Bændablaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. september 2022
FRÉTTIR
Hallormsstaðaskóli:
Tilraunaeldhús fyrir
matarfrumkvöðla
– Afurðir áherslubreytinga í starfi skólans eru nú víða sýnilegar
Hallormsstaðaskóli er nú að
hefja sitt 92. starfsár. Árið 2017
var farið að undirbúa áherslu-
breytingar í skólastarfinu með
það fyrir augum að færa námið
meira í átt til nútímans.
Á haustönn 2019 var í fyrsta
skiptið boðið upp á þá þverfaglegu
námsleið sem síðan hefur verið
í boði, en það heitir Sjálfbærni
og sköpun og er 60 eininga nám
með áherslu á sjálfbærniþekkingu,
vistkerfisvitund, siðferði
náttúrunytja og að nemendur
tileinki sér skapandi og gagnrýna
hugsun.
Á síðasta ári bættist
Tilrauneldhús við námsmöguleika
skólans þar sem boðið er upp á
ýmis matartengd námskeið auk
þess sem matarfrumkvöðlum
er boðið að nýta aðstöðuna til
vöruþróunar. Nú auglýsir skólinn
eftir nemendum og háskólum
til þátttöku í tilraunaverkefni
sem snýr að mótun þverfaglegs
framhaldsnáms sem væri unnið í
samstarfi við viðurkennda háskóla.
„Ég hef verið skólameistari hér
frá árinu 2014,“ segir Bryndís Fiona
Ford.
„Breytingar árið 2019 voru í raun
þríþættar; inntökuskilyrðin nú eru
sambærileg á við háskóla, áherslur
í náminu voru uppfærðar í samræmi
við kröfur nútímans auk þess sem
námið var lengt í heilt ár og er
það á fjórða hæfnisþrepi. Námið
byggir á hugtökunum „sjálfbærni“
og „sköpun“ í gegnum handverk
og viðurkenndar vinnsluaðferðir
auk þess að vinna með auðlindir
og hráefni á sjálfbæran hátt. Þetta
er svo tengt akademískum fræðum.
Eftir þessar áherslubreytingar fáum
við marga sérfræðinga til liðs við
okkur til að kenna á tilteknum
sérsviðum,“ segir Bryndís.
Skólastarfið verið áskorun
frá 2019
Að sögn Bryndísar hefur rekstur
skólans verið áskorun frá því að
þessar breytingar voru gerðar árið
2019.
„Við vorum auðvitað að kynna
nýjar áherslur og svo skellur
heimsfaraldurinn á, en hann hefur
haft afgerandi áhrif á skólastarfið á
þessum tveimur árum. Við verðum
vör við mikinn áhuga fólks á náminu
og aðsóknin með ágætum – en
að sjálfsögðu viljum við að fleiri
nemendur fái að njóta þess að dvelja
í skóginum. Þróunin hefur verið sú
að þeir sem hafa sýnt náminu okkar
mestan áhuga eru þeir sem hafa lokið
grunnnámi á háskólastigi eða búa
að reynslu. Þess vegna viljum við
þróa námið í átt að því að nemendur
geti lokið því með einhvers konar
diplóma-gráðu eða sem hluta af
framhaldsnámi og því setjum við
þetta tilraunaverkefni á fót.“
Liður í verkefninu er að
Hallormsstaðaskóli býður
einstaklingum sem hafa lokið
grunnnámi, eru byrjaðir í
framhaldsnámi eða vinna að
eigin rannsóknum, að sækja um
þátttöku. Hallormsstaðaskóli veitir
viðkomandi vinnuaðstöðu, aðgang
að vinnustofum sérfræðinga og
niðurfelld skólagjöld gegn virkri
þátttöku og viðveru.
„Þátttakendur fá tækifæri til að
nýta aðstöðu skólans til að vinna að
lokaverkefni eða rannsókn ásamt
því að geta tekið þátt í vinnustofum
með sérfræðingum,“ segir Bryndís.
Tilraunaeldhús
Hallormsstaðaskóla
Þar sem vottað eldhús skólans
er ekki í stöðugri notkun var
það að sögn Bryndísar í anda
sjálfbærnihugsjónar skólans að bjóða
frumkvöðlum að nýta aðstöðuna
til vöruþróunar. „Tilraunaeldhús
skólans er vel tækjum búið og
býður upp á góða vinnuaðstöðu
ásamt ráðgjöf. Nýjasta tækið er
frostþurrkunartæki sem opnar á
fjölbreyttari nýtingarmöguleika
hráefna. Miðað við hvað mikið
er flutt inn af matvælum erlendis
frá – eins og frosnar samlokur frá
Litháen til norskra klaka í búðum
– þá þurfum við að hafa þann
metnað að sækja ekki til annarra
það sem við getum veitt okkur sjálf.
En oft er skýringin sú að dýrara
er að framleiða þetta hér heima.
Með því að bjóða upp á fjölbreytt
námskeið í Tilraunaeldhúsi
skólans eykst þekking á
nýtingarmöguleikum staðbundinna
hráefna og hvaða tækifæri liggja í
auðlindum landsins. Nú er til að
mynda nýlokið sveppatínslu- og
greiningarnámskeiði með dr. Guðríði
Gyðu Eyjólfsdóttur, sveppafræðingi
á Náttúrufræðistofnun Íslands,
þar sem farið var yfir þær
sveppategundir sem hægt er að nota
í matargerð.“
Tækifærin í skóginum
Bryndís segir að Hallormsstaðaskóli
sjái nú afurðir frumkvöðla dafna úr
verkefnavinnu skólans eftir að nám
í Sjálfbærni og sköpun hófst árið
2019. „Námið opnar nýjar leiðir
til faglegrar þróunar, nemendur
bæta við þekkingu, sumir hafa
stofnað fyrirtæki og aðrir unnið
afurðir úr fjölbreyttu hráefni með
nýjum og gömlum aðferðum.
Við leggjum mikið upp úr því að
opna fyrir möguleikana á vannýttu
hráefni og styðja við framleiðslu í
nærumhverfinu.
Sem dæmi má nefna fyrirtæki
eins og Sauðagull, sem framleiðir
vörur úr sauðamjólk, og Könglar,
sem framleiða íslenska gosdrykki úr
staðbundnu hráefni í Fljótsdal, eru
komin með vörur sínar í sölu. Einnig
má nefna Charma, sem framleiðir
jurtalitaðar silkislæður og skartgripi
úr íslenskum steinum, og verkefnið
Heilnæm hljóðvist, þar sem annars
flokks ull er notuð til að skapa betri
hljóðvist. Verkefnið var einmitt
tilnefnt til verðlauna í Ullarþoni.
Langspil hefur verið smíðað
hér úr timbri skógarins og
hreindýrabeinum sem voru límd
saman með heimagerðu lími,
hér hafa skinn verið sútuð og
sápur þróaðar. Iðnaðarhampur
er nýlegt hráefni og fá nemendur
að kynnast nýtingarmöguleikum
hans allt frá snyrtivöruframleiðslu
í rafhlöðugerð.
En dýrmætasti sprotinn okkar er
án efa þegar nemendur okkar finna
ástina og stofna til fjölskyldu,“ segir
Bryndís. /smh
Hallormsstaðaskóli í Hallormsstaðaskógi er að hefja sitt 92. starfsár.
Myndir / Hallormsstaðaskóli
Bryndís Fiona Ford skólameistari.
Jarðræktarskýrslur
forsenda álagsgreiðslna
– Umsóknir skulu berast fyrir 3. október
Sérstakar álagsgreiðslur sem
matvælaráðuneytið hefur
boðað, í ljósi alvarlegrar stöðu
í matvælaframleiðslu, verða
reiknaðar á grunni hefðbundinna
umsókna um jarðræktarstyrki og
landgreiðslur.
Því er mikilvægt að umsóknir
um styrki liggi tímanlega fyrir svo
greiða megi álagsgreiðslur í byrjun
október nk.
Það er meðal þess sem
kemur fram í tilkynningum
frá matvælaráðuneytinu og
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins.
Starfsmenn RML aðstoða bændur
við skráningu jarðræktarskýrluhalds
en hvatt er til þess að bændur komi
gögnum til skráningar til RML eigi
síðar en 20. september svo tryggt
verði að skýrsluhald þeirra verði
skráð fyrir tilsettan tíma.
Eins og í fyrra þarf að skrá
upplýsingar um ræktun og
uppskeru ásamt notkun tilbúins- og
búfjáráburðar.
Styrkhæf ræktun fyrir
jarðræktarstyrki er ræktun grass,
korntegunda til dýrafóðurs og
manneldis, ræktun olíujurta, þar með
talin ræktun jurta til framleiðslu á
lífdísil, enda sé hratið nýtt til fóðurs,
og ræktun grænfóðurs til beitar og
uppskeru á því ári sem uppskorið er.
Beit búpenings telst vera uppskera
og nýting kornhálms og annarra jurta
til uppræktunar jarðvegs í útiræktun
grænmetis telst styrkhæf.
Ræktun vetraryrkja sem sáð er
um mitt sumar og endurræktun
túna er tekin út á ræktunarári. Ekki
telst styrkhæf ræktun ef kornrækt er
eingöngu ætluð til að draga að gæsir
til skotveiði, nema ef kornhálmur er
sannarlega hirtur eða plægður niður.
Önnur ræktun sem ekki er nytjuð
til búskapar, þar með talin sáning í
golfvelli, tjaldstæði o.s.frv. er ekki
styrkhæf.
Framlögum til landgreiðslna skal
ráðstafa á ræktað land sem uppskorið
er til fóðuröflunar og framleiðanda
er heimilt að nýta. Framlög eru ekki
greidd út á land sem eingöngu er nýtt
til beitar. Þegar uppskorinn er hluti
lands, sem sækja á um styrk út á, skal
skrá sérstaklega þann fjölda hektara
sem er uppskorinn.
Umsóknir skulu berast á afurd.
is fyrir 3. október. Mikilvægt er að
hafa í huga að þrátt fyrir að einhver
uppskera kunni að vera óskráð, þá
kemur það ekki í veg fyrir að hægt
sé að skila jarðræktarskýrslu í Jörð.is
og sækja um styrkinn í Afurð.
/ghp
Mikilvægt er að hafa í huga að þrátt fyrir að einhver uppskera kunni að vera
óskráð, þá kemur það ekki í veg fyrir að hægt sé að skila jarðræktarskýrslu
í Jörð.is og sækja um styrkinn í Afurð. Mynd / ghp