lyfin eru frá lyf-
jafyrirtækjunum Merck (Molnupiravir) og Pfizer
(Paxlovid) og eru nú metin hjá Lyfjastofnun Evrópu
(EMA). Í skoðun er hvort sækja eigi um undanþágu
fyrir notkun lyfjanna hér á landi þannig að ekki
þurfi að bíða eftir markaðsleyfi en ljóst er að lyfin
munu verða dýr og einungis í boði fyrir þá sem lík-
legt er að veikist alvarlega af COVID-19. Einnig á eft-
ir að koma í ljós hversu mikil virkni lyfjanna raun-
verulega er og hvort þau eru laus við aukaverkanir.
Okkar helsta von er sú að við náum víðtæku
ónæmi í samfélaginu sem stöðva mun samfélagsleg
smit. Ef við ætlum að ná hjarðónæmi
með náttúrulegri sýkingu mun það
taka 1-2 ár ef miðað er við að dagleg
smit verði ekki fleiri en 100. Allan þann
tíma þyrftum við að búa við töluverðar
takmarkanir til að missa ekki tökin á
fjölda smita og jafnvel 100 smit á dag
væru of mörg fyrir okkar spítalakerfi
og samfélag.
Hvað þá með bólusetningu? Mun
okkur takast að ná hjarðónæmi með bólusetningu?
Ljóst er að hjarðónæmi mun ekki nást með tveim-
ur spraut um af núverandi bóluefnum fyrir hvern
ein stakling. Örvunarbólusetning 5-6 mánuðum
eftir grunn bólusetningu (skammt tvö) gefur hins
vegar góðar vonir um að með henni muni nást gott
ónæmi sem hindra muni samfélagslega útbreiðslu.
Því er mikilvægt að í fyrsta lagi takist að bólusetja
sem flesta með grunnbólusetningu og í öðru lagi að
flestir/allir þiggi örvunarbólusetninguna.
Þannig tel ég raunhæfa möguleika á því að okkur
muni takast á næstu vikum og mánuðum að komast
að mestu út úr COVID-19. Hins vegar er óljóst hvort
reglulega muni þurfa að gefa örvunarskammta í
framtíðinni eða hvort þörf verði á nýjum bóluefnum.
Eitt er þó ljóst að baráttunni við COVID-19 mun
ekki ljúka fyrr en tekist hefur að vinna bug á faraldr-
inum í heiminum öllum en það getur tekið nokkur
ár. Við þurfum því að vera tilbúin til að beita ýmis
konar aðgerðum á næstu árum í samræmi við þróun
faraldursins hér á landi og annars staðar.
Þórólfur Guðnason
MD, PhD
Chief Epidemiologist
Centre for Health Security and
Communicable Disease Control
Directorate of Health
How can we get out of
COVID-19?