Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2021, Qupperneq 32

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2021, Qupperneq 32
32 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - DESEMBER 2021 FÆÐINGARSTELLINGAR KVENNA Á ÍSLANDI ÁRIN 2012-2018 OG HELSTU ÁHRIFAÞÆTTIR Lýðgrunduð ferilrannsókn R I T R Ý N D G R E I N Bakgrunnur: Fæðingarstelling kvenna getur haft áhrif á fram- gang fæðingar og fæðingarreynslu þeirra. Þættir sem hafa áhrif á fæðingarstellingu eru margir s.s. menning fæðingarstaðar, aldur konu og fjöldi fyrri fæðinga. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna í hvaða stellingum konur fæða á Íslandi ásamt því að skoða tengsl ýmissa bakgrunnsbreyta kvennanna, notkun utanbastsdeyf- ingar og fæðingarstaðar við fæðingarstellingu. Aðferð: Rannsóknin var lýðgrunduð ferilrannsókn, byggð á gögnum úr Fæðingaskrá. Úrtakið voru allar konur sem fæddu einbura í höfuð- stöðu um fæðingarveg án áhalda á árunum 2012-2018, alls 20.870 fæðingar. Fæðingarstellingar voru skilgreindar láréttar og uppréttar. Til láréttra stellinga töldust á hlið, hálfsitjandi, hálfsitjandi með fætur í fótstigum, í stoðum og liggjandi á baki. Til uppréttra stellinga töldust fæðingastóll, á hnjám í uppréttri stöðu, á fjórum fótum og standandi staða. Við greiningu gagna var reiknaður fjöldi og hlutfall af heild skráðra fæðingarstellinga, gerðar krosstöflur og kí-kvaðrat próf og var marktækni miðuð við 95% marktektarmörk (p <0.05). Niðurstöður: Alls voru 16.064 fæðingarstellingar kvenna skráðar eða 76,9% úrtaks. Meðalaldur frumbyrja var 26 ár og meðalaldur fjölbyrja 31 ár. Á tímabilinu fæddu 91,0% kvenna í láréttri fæðingarstellingu. Algengasta stellingin var hálfsitjandi staða (58,7%) og næstalgeng- ust var liggjandi á baki (12,9%). Fjölbyrjur og konur eldri en 39 ára fæddu frekar í uppréttri fæðingarstellingu (12,0% og 14,8%), saman- borið við frumbyrjur (4,7%, p <0.001) og konur 25-29 ára (7,0%, p <0.001) og konur með erlent ríkisfang fæddu frekar í láréttum stell- ingum (92,4%) samanborið við íslenskar konur (90,8%, p <0.001). Þær konur sem fæddu á fæðingarstöðum flokkuðum A og B fæddu í 91,6% tilvika í láréttum stellingum og konur sem voru með utan- bastsdeyfingu voru oftar í hálfsitjandi stellingu (65,8%), samanborið við þær konur sem fæddu án deyfingar (54,3%, p <0.001). Ályktun: Konur hér á landi fæða oftast í láréttum stellingum. Tengsl eru milli lægri aldurs, að vera frumbyrja, búsetu á höfuðborgarsvæð- inu, að vera ekki í sambúð/gift, að vera ekki í námi/starfi, með erlent ríkisfang, að fæða á fæðingarstað A eða B og notkun utanbastsdeyf- ingar, og að fæða í láréttri stellingu. Lykilorð: Fæðingarstelling, barnshafandi konur, upplýst val, ljós- móðurfræði. Background: Women´s birth positions can affect the progress of childbirth and women´s birth experience. There are many factors that affect birth positions, e.g. culture of the birthplace, woman‘s age and parity. We aimed to study Icelandic women´s birth positions and relationship between women´s background variables, epidural analgesia and place of birth with birth position. Method: The study was a population-based cohort study with data from the Birth Registry in Iceland. The sample was women who gave birth vaginally to a single child in vertex position, without instruments in the years 2012-2018, a total of 20.870 births. Birth positions were defined supine and upright. Supine position included lying on the side, semi-recumbent, semi-recumbent with feet in the steps, lithostomy and lying on the back. Upright position included a birthing chair, on knees in an upright position, on all fours and a standing position. The proportion and frequency of birth positions, cross-tabulations and chi-square tests were used to calculate and analyze the data and significance was based on a 95% significance level (p <0.05). Results: A total of 16.064 birth positions were registered, or 76,9% of the sample. The mean age of primiparas were 26 years and 3 1 years among multiparas. During the study period, 91,0% of women gave birth in a supine position. The most common position was a semi-recumbent (58,7%) and the next most common position was lying on the back (12,9%). Multigravidas and women more than Embla Ýr Guðmundsdóttir, Aðjúnkt við námsbraut í ljósmóður- fræði og doktorsnemi við Háskóla Íslands Elfa Lind Einarsdóttir, MS í ljósmóðurfræði frá námsbraut í ljósmóðurfræði vorið 2021 Helga Gottfreðsdóttir, Prófessor í ljósmóðurfræði við H.Í. og forstöðumaður fræðasviðs á Landspítala TENGILIÐUR: eyg9@hi.is

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.