Ljósmæðrablaðið - 01.12.2021, Page 8
8 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2021
Ég reyndi að vefa. Sonur minn var 5
mánaða og ég var með fæðingarþung-
lyndið mitt og gommsu af garni inni
á klósetti um miðja nótt, af því þar var
besta ljósið og satt besta að segja, eini
staðurinn þar sem ég gat átt mig sjálf í
eitt augnablik. Mér leið eins og ég væri
að drukkna og það eygði ekki í land.
Þræðirnir - um tíma - voru það eina
sem héldu mér gangandi. Mjög fljótlega
áttaði ég mig á því að ég væri ekki nógu
þolinmóð né skipulögð til þess að fá fylli
mína í vefnaði.
Þá uppgötvaði ég hina heitt elskuðu
Oxford Punch nál sem ég nota í verkum
mínum í dag. Aðferðin líkist helst flosi.
Myndefnið er feminískt og miðillinn kall-
ast á við arfleifð hefðbundinnar kvenna-
vinnu. Sjálfræði er undirtónn þeirrar
myndlistar sem ég vann á þessu tímabili.
Sjálfræði kvenna yfir eigin líkama. Þess
skal getið að þetta sjálfræði gerði mér
einnig kleift að eiga bæði börnin mín
heima með ómetanlegri aðstoð ljósmæðra
sem leyfðu mér að stýra ferðinni. Í dag
vinn ég að mestu með textíl, pastelliti og
skúlptúra sem mér finnst mynda áhuga-
vert samtal. Það gerist ekki oft þessa
daga að ég vinni verk mín inni á klósetti.
Nú þegar ég hef stígið ölduna einu sinni,
ef ekki tvisvar, þá veit ég með vissu að
neyðin kennir naktri konu að spinna.
ONE TIT WONDER
F O R S Í Ð A N
NÁMS- OG STARFSFERILL
Margrét Rut Eddudóttir er menntaður sjúkraliði og útskrifaðist með BA gráðu úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið
2010. Nýlega flutti hún heim frá San Francisco en hún hefur þó haldið árlegar sýningar heima á sumrin síðan árið 2014. Núna
í desember 2021 útskrifast hún úr Tækniskólanum með skipstjóraréttindi á 15 metra smáskip. Bindur hún vonir sínar við að
sigla um höfin blá eftir áramót. Síðustu einkasýninguna hélt Margrét hjá Gallerí Fold í september árið 2020 og verður hún
aftur með sýningu þar sumarið 2022.
Margrét Rut Eddudóttir,
listakona