Bændablaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 58
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. september 2022
Nú hefur komið skemmtilega á
daginn að heklaður fatnaður
hefur víða hlotið náð fyrir augum
hönnuða.
Meðal þeirra eru nöfn á borð
við Marni, Bottega Veneta,
Moschino og Prada svo eitthvað sé
nefnt. Má í því samhengi minnast
heklaðrar strandtösku Prada frá í
fyrra, en fór sala hennar fram úr
öllum væntingum, þótt verðlagið
væri tæpar þrjú hundruð þúsund
krónur íslenskar fyrir stykkið. En
óstjórnlega smart auðvitað og í
mörgum litum.
Notalegheit fyrri ára
Á meðan margir hafa tengt heklaðan
fatnað og fylgihluti við tímabil
hippaáranna eða tónlistarhátíða á
borð við Coachella kemur á daginn
að æ oftar má finna slíkar gersemar
á pöllum tískunnar. Því er ef til vill
kominn tími til að mastera tækni
heklunálarinnar með haustinu, þó
ekki væri nema rétt til að tolla í
tískunni.
Á vefsíðu Harpers Bazaar eru
hugmyndir um að ró og mannleg nánd
spili inn í áhugann á heklinu. Eigi
þá rætur sínar að rekja til tímabils
Covid er mannleg samskipti voru
í lágmarki. Yngri hönnuðir á borð
við Joseph Altuzarra tekur undir og
telur að fólk sækist eftir fylgihlutum
eða fatnaði sem hægt er að tengjast
á tilfinningalegan hátt – en sjálfur
tók hann haustlínu sína í nýjar hæðir
er hann kynnti heklaðan kjól svo
flókinn að gerð að
margir lýstu honum
sem list einum
og sér.
Leitað í grunninn
Fleiri ungir og
u p p r e n n a n d i
hönnuðir eru á
þessari línu og
er Abacaxi merki
sem gaman er
að fylgjast með.
Hönnuður inn
Sheena Sood,
sem er af ind
verskum upp
runa, hefur vakið
athygli með afar
litríkum og glaðlegum vörum.
Sheena er textílhönnuður að auki
og hefur mikla ástríðu fyrir að kynna
sér þá tækni víðs vegar um heiminn.
Heimsótt staði á borð við Brasilíu,
Indónesíu, Víetnam, Perú og Mexíkó
og tileinkað sér aðferðir frumbyggja
við textílgerð og býr svo að þeirri
kunnáttu er kemur að hennar eigin
handverki.
Augljóst er að með slíkri ástríðu
á hún framtíðina fyrir
sér en fyrri reynslu sína
í geiranum fékk hún
við störf hjá merkjum
á borð við Tracy
Reese, Cole Haan og
Anthropologie.
Íslenskt handverk
Hekl er þó eitthvað
sem á sér langa sögu,
hvort heldur erlendis
eða á Íslandi. Árið
1886 var til dæmis
fyrsta hannyrðabókin
gefin út á íslensku,
en þar má finna grein
um hekl. Nokkuð var
um að hekluð væru
milliverk í rúmföt sem
notuð voru spari, þá
líka koddaverið – eða
a.m.k. blúnda hekluð
utan um koddann.
Hekluð voru rúmteppi,
húfur og ýmislegt og
margir sem nutu sín
betur við þann starfa
en prjónanna.
Svo eru ástríðuheklarar auðvitað
til – þeir sem aldrei hafa sleppt
heklunálinni – og má þar nefna Mr.
Spooner, búsettan í Bandaríkjunum
og klæðist helst engu nema
hekldressi frá toppi til táar –
unnu af honum sjálfum. En
öllu má víst ofgera og rétt að
hafa það í huga er fólk æsist
við heklið. /SP
Með haustinu er upplagt að grípa til nálarinnar:
Hekl er hæstmóðins
UMHVERFISMÁL - TÍSKA
FUGLINN: GLÓKOLLUR
Glókollur er minnsti fugl Evrópu en fullorðinn fugl er um 9 cm að lengd og vegur svipað og 5 krónu mynt (um 6 grömm). Hann er nokkuð nýr landnemi og að öllu leyti skógarfugl, því er nokkuð ljóst að
hann hefur numið hér land í kjölfar mikillar aukningar í greniskógrækt. Upp úr aldamótum fer að bera á fjölgun glókolla og er áætlað að stofninn sé núna á bilinu 1.000-2.000 pör. Hann er staðfugl en
þrátt fyrir smæð sína þá stendur hann ágætlega af sér íslenskt veðurfar. Engu að síður hafa komið hrun í stofninn sem líklega tengjast sveiflu í framboði á grenilús sem er undirstöðufæða glókollsins.
Fuglinn er frekar hnöttóttur í laginu með stutta og breiða vængi. Hann er grænleitur með svarta og gula kollrák nema hjá karlfuglinum er kollrákin að hluta appelsínugul. Þeir eru mjög kvikir og halda
sig gjarnan innarlega í trjám en eiga það til að koma út á greinarnar í leit að fæði. Það getur því verið áskorun að koma auga á þennan litla fugl en oft kemur hann þó upp um sig því þeir eru sítístandi
og kallandi sín á milli. Glókollar verpa iðulega nokkrum sinnum á sumri og allt að því 6-11 egg í hvert skipti. Svona mikil urpt spilar stóran þátt í því hvað stofnin
n getur náð sér fljótt á strik aftur eftir áföll og stækkað hratt á skömmum tíma. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson
Eitt verka Sheenu Sood.Hekltöskur í boði Prada & Marni.
Bandaríkjamaðurinn Mr. Spooner
hefur unað sér við hekl síðan á tímum
Woodstock, má m.a. finna hann á
Pinterest og hægt er að versla af honum
yfir netið, ef vel er leitað.