Ljósmæðrablaðið - 01.12.2021, Síða 18
18 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2021
sama dag fundið fyrir verkjum í kviðnum. Hún ákvað að fara á
hákarlaveiðarnar og með í þeim leiðangri voru einnig þau Sveinn
Dagsson bóndi á Felli 47 ára, sonur hans Dagur 23 ára á sama bæ,
Rannveig Jónsdóttir vinnukona á Krossnesi, önnur ónafngreind
kona og svo barnsfaðir Jófríðar og húsbóndi hennar sem jafnframt
var formaður á bátnum Magnús Jónsson 25 ára.
Á miðjum hákarlaveiðum fann Jófríður að barnið vildi í heim-
inn. Sat Rannveig vinnukona yfir henni á meðan hún fæddi stúlku
úti á opnum hákarlabát á Atlantshafi. „Bóndi fór úr skinnpeysu
sinni og var peysan „látin utan um barnið“. Var síðan haldið í land
með Jófríði og barnið. Engum sögum fer af því hvort hákarl hafi
verið með um í togi.
Þegar í land var komið var farið með Jófríði og barnið hennar
til Magnúsar Guðmundssonar hreppstjóra á Finnbogastöðum þar
sem hún var skírð. Fæðing litlu Guðrúnar og skírn hennar er stað-
fest í kirkjubók fyrir Árnessókn. Jófríður móðir hennar var ógift
en faðir hennar, Magnús húsbóndi var kvæntur og átti eiginkona
hans von á barni þetta sama ár, 1848. Hann eignaðist annað stúlku-
barn, Guðlaugu með eiginkonu sinni. Bæði börnin hans, Guðrún
sem hann átti með vinnukonu sinni, Jófríði og Guðlaug sem hann
átti með eiginkonu sinni, náðu aðeins að verða rúmlega ársgamlar.
Guðrún, sem fæddist í hákarlalegunni lést á bænum Ingólfsfirði
þann 19. mars 1849 úr „andarteppu“ og Guðlaug lést 29. apríl
1849 af völdum „lærmeins“ á heimili foreldra sinna, Krossnesi.
Erla Dóris Halldórsdóttir,
sagnfræðingur og hjúkrunarfræðingur.
Á hákarlaveiðum fæddist stúlkubarn, Guðrún þann 24. febrúar árið 1848. Heimild
myndar: Héraðsskjalasafn Austur-Húnavatnssýslu, item 1152. Ljósmyndari: Arnór
Egilsson.
Hér sést til ræningjaskipa í Vestmannaeyjum. Tölvugerð mynd eftir Magnús Þorsteinsson
úr heimildarmyndinni Tyrkjaránið (2002).