Bændablaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 8. september 2022
Kristín Linda Jónsdóttir, fyrrum
kúabóndi í Miðhvammi í Þing-
eyjarsveit, opnar á morgun,
föstudaginn 9. september,
myndlistarsýninguna Drottningar
á kaffihúsinu vinsæla Bláu
könnunni í miðbæ Akureyrar.
Kristín Linda, sem er sálfræð
ingur og rekur stofu sína Hug
lind í Reykjavík, er lesendum
Bændablaðsins kunn fyrir pistla
sína um líðan og lífsgæði. Hún
segist óvænt hafa dottið inn í heim
olíumálverksins fyrir fjórum árum.
„Ég kunni nú varla að teikna Óla prik
og vissi ekki hvað litahringurinn var,
hvað þá eitthvað um striga, olíumálun
eða svínahárspensla.
Hins vegar hef ég alltaf verið til
í að prófa eitthvað nýtt. Einn gráan
fimmtudag í mars sá ég auglýsingu
um námskeið fyrir byrjendur í
olíumálun daginn eftir hjá Þuríði
Sigurðardóttur myndlistar og
söngkonu,“ segir Kristín Linda,
sem ákvað að stökkva yfir lækinn
eins og hún orðar það. „Það er alltaf
heillandi að fara yfir lækinn, þar eru
önnur lönd.“
Eftir fyrsta námskeiðið var ekki
aftur snúið. „Það er svo heillandi
að sullast með litina og leika sér á
striganum,“ segir hún.
„Það var smá skondið,“ bætir hún
við „að ég var viss um að ekki dygði
annað en koma með eigin hugmyndir
að myndefni alveg frá grunni og
hugsaði, hvað geri ég nú? Ég kann
ekki að teikna.“ Íslensku fjöllin og
sveitin hafi þó strax leitað á huga
hennar. „Mér sýndist vera einfalt að
skella á blað útlínum Herðubreiðar
en vissi að eitthvað fleiri yrði að vera
með á myndinni. Úr varð að það er
kona í rauðum síðkjól að horfast í
augu við þjóðarfjallið.“
Kristín Linda segir að þar sem hún
hafi ekki kunnað að teikna fætur lét
hún konuna vera í síðum kjól, „og svo
þurfti að sjá í hnakkann á henni, því
ég hafði enga hugmynd um hvernig
ætti að gera andlit.“ Upp úr þessari
fyrstu hugmynd hafa nú fjórum árum
síðar orðið til nær þrjátíu olíumálverk
í málverkaröð sem heitir Drottningar.
„Það kom mér algjörlega á óvart að
fólki hefur fundist þessi málverk
skemmtileg og heillandi.
Þau eru rómantísk, litrík og
ævintýraleg sýn á landið okkar,
hafa tilvísun í ákveðin fjöll, fossa
eða svæði og bera í sér hjartanlega
ást og öfluga íslenska konu.“
Að hafa kjark og kraft til að
stökkva á tækifærin
Kristín Linda, sem er um sextugt, segir
að hún vildi gjarnan nota tækifærið til
að hvetja alla sem komnir eru inn á
seinni hálfleikinn í lífinu til að koma
sér upp skemmtilegu áhugamáli. Það
sé gott fyrir sálina og ekki verra fyrir
heilann að glíma við eitthvað nýtt en
að halda áfram með það sem þegar er.
„Ég veit það mjög vel af reynslu
minni sem bóndi í 15 ár að bændur og
margt fleira sjálfstætt starfandi fólk í
atvinnurekstri sinnir sínu af lífi og sál
og oft er lítill tími fyrir önnur óskyld
áhugamál, en svo koma dagar.
Þá er um að gera að hafa kjark og
kraft til að stökkva á tækifærin og
opna dyrnar að nýjum ævintýrum,
þá verður enn skemmtilegra
að lifa.“ /MÞÞ
Kæli- og frystiklefar í öllum
stærðum og gerðum
Margar gerðir af
vélbúnaði fyrir
kæli- og frystiklefa
Mikið úrval af hillum
Járnháls 2 - 110 Reykjavík
Sími 440 - 1800
www.kaelitaekni.is
Kælitækni er leiðandi í sölu
og uppsetningu á kerfum með
náttúrlegum kælimiðlum
HAFÐU ÖRYGGIÐ Í FYRIRRÚMI
Gott úrval af vottuðum hífi- og festingabúnaði
Ísfell ehf., er fullgildur meðlimur að Lifting Equipment
Engineers Association sem eru leiðandi samtök hvað
varðar vottun fyrirtækja sem nota og framleiða hífibúnað.
ÞEKKING • ÞJÓNUSTA • GÆÐI
isfell.is
Sími 520 0500
Málverkasýning á Bláu könnunni:
Heillandi að sullast með liti
Kristín Linda Jónsdóttir, fyrrum kúabóndi í Aðaldal og núverandi sálfræðingur
í Reykjavík, opnar sýningu á Bláu könnunni á Akureyri á morgun, 9. september.
Þar má finna myndir af fjöllum, fossum, heiðum, dölum, ám og drottningum.
Mynd / Einkasafn