Bændablaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 43

Bændablaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 8. september 2022 konum sem kallast chilidrottningar sem selja bæði hann og líkama sinn á götum. Í fyrrnefndri blaðagrein var einnig sagt að bæði taco réttirnir og chilidrottningarnar væru „hot“ og bitu í eins og eiturslöngur. U-laga skeljar og taco dagur Fysrtu stökku U-laga taco skeljarnar voru bornar til borðs á veitingahúsi í Mexíkó árið 1940. Sjö árum síðar var fundin upp vél sem bakaði þær U-laga þrátt fyrir að Glen Bell, stofnandi Taco Bell, hafi haldið því fram að hann hafi fundið þær upp árið 1950. Árið 2003 komst taco sem matreitt var í borginni Mexica í Kaliforníu í Heimsmetabók Guinness sem stærsta taco sem búið hefur verið til og vó það rúm 750 kíló. Samkvæmt uppsláttarritinu Tacopedia ók fyrsti bíllinn sem seldi taco um götur New York árið 1966. Í dag er taco þekkt sem götumatur víða um heim og íbúar Mexíkó halda upp a taco daginn 4. október. Orðsifjar Orðið taco er komið úr máli innfæddra í Mexíkó og getur staðið fyrir allt í senn, vafning, fleyg, tapa, billjarðkjuða, blásturrör, kylfu, sprengihleðslu, lítinn en þykkan viðarbút og lágvaxinn og feitlaginn mann. Önnur skýring er að heitið sé komið úr máli Nahuatil Astek og þýði í miðjunni og vísi til þess að matur hafi verið settur í opnar skeljarnar. Mjúkir vafningar Taco réttir sem í eina tíð voru bornir fram í mjúku deigi kallast í dag tortilla- eða buritosvafningar og oftast búnir til úr mjúku hveitibrauði þrátt fyrir að meðlætið sé yfirleitt svipað. Stökkar skeljar Vinsældir stökkra og U-laga taco skelja, sem bakaðar eru úr maísmjöli um víða veröld, má rekja til Bandaríkjanna og ekki síst til alþjóðlegu skyndiréttakeðjunnar Taco Bell. Á spænsku kallast þær tacos dorados eða gullið taco. Taco afbrigði Ýmis afbrigði eru til af taco réttum, brauðið hanterað á ólíkan hátt og innihaldið ólíkt allt eftir kenjum kokksins. Hráefnið í taca al pastor er þunnt skorið svínakjöt. Ofan á kjötið er lagt marinerað chili og herlegheitin þrædd á tein og grilluð með snúningi í eldofni. Taco asador er gert með því að setja guacamole- eða salsasósu, kjöt, lauk og kóríander á tortilla brauð og leggja síðan aðra tortillu yfir og setja á grill. Til að matreiða taco de cabexa þarf að verða sér úti um nautshöfuð og skera af því kinnarnar, tunguna og heilann og steikja. Taco brauð er hitað á pönnu og síðan er kjötið sett ásamt salsa- eða guacamolesósu, lauk og kóríander á það. Í taco de lengua er höfð nautatunga sem hefur verið soðin ásamt hvítlauk, lauk og lárviðarlaufi í nokkra klukkutíma þar til hún er orðin mjúk. Tungan er síðan léttsteikt á pönnu og borin fram í skel með meðlæti að eigin vali. Rækjutaco er vinsæll réttur í Baja í Mexíkó. Rækjurnar eru stærri en við eigum að venjast og grillaðar. Best þykir að bera þær fram í heitum taco skeljum með salsasósu ásamt salati, lárperu, sítrónusafa og majónesi. Djúpsteikt upprúllað tortilla brauð með forsteiktu kjúklinga- eða nautakjöti og meðlæti kallast tavo de cazo. Í svokallaðri Tex-Mex matargerð, sem er bræðingur matreiðsluhátta frá Texas og Mexíkó, þykir sjálfsagt að bera taco fram sem morgunverð. Rétt sem samanstendur af mjúku tortilla brauði, eggjum, osti og grænmeti eða annars konar meðlæti eins og til dæmis beikoni eða skinku. Taco á Íslandi Sáralítið og eiginlega ekkert fer fyrir taco í íslenskum fjölmiðlum allt fram á þessa öld. Morgunblaðið segir frá því í ágúst 2006 að veitingahúsakeðjan Taco Bell muni opna veitingastað í Hafnarfirði í lok nóvember það ár og gangi áætlanir eftir verða Hafnfirðingar fyrstir í heiminum til að bragða á skyndibita keðjunnar utan Bandaríkjanna eða bandarísks varnarsvæðis, að sögn framkvæmdastjóra KFC á Íslandi, sem stendur að opnun staðarins. Í Fréttablaðinu í nóvember sama ár segir einnig frá því að Taco Bell staðurinn í Hafnarfirði hafi verið sá fyrsti sem opnaður hafi verið utan Bandaríkjanna. Þar segir einnig að barist hafi verið fyrir því að fá Taco Bell hingað til lands í um fimmtán ár. „Reyndar hefur einn slíkur staður verið starfræktur um nokkurn tíma á herstöðinni á Miðnesheiði en þar sem henni hefur nú verið lokað fengu íslensku aðilarnir loksins leyfi til þess að opna Taco Bell stað innan íslenskrar landhelgi.“ Þetta mun ekki vera rétt því veitingahúsakeðjan Taco Bell reyndi fyrir sér í Mexíkóborg árið 1992. Íbúum borgarinnar leist síður en svo á það sem í boði var. Staðurinn floppaði og var lokað tveimur árum síðar. Keðjan reyndi aftur fyrir sér í borginni árið 2007 en þeim stað var einnig lokað fljótlega vegna áhugaleysis borgarbúa. Undanfarin ár hefur fjöldi veitingahúsa bætt taco á matseðil sinn og bjóða upp á réttinn í ýmsum útgáfum, hvort sem það kallast taco, tortilla, buritos eða quesadillas. Taco er vinsæll matur á Íslandi í dag enda auðvelt að matreiða slíka rétti þar sem hægt er að kaupa bæði mjúkt og stökkt taco brauð og sósu í næstu matvöruverslun. Spánverjinn Bernal Días del Castillo var fyrsti Evrópumaðurinn til að lýsa skriflega áti tacolíks réttar í Mið- Ameríku. Mynd / wikimedia.org Maísbrauð bakað. Mynd / wikiwand.com Taco selt sem götumatur í Mexíkó. Mynd / mexiconewsdaily.comMatseðill Marine Klub herstöðvarinnar á Miðnes- heiði fyrir júní 1989, birtur í The White Falcon. Mynd / timarit.is Hnoðað maísdeig. Mynd / latinarepublic.com Guacamole sósa fer vel með taco. Mynd / thefrayedapron.com Fyrsti bíllinn sem ók um götur New York og seldi taco. Mynd / kingtaco.com Mjúkt tortillabrauð bakað úr hveiti. Mynd wikipedia.org Buritos vafningur. Mynd / seriouseats.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.