Bændablaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 47

Bændablaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 8. september 2022 dreifingarnetið í Þýskalandi. Framleiðslan er að sögn Gerhard misjöfn eftir dögum en það er vegna annarrar grænnar orkuframleiðslu sem hefur forgang eins og frá sólarsellum og vindmyllum. Þegar þeirrar orku nýtur ekki við eru gasverin ræst og er það ferli nánast sjálfkrafa. Stundum safnast því fyrir gas hjá honum og á öðrum tímum gengur hann á birgðir. Áður en Rússar réðust inn í Úkraínu fékk Gerhard 12,7 evrusent fyrir hverja kWh, um 16,9 krónur, en vegna áhrifanna frá stríðinu hefur verðið rúmlega þrefaldast og er nú 37 evrusent, eða um 52,2 krónur! 700 milljarða velta! Sjötta heimsóknin var að höfuð­ stöðvum CLAAS í Harsewinkel í Þýskalandi en fyrirtækið framleiðir alls konar vélar og tæki fyrir landbúnað, svo sem dráttarvélar, þreskivélar og heyvinnuvélar. CLAAS er, eins og önnur fyrirtæki sem voru heimsótt í ferðinni, fjöl­ skyldufyrirtæki en er gríðarlega stórt og með árlega veltu í kringum 5 milljarða evra, eða um 700 milljarða íslenskra króna! Fyrirtækið á sér afar langa sögu en í fyrra voru einmitt liðin 100 ár frá því að forsvarmaður þess, August Claas, fann upp og fékk einkaleyfi árið 1921 á hnýtingabúnaði fyrir bindivélar. Búnaðurinn var svo einstakur að hann skapaði Claas algjöra sérstöðu og vinsældir og má segja að með þessari uppfinningu hafi verið lagður grunnurinn að framtíð fyrirtækisins. Í heimsókninni var boðið upp á kynningu á starfseminni í sýningarsal CLAAS þar sem vélaáhugafólk í hópnum fékk nóg að skoða og dást að. Geitabú með rúmlega 5.000 lítra á dag Sjöunda heimsóknin í ferðinni var á geitabú hjónanna Anita og Sander Bremer í Hollandi. Þau hafa búið með geitur í rúm 20 ár en áður var Sander kúabóndi og Anita vann utan bús. Enn í dag standa þau saman að rekstrinum enda með 1.500 geitur, mest af hinu mjólkurlagna Sana kyni. Þessar geitur gefa af sér að jafnaði um 3,5 lítra á dag en bestu geiturnar fara í allt að 8 lítra daglega. Geiturnar eru mjólkaðar tvisvar á dag og taka mjaltirnar 2 tíma í mál enda hringekjan með góð afköst, 100 geitur í einu, auk þess sem hvorki er gerð krafa um að þvo spenana né taka fyrstu bogana úr þeim heldur bara skella tækjunum á. Dagleg framleiðsla búsins er rúmlega 5 tonn af mjólk og er hún sótt á þriggja daga fresti af sérhæfðu afurðafélagi, sem er samvinnufélag 80 geitabænda í Hollandi, en það greiðir félögum sínum 70­75 evrusent fyrir lítrann, eða um 99­106 íkr. Mjólka „endalaust“ Það sem er svolítið sérstakt við geiturnar er að þær mjólka í raun „endalaust“, þ.e. mjaltaskeið þeirra takmarkast ekki við ákveðið tímabil heldur þar til þær eru með fangi á ný. Vegna þessa er einungis lítill hluti þeirra, 250 huðnur, notaðar í kynbætur og til endurnýjunar stofnsins, en endurnýjunarhlutfallið er í kringum 30%, 50 þeirra eru sæddar en hafrar sjá svo um hinar 200 og er burður oftast í janúar og fram í mars. Hver geit fær 3­4 kið og eru þau tekin undan um leið og þau hafa tekið til sín broddmjólkina og eru á þurrmjólkurfóstru eftir það. Hafurskiðin eru oftast alin upp í um átta kílóa þunga og svo seld frá búinu til slátrunar. Í Hollandi eru hafurskiðin, sem gagnast lítið sem ekkert á búum í mjólkurframleiðslu, stundum send strax til slátrunar eftir vikueldi en þá þarf að borga með þeim 10 evrur, eða um 1.400 krónur. Einungis með 13 hektara Það vakti athygli hópsins að þetta stóra geitabú er einungis með 13 hektara af landi og eins og liggur í augum uppi eru geiturnar því alltaf inni. Þar eru þær í rúmgóðum hálmstíum í 200­250 geita hópum. Á sínu eigin landi rækta þau gras sem geiturnar eru fóðraðar á en það dugar auðvitað ekki svo viðbótarhey, hálmur og kjarnfóður er keypt að búinu. Þá kaupa þau appelsínuhrat, sem er afgangur frá djúsverksmiðju í nágrenninu, og því blandað í fóðrið fyrir geiturnar. Aðspurð sögðu þau að geiturnar fái að jafnaði 0,7 kg af kjarnfóðri á hvert framleitt kíló mjólkur. Með 700 naut í eldi! Síðasta bændaheimsóknin var til Wouter Dits en hann rekur myndarlegt nautaeldisbú um 40 km norðaustan við Brussel í Belgíu. Hann kaupir nautin frá holdabúum þegar þau eru 6­7 mánaða gömul og hefur hann sérhæft sig í tveimur frönskum holdakynjum, annars vegar hinu þekkta Límúsín kyni og svo hins vegar Blonde d'Aquitaine frá samnefndu héraði í Frakklandi. Greinarhöfundi er ekki kunnugt um íslenskt heiti á þessu kyni en eflaust mætti kalla gripi af þessu kyni Hvíta Akvitanía. Nautin eru afar þæg og góð í meðförum og að hans sögn er fyrir löngu búið að rækta úr þeim skapillsku eða önnur vandamál tengd lundarfari. Þetta gerir það að verkum að hann getur verið með þessi 700 naut á bilinu 7­24 mánaða með einungis tveimur stöðugildum og það þrátt fyrir frekar litla tæknivæðingu búsins. Kaupir kálfana á 176.000 kr. Eins og áður segir fær hann gripina frá búum þegar kálfarnir eru teknir undan en mörg slík bú eru ekki með uppeldisaðstöðu heldur einungis beitarhaga sem henta ekki til áframeldis þessara gripa. Kaupverð kálfanna var að sögn Wouter 1.250 evrur, eða um 176 þúsund krónur, sem er vissulega há upphæð fyrir 6­7 mánaða gamla nautkálfa en að hans sögn er afkoman góð í greininni enda eru þessir gripir með gríðarlega vaxtargetu, eða um 1,6­1,7 kíló að jafnaði á dag. Hann slátrar þeim við 2 ára aldur og hefur meðalfallþunginn verið 575­600 kíló undanfarin ár! Til samanburðar má geta þess að meðalfallþungi álíka gamalla ungnauta á Íslandi síðustu 12 mánuði, miðað við uppgjörs­ tölur RML sem birtust í júlí sl., var 235 kg! Vill lækka fallþungann Að sögn Wouter er ekki sjálfgefið að svona mikill fallþungi sé endilega heppilegastur og sagðist hann vera að skoða það að færa hann niður í 500 kíló að jafnaði. Skýringin felst í því að síðustu kílóin sem nautin bæta á sig eru lengi að koma enda vaxtarkúrfan þannig að það hægist á daglegum vexti þegar nautin eru komin yfir 18 mánaða aldur. Það megi því nýta aðstöðuna betur með því að auka gripaveltuna á búinu. Aðspurður sagðist hann fá núna 5,85 evrur fyrir kílóið, eða um 825 krónur, og að það væri engin bið eftir slátrun, raunar væri mikil eftirspurn eftir slátrun svo hann getur valið úr á hverjum tíma. Smitgát mikilvæg Vegna þess að hann kaupir kálfa af bændum sem hafa ekki aðstöðu til áframeldis fær hann oft gripi víða að og það skapar honum ákveðið vandamál sem snýr að smitgát. Það getur verið erfitt að forðast að fá smit inn á búið en hann reynir eftir megni að halda aðkomuhópum aðskildum a.m.k. fyrst um sinn. Aðspurður sagði hann lungnabólgu vera aðalvandamálið á búinu, en hann bólusetur öll aðkomunaut við komuna og aftur eftir 4­5 vikur. Þá hefur hann heimild til þess að gefa mótefni í fóðrið í hverri viku þegar lungnabólga er algengust, en það er á tímabilinu frá nóvember og fram í febrúar. Þá eru nautin einnig meðhöndluð með ormalyfjum. Aðspurður um lyfjakostnað búsins sagði Wouter að bólusetningin kosti 3 evrur, ormalyfjameðhöndlunin 5 evrur og mótefnameðhöndlunin 10 evrur, alls 18 evrur, eða um 2.540 krónur, á hvern sláturgrip. Flokkar í hópa eftir stærð Að sögn Wouter er hann með 110 hektara lands þar sem hann framleiðir annars vegar maís og hins vegar gras en hvort tveggja er votverkað á búinu. Hann fær svo aukalega maísvothey frá nágrannabónda. Þess utan fá nautin vel af kjarnfóðri en hann flokkar nautin í 3 fóðrunarhópa. Fyrstu tveir eru vaxtarhópar sem eru á sterkri próteinfóðrun en síðasti hópurinn er lokaeldishópur þar sem hann leggur áherslu á fitusöfnun fyrir slátrun en ekki vöxt. Þegar hann flokkar í hópana þá fer hann ekki eftir aldri gripanna heldur stærð þeirra og eru 25 hafðir saman í hóp á fyrstu tveimur fóðrunartímabilunum og svo þegar kemur að fitufóðrunartímabilinu færir hann nautin niður í hólf með 7­8 nautum. Má neyðarslátra heima Fram kom í máli Wouter að hann getur neyðarslátrað, sé þess þörf, s.s. vegna slyss. Þá kemur dýralæknir á staðinn og sér um aflífun og blóðgun og svo er dýrinu ekið með hraði í næsta sláturhús. Þar er skrokkurinn verkaður, metinn og mældur og ef sýrustig og aðrir gæðaþættir eru í lagi er kjötið nýtanlegt til manneldis. Að hans sögn gerist þetta svo sem ekki oft en þegar það gerist þá eru það u.þ.b. 50% innlagðra og neyðarslátraðra gripa sem nýtast í raun áfram, hinir falla í gæðaflokkun vegna sýrustigs eða annarra þátta og enda sem hráefni fyrir lífgasframleiðslu. Síðasta faglega heimsókn hópsins var á landbúnaðarsýninguna Libramont í Belgíu, en í næsta Bændablaði verður fjallað um þá sýningu. Streymi heildverslun ehf. Goðanesi 4 603 Akureyri S N V 588 2544 streymi@streymi.is www.streymi.is Heimsókn á geitabú Bremer-hjónanna, sem standa fyrir miðju, með smá gjöf frá hópnum. Mynd / Vilborg Hrund Jónsdóttir. Geitakynið Sana er mjólkurlagið og eru geiturnar að gefa af sér að jafnaði um 3,5 lítra á dag, en bestu geiturnar fara í allt að 8 lítra á dag. Holdanautin 700 eru sérlega spök og auðveld í meðförum og er Wouter bara með einn starfsmann með sér við búskapinn. Það sem er svolítið sérstakt við geiturnar er að þær mjólka í raun „endalaust“ ...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.