Bændablaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. september 2022
FRÉTTIR
www.vallarbraut.is vallarbraut@vallarbraut.is S-4540050
ÞAÐ ER BARA SOLIS
SOLIS 26 HST
Með vökvaskiptingu
Verð:1.900.000+vsk
Með ámoksturstækjum
2.640.000+vsk
SOLIS 26
Beinskipt
Verð:1.620.000+vsk
Með ámoksturstækjum
2.240.000+vsk
SOLIS 16
Beinskipt
Verð:1.250.000+vsk
Samtök fyrirtækja í landbúnaði
(SAFL) voru stofnuð í mars
síðastliðnum og tóku formlega
til starfa í júníbyrjun. Þá voru
samtökin jafnframt formlega
kynnt til sögunnar í fjölmiðlum
og Margrét Gísladóttir ráðin
framkvæmdastjóri.
Í sumar hefur lítið frést af störfum
þeirra en að sögn Margrétar hefur
tíminn verið nýttur til að kynna betur
samtökin fyrir hagsmunaaðilum í
landbúnaði og stjórnvöldum.
Hún segir að innan samtakanna
hafi einnig mikil áhersla verið lögð
á að skoða leiðir til að leiðrétta
þann mikla aðstöðuhalla sem
íslenskur landbúnaður býr við í
samanburði við önnur ríki í Evrópu,
til dæmis varðandi samkeppnis- og
tollaumhverfi.
Margrét segir mikilvægt fyrir
samtökin að taka þátt í samtali
sem nú á sér stað um framtíð
landbúnaðar á Íslandi og þess vegna
sé nauðsynlegt að kynna samtökin
vel á þessum tímapunkti. „Það er
mikilvægt að þegar verið er að ræða
málefni og hagsmuni landbúnaðarins
þá séu fyrirtækin þátttakandi í því
samtali. Þannig nær samtalið til
allrar virðiskeðjunnar. Tollvernd,
tollaeftirlit og samkeppnisumhverfið
eru dæmi um brýn hagsmunamál
fyrir alla þá aðila sem tengdir eru
íslenskum landbúnaði. Af mörgu
er að taka og ljóst að mikil vinna er
fram undan til að skapa íslenskum
landbúnaði sambærilega umgjörð og
er í þeim ríkjum sem við viljum bera
okkur saman við,“ segir hún.
Fulltrúar sjö fyrirtækja í stjórn
Sigurjón R. Rafnsson, aðstoðar-
forstjóri Kaupfélags Skagfirðinga,
er formaður SAFL, en fulltrúar sex
annarra fyrirtækja í landbúnaði sitja
í stjórninni; Ágúst Torfi Hauksson,
Kjarnafæði Norðlenska, Eggert
Árni Gíslason, Matfugli, Eyjólfur
Sigurðsson, Fóðurblöndunni,
Gunnlaugur Karlsson, Sölufélagi
garðyrkjumanna, Pálmi Vilhjálmsson,
Mjólkursamsölunni, og Steinþór
Skúlason, Sláturfélagi Suðurlands.
Margrét segir að mikilvægt sé að
fyrirtæki í landbúnaði eigi aðild að
hagsmunasamtökum sem geta verið
í forsvari gagnvart stjórnvöldum í
málum sem snerta þeirra hagsmuni.
„Fyrirtæki innan samtakanna
eiga sameiginlegra hagsmuna að
gæta þó þau starfi í ólíkum greinum
landbúnaðarins. Til að tryggja
aðkomu ólíkra greina samanstendur
stjórn samtakanna af fulltrúum
frá félagsmönnum sem starfa við
framleiðslu á rauðu kjöti, hvítu kjöti,
mjólk, grænmeti og fóðri og er það
bundið í samþykktir samtakanna.
Samstarf við Bænda-
samtök Íslands
Á árinu 2020, við endurskipulagningu
á félagskerfi landbúnaðarins innan
Bændasamtaka Íslands, voru uppi
hugmyndir um að slík samtök
gætu mögulega átt einhvers konar
aukaaðild að nýjum samtökum
bænda, með takmarkaðri aðkomu
að Búnaðarþingi. Slíkt fyrirkomulag
á sér fyrirmynd til að mynda í
Danmörku. Í ályktun Búnaðarþings
2020 var lögð áhersla á að
félagskerfið yrði til framtíðar byggt
á tveimur meginstoðum; bændum og
landbúnaðartengdum fyrirtækjum.
„Við höfum lagt áherslu á
að fyrirtæki í landbúnaði verði
virkur þátttakandi í samtalinu um
starfsumhverfi landbúnaðarins, enda
mikilvægur hlekkur í virðiskeðjunni.
Við höfum verið í góðum
samskiptum við Bændasamtökin
enda ljóst að fjölmörg hagsmunamál
félagsaðila hvorra samtaka fyrir sig
eru sameiginleg.
Þar má nefna tollamál,
samkeppnismál, mikilvægi þess að
aðlaga reglugerðir að íslenskum
aðstæðum og fleira mætti nefna.
Þannig eru miklir möguleikar
á að sameina krafta þessara
tveggja stoða landbúnaðarins í
sameiginlegum viðfangsefnum og
er það samtal í gangi.
Við erum alltaf sterkari saman,
Bændasamtökin og Samtök
fyrirtækja í landbúnaði, þegar við
getum komið sameiginlega fram og
talað fyrir alla virðiskeðjuna,“ segir
Margrét.
Aðild að Samtökum atvinnulífsins
Margrét segir að SAFL eigi í
viðæðum við Samtök atvinnulífsins
(SA) um mögulega aðild. „Við teljum
að SAFL muni sóma sér vel sem eitt
aðildarfélaga SA. Landbúnaður er ein
mikilvægasta atvinnugrein landsins
og fyrirtæki á sviði landbúnaðar gegna
mikilvægu hlutverki við að tryggja
fæðuöryggi hér á landi. Aðildarfélög
SAFL eiga það sameiginlegt að
starfa í sérstöku lagaumhverfi þar
sem ýmis sérlög gilda um starfsemi
þeirra, svo sem búvörulög, auk
krafna til aðbúnaðar og umhirðu við
landbúnaðarframleiðslu og að virkt
eftirlit sé starfrækt.
SAFL er þannig sambærilegt
núverandi aðildarfélögum SA eins og
Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi,
Samtökum fjármálafyrirtækja og
Samtökum ferðaþjónustunnar, það
er að sérlög gilda um atvinnugreinina
ásamt því að málefni aðildarfélaganna
heyra undir sérstakt ráðuneyti.
Bein aðild SAFL að SA
er mikilvægur þáttur í því að
landbúnaðurinn fái þá rödd og
sess sem honum ber sem einni af
lykilstarfsgreinum samfélagsins.“
Óhagstætt starfsumhverfi
íslensk landbúnaðar
Sem fyrr segir hefur á fyrstu
mánuðum SAFL verið lögð
megináhersla á vinnu við að skoða
leiðir til að leiðrétta þann aðstöðuhalla
sem íslensk fyrirtæki í landbúnaði
– og íslenskar búgreinar – búa við í
samanburði við önnur lönd í Evrópu.
Margrét segir að þegar
starfsumhverfi landbúnaðarins á
Íslandi er borið saman við stöðuna
innan Evrópusambandsins og Noregs,
kemur í ljós að aðstöðumunurinn
hefur aukist mjög undanfarna tvo
áratugi eða svo, þar sem hallar á
íslenskan landbúnað.
„Þessi munur hefur í raun lítið
verið uppi á borðum í umræðunni hér
á landi og gætir jafnan skilningsleysis
á stöðu íslensks landbúnaðar. Það þarf
að draga þennan aðstöðumun fram og
gera þarf átak í að sinna greininni
sem skyldi. Þar skipta samskipti
við stjórnvöld lykilmáli og öflug
gagnasöfnun og greining. Við höfum
nú þegar hitt matvælaráðherra og
forsætisráðherra og búið er að óska
eftir fundum með fjármálaráðherra
og utanríkisráðherra,“ segir Margrét.
Tollvernd og tollafgreiðsla
Margrét bætir því við að það sé
einnig áherslumál samtakanna að
vinna að úrbótum á virkni tollverndar
fyrir íslenskar landbúnaðarafurðir
og betri tollaafgreiðslu þessa fyrstu
mánuði.
Alls komu tuttugu fyrirtæki að
stofnun samtakanna. Tilgangur
SAFL er meðal annars að efla ímynd
og styrkja samkeppnisstöðu íslensks
landbúnaðar, stuðla að hagkvæmni
íslensks landbúnaðar og íslenskra
landbúnaðarfyrirtækja, vera í
forsvari gagnvart stjórnvöldum í
málum er snerta hagsmuni og réttindi
félagsmanna, styðja við nýsköpun og
menntun tengda landbúnaði og vinna
að eflingu rannsókna og sjálfbærni
íslensks landbúnaðar.
/smh
Samtök fyrirtækja í landbúnaði:
Vinna að hagsmunum
allrar virðiskeðjunnar
– Eiga í viðræðum við Bændasamtök Íslands um samstarf
Merki hinna nýju samtaka.
Margrét
Gísladóttir.
Sigurjón R.
Rafnsson.
Margrét segir að þegar starfsumhverfi landbúnaðarins á Íslandi er borið
saman við stöðuna innan Evrópusambandsins og Noregs, kemur í ljós að
aðstöðumunurinn hefur aukist mjög undanfarna tvo áratugi eða svo, þar
sem hallar á íslenskan landbúnað. Mynd / ghp
Stærsta dráttarvél landsins
seld í Eyjafjörð
Friðrik Ingi Friðriksson, eigandi Aflvéla, afhenti bændunum á Halllandi nýju
dráttarvélina en hér eru þau Máni Guðmundsson og Hólmfríður Freysdóttir
með honum. Mynd / MHH
Aflvélar á Selfossi fluttu sig nýlega
úr húsnæði við Austurveg 69 í
Gagnheiði 35 þar sem finna má
veglega aðstöðu til sölu og sýningar
nýrra véla til landbúnaðar.
Hjá fyrirtækinu á Selfossi vinna
16 starfsmenn en aðalsetur Aflvéla
er við Vesturhraun í Garðabæ.
Stærsta dráttarvél sem hefur verið
flutt inn til landsins hefur verið
til sýnis í nýja sýningarsalnum á
Selfossi en um er að ræða Massey
Ferguson 8740. Vélin er yfir 400
hestöfl og eru afturdekkin á vélinni
yfir tveir metrar á hæð. Vélin
stoppaði ekki lengi í sýningarsalnum
því hún hefur verið seld til ábúenda
á bænum Halllandi í Eyjafirði. Vélin
kostaði rúmlega 30 milljónir króna.
/ MHH
Íslenskt matarhandverk
verðlaunað
Vörur þriggja smáframleiðenda
unnu til verðlauna í norrænni
matarhandverkskeppni sem
haldin var á hátíðinni Terra
Madre Nordic í Svíþjóð í síðustu
viku.
Aðalbláberja- og chillisulta
fjölskyldufyrirtækisins Urta
Islandica, birkireyktur silungur
frá Búkonunni – matarhandverk
og glóaldin kombucha drykkur frá
fyrirtækinu Kúbalúbra / Kombucha
Iceland voru verðlaunuð í sínum
flokkum.
Sjö íslenskir smáframleiðendur
skráðu sig til þátttöku í keppninni sem
fram fór í Stokkhólmi daganna 1.–3.
september. Þetta var í fyrsta sinn sem
keppt var í norrænu matarhandverki
og var framleiðendum á öllum
Norðurlöndum boðið að taka þátt.
Keppt var í ólíkum vöruflokkum
s.s. í brauði og bakkelsi,
afurðum úr berjum og grænmeti,
kjötmeti, fiskmeti, drykkjum og
mjólkurvörum. / ghp
Aðalbláberja- og chillisulta frá Urta
Islandica hlaut gullverðlaun.
Smáauglýsingar á bbl.is