Bændablaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 27
27Bændablaðið | Fimmtudagur 8. september 2022
Smiðshöfða 12, 110 Reykjavík · sími 5868000 · www.roggi.is · verslun@roggi.is Þjónusta við Iðnaðinn
www.vallarbraut.is vallarbraut@vallarbraut.is S-4540050
ÞAÐ ER BARA SOLIS
SOLIS 90
90 hestafla vélar á
frábæru verði.
Verð: 5.695.000+vsk
Með ámoksturstækjum
6.970.000+vsk
Þegar nýtt matvælaráðuneyti
varð til í byrjun febrúar á þessu
ári færðust Landgræðslan
og Skógræktin þangað yfir,
úr umhverfis-, orku- og
loftslagsráðuneytinu.
Í lok ágúst gaf Svandís
Svavarsdóttir matvælaráðherra
út fyrstu sameinuðu stefnuna í
landgræðslu og skógrækt, Land og
líf, auk aðgerðaráætlunar.
Ljóst má vera, að vilji er innan
stjórnkerfisins til að þessar tvær
ríkisstofnanir muni vinna náið
saman í nánustu framtíð – en fram
til þessa hefur samstarf þeirra verið
lítið. Í vor kynnti ráðuneytið til að
mynda hugmyndir um forathugun
á sameiningu Landgræðslunnar og
Skógræktarinnar.
Byggir á lögum frá 2019
Hin sameiginlega stefna er unnin
samkvæmt lögum um landgræðslu,
skóga og skógrækt frá 2019. Hún felur
í sér stefnu stjórnvalda í landgræðslu
og skógrækt; framtíðarsýn, gildi og
áherslur í málaflokknum til ársins
2031 og endurspeglast að verulegu
leyti í þeim lögum sem gilda um
málaflokkinn. Stefnan tekur mið af
þróun mála á alþjóðlegum vettvangi
og skuldbindingum Íslands í
samstarfi við aðrar þjóðir, svo sem
á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og
annarra alþjóðlegra stofnana.
„Verkefnisstjórnir voru skipaðar í
júní 2019 og höfðu það hlutverk að
móta tillögur að landgræðsluáætlun
og landsáætlun í skógrækt.
Verkefnisstjórnirnar tvær unnu að
sínum tillögum og kynntu þær í
opnu samráði á vormánuðum 2021.
Í kjölfarið skiluðu þær tillögum
sínum til ráðuneytisins, ásamt
umhverfismati og samantekt á helstu
athugasemdum.
Áherslur matvælaráðherra snúa
að vernd, viðgangi og heilleika
vistkerfa á grunni vistkerfisnálgunar.
Einnig eflingu náttúrumiðaðra lausna
í loftslagsmálum sem samræmast
alþjóðlegum skuldbindingum, stuðla
að sjálfbærri landnýtingu, efla
þekkingu, samstarf og lýðheilsu og
stuðla að sjálfbærri þróun byggða
um allt land,“ segir í umfjöllun
matvælaráðuneytisins um hina
nýju stefnu.
Val á landi til skógræktar
Aðgerðaráætlun í landgræðslu og
skógrækt nær til ársins 2026 og mun
því móta forgangsröðun í aðgerðum
stjórnvalda til næstu ára. Meðal
skilgreindra aðgerða eru rannsóknir
á áhrifum landgræðslu, skógræktar
og endurheimtar votlendis á lífríki,
gerð nýrra gæðaviðmiða við val
á landi til skógræktar og mat á
kolefnisjöfnuði fyrir losunarbókhald
í loftslagsmálum.
Beinar aðgerðir snúa einkum að
endurheimt vistkerfa á röskuðu landi,
endurheimt votlendis, endurheimt
náttúruskóga og skógrækt. /smh
Íslensk framleiðsla
á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum
564-0013 | 865-1237
Matvælaráðuneytið:
Sameinuð stefna fyrir
landgræðslu og skógrækt
Birki í Borgarfirði. Mynd / Myndasafn