Bændablaðið - 08.09.2022, Síða 57
57 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. september 2022
Stærðir: 2 (3/5) 6/9 (10/12) ára
Höfuðmál ca: 48/50 (50/52) 52/54 (54/56) cm.
Garn: DROPS BABY MERINO (fæst í Handverkskúnst)
50 (100) 100 (100) g litur á mynd nr 52, súkkulaði
Prjónar: Hringprjónn nr 3: lengd 40 cm.
Sokkaprjónar nr 3
Prjónfesta: 26 lykkjur x 51 umferðir = 10 x 10 cm.
GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og
1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.
ÚRTAKA (á við um efst á húfu): Öll úrtaka er gerð
í umferð með sléttum lykkjum.
Fækkið lykkjum á eftir lykkju með prjónamerki:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt,
prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
lykkjuna sem var prjónuð.
Fækkið lykkjum á undan lykkju með prjónamerki:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju
með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman.
HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er
prjónað í hring á stuttan hringprjón, neðan frá og
upp. Fyrst er prjónað uppábrot í stroffprjóni, síðan
er prjónað garðaprjón að loknu máli. Skiptið yfir á
sokkaprjóna eftir þörf.
HÚFA: Fitjið aðeins laust upp 152 (156) 162
(168) lykkjur á stuttan hringprjón nr 3 með
DROPS Baby Merino. Prjónið stroff (1 lykkja slétt,
1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 9 (9) 11
(11) cm, brjótið stroffið inn þannig að kanturinn
verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í
stroffprjóni eins og áður jafnframt því sem 8. (6.) 9.
(8.) hver lykkja er prjónuð saman með samsvarandi
lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast
tvöfaldur kantur.
Haldið áfram með stroffprjón (1 lykkja slétt, 1
lykkja brugðið) þar til stykkið mælist 4 (4) 5 (5)
cm frá þar sem lykkjurnar voru prjónaðar saman.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 40
(40) 42 (44) lykkjur jafnt yfir = 112 (116) 120
(124) lykkjur.
Síðan er prjónað GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu
að ofan. Þegar stykkið mælist 19 (20) 21 (22) cm
frá uppábroti neðst á húfu og næsta umferð er
umferð með sléttum lykkjum, setjið 1 prjónamerki
í 28. (29.) 30. (31.) hverja lykkju í umferð (4
prjónamerki – prjónamerkin eru sett í stykkið
án þess að prjóna lykkjurnar).
Haldið áfram í garðaprjóni. JAFNFRAMT í fyrstu
umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við
hvert prjónamerki – sjá ÚRTAKA (8 lykkjur færri).
Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 5 (5)
7 (7) sinnum, síðan í annarri hverri umferð alls 7
(7) 5 (5) sinnum = 16 (20) 24 (28) lykkjur eftir.
Í næstu umferð með sléttum lykkjum, prjónið allar
lykkjur slétt saman 2 og 2 = 8 (10) 12 (14) lykkjur
eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur
sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.
Húfan mælist ca 25 (26) 28 (29) cm frá uppábroti
neðst á húfu. Brjótið upp neðstu 4 (4) 5 (5) cm.
Prjónakveðja
Mæðgurnar í Handverkskúnst, www.garn.is
HANNYRÐAHORNIÐ
Gaman í sveitinni
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Nafn: Ása Laufey Hákonardóttir.
Aldur: 12 ára.
Stjörnumerki: Steingeit.
Búseta: Hafnarfjörður og
Borgarnes en er frá Kvíum.
Skóli: Setbergsskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Enska.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Kettir.
Uppáhaldsmatur: Pasta.
Uppáhaldslag: Happier Than Ever
með Billie Eilish.
Uppáhaldskvikmynd: Nýjasta
Minions-myndin.
Fyrsta minning þín? Þegar ég fór
í útilegu við Skógafoss.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Dans.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Leikkona.
Hvað er það klikkaðasta sem
þú hefur gert? Sýna sýningu í
Borgarleikhúsinu.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í
sumar? Var í sveitinni.
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
SUDOKUÞRAUTIR Bændablaðsins
Þung Þyngst
Létt Miðlungs
Næst » Ása skorar á systur sína, Hugrúnu Hörpu, að verða næsti viðmælandi.
Rétt er að taka fram að þau börn sem áhuga hafa á að vera með, mega hafa
samband við okkur á veffangið sigrunpeturs@bondi.is.
Hún Ása Laufey stendur fyrir
svörum í þessu blaði en hún er
hress og glöð stelpa frá Kvíum.
Klassísk garðaprjónshúfa á börn, prjónuð úr DROPS BabyMerino.
Stykkið er prjónað í garðaprjóni, neðan frá og upp. Stærðir 2 – 12 ára.
Súkkulaðitoppur
Eigum til á lager okkar vönduðu þurrkofna ásamt ýmsum
öðrum tækjum fyrir heimavinnslur og veitingahús.
Beinn innflutningur, gott verð
Dæmi um verð: Þurrkofnar aðeins 59.000 kr. án vsk.
Hakkavélar frá 95.000 kr. án vsk.
Nánari uppl. í síma 8228844/ 8228832 eða vellir@vellir.is