Ljósmæðrablaðið - 01.12.2021, Page 14
14 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2021
Ljósmóðirin Lesley Page kom til
Íslands um miðjan október til að taka
við viðurkenningu sem heiðursdoktor
í ljósmóðurfræði við Háskóla Íslands.
Þetta var í tilefni 25 ára afmælis
ljósmóðurnáms og 110 ára afmælis
Háskólans.
Við flutning náms í ljósmóðurfræði
á háskólastig var leitað til Lesley um
ráðgjöf, enda hún þá þekkt í ljós-
mæðraheiminum, fyrsti prófessorinn í
ljósmóðurfræði á Bretlandi og ein af
aðalhöfundum skýrslunnar Changing
Childbirth sem kom út í Bretlandi
1993, en þar var lögð áhersla á sjálf-
ræði kvenna og samfellda umönnun
- að vera við stjórnvölinn um val á
barneignarþjónustu. Allt eru þetta kunnugleg hugtök sem liggja
til grundvallar námskrá í ljósmóðurfræði og hugmyndafræði
íslenskra ljósmæðra.
Lesley gaf svo jákvæða umsögn um nýju námskrána og kom
til Íslands árið 1998, en það ár útskrifuðust fyrstu ljósmæðurnar
frá Háskóla Íslands. Hún talaði þá á ráðstefnu ljósmæðra Vakning
ljósmóðurfræðinnar: framtíðin, meðal annars um hugmyndafræði
og gagnreynda þekkingu í ljósmóðurstarfi. Annar aðalfyrirlesari
á þeirri ráðstefnu var hinn þekkti félagsmannfræðingur um barn-
eignir og heilsu kvenna, Sheila Kitzinger. Aftur kom Lesley og
hélt aðalfyrirlestur ráðstefnu Ljósmæðrafélagsins í tengslum við
alþjóðadag ljósmæðra 5. maí, 2017, undir heitinu Ljósmæður,
mæður og fjölskyldur, í sambandi allt lífið. Segja má að Lesley sé
Íslandsvinur ljósmæðra og það er mikill heiður fyrir okkur að hún
sé nú í okkar hópi sem heiðursdoktor í ljósmóðurfræði við okkar
skóla.
Kynni undirritaðrar og Lesley eru þó nokkuð löng eða rúm 25 ár. Við
hittumst fyrst í London árið 1995 en tilgangurinn með fundi okkar var
að fræðast og ræða uppbyggingu náms í ljósmóðurfræði á háskólastigi.
Seinna varð Lesley leiðbeinandi minn í doktorsnámi sem ég lauk 2006
en við höfum haldið sambandi síðan. Þetta er því ekki okkar fyrsta samtal
um ljósmóðurfræði, höfum oft áður rætt um hana, hugmyndafræði og
ljósmóðurþekkingu og áhrifin á barneignarþjónustu og samfélagið.
Við byrjum á að ræða breytingar í barneignarþjónustu sem hafa orðið
síðustu áratugina á Íslandi og á alþjóðavísu. Ég spyr hvert hennar álit sé á
stöðunni í dag? Lesley sagðist fyrst vilja taka fram hvað hún væri ánægð
með að vera komin aftur til Íslands og að hún þakkaði mjög mikið fyrir
þennan mikla heiður sem henni væri sýndur. Þegar hún horfi til stöð-
unnar á Íslandi væri ljóst að við byggjum við mikil forréttindi og værum
velferðarríki, sem endurspeglaðist m.a. í árangri í barneignarþjónustunni,
sem væri með því besta í heiminum ólíkt stöðunni víða annars staðar.
Þetta ætti t.d. við um lágan ungbarna- og mæðradauða og keisaratíðni.
Að sama skapi væru önnur inngrip eins og framköllun fæðinga og mænu-
rótardeyfingar að aukast sem gefur til kynna að eðlilegum fæðingum fari
fækkandi.
Við erum sammála um að þegar staðan er almennt svona góð sé
skiljanlegt að flestir telji að ekki sé þörf á miklum breytingum. Það
er þó ljóst segir Lesley að það, er ekki nóg að ræða tíðnitölur, mann-
úðleg umönnun og reynslan af barneignarþjónustunni er það sem
skiptir máli.
Lesley hefur einmitt í sínum fræðilegum störfum unnið að því að efla
mannúðlega umönnun og lagt áherslu á að framtíð ljósmæðrahjálpar
ætti að miðast við að vernda hina eðlilegu fæðingu til að bjarga og þróa
hágæða barneignarþjónustu, bæði í þróunarlöndum þar sem fátækt ríkir
og í velmegun hins tæknilega vestræna heims. Hún segir að það gleym-
ist stundum, þegar við tölum um öryggi og tíðni eðlilegra fæðinga, að
það að fæða barn sé mikilvæg reynsla sem umbreytir okkur. Fæðingar-
reynslan og aðlögunin að verða móðir eða annað foreldri er grundvöllur
fyrir ást og kærlega milli barns og foreldra.
Lesley segir grunninn að hágæða barneignarþjónustu vera til staðar hér
Íslandi en það sem vanti sé samfellt þjónustuform, að konan fái samfellda
þjónustu í gegnum barneignarferlið á meðgöngu, í fæðingu og í sængur-
legu, frá sömu ljósmóður, í samstarfi við annað heilbrigðisfagfólk. Rann-
sóknir segja okkur að slíkt form bætir útkomu barneignarþjónustu og
það stuðlar líka að jákvæðri reynslu og sátt með þjónustuna. Umönnunin
byggir þá á því að ljósmóðir eða hópur ljósmæðra kynnist konum og
fjölskyldum þeirra vel yfir langan tíma með því að mynda samband sín
á milli. Þarna er mikilvægt að rannsaka áhrifin einnig á konur og fjöl-
skyldur sem minna mega sín, lifa við fátæktarmörk, eru af ólíkri menn-
ingu, jafnvel á flótta og eiga við marvísleg heilsufars- og félagsleg vanda-
mál að stríða. Aðstæður á Íslandi hafa einmitt breyst síðustu áratugina og
nú eru til dæmis um 20 % barnshafandi kvenna á Íslandi með erlendan
bakgrunn.
Þetta tengist líka sögulegum hefðum þar sem ljósmæður hafa tekið
þátt í samfélaginu og unnið með konum, tengst þeim á margvíslegan hátt
og mætt þörfum þeirra - af næmni. Þetta er að veita þjónustu byggða
á gagnreyndri þekkingu, samhæfa umönnun, oft í þverfaglegu samstarfi.
Vera faglegur vinur og styðja við sjálfstætt, upplýst val í fæðingarhjálp-
inni, t.d. þegar tekin er ákvörðun um vatnsfæðingu, vera á fjórum fótum
SAMTAL UM LJÓSMÓÐURFRÆÐI
Lesley Page heiðursdoktor í ljósmóðurfræði við Háskóla Íslands
F R É T T I R
Helga Gottfreðsdóttir, námsbrautarstjóri, Jón Atli Benediktsson, rektor, Lesley
Page, heiðursdoktor, Herdís Sveinsdóttir deildarforseti og Inga Þórsdóttir, forseti
heilbrigðisvísindasviðs.