Bændablaðið - 08.09.2022, Síða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 8. september 2022
dreifingarnetið í Þýskalandi.
Framleiðslan er að sögn Gerhard
misjöfn eftir dögum en það er vegna
annarrar grænnar orkuframleiðslu
sem hefur forgang eins og frá
sólarsellum og vindmyllum.
Þegar þeirrar orku nýtur ekki
við eru gasverin ræst og er það ferli
nánast sjálfkrafa. Stundum safnast
því fyrir gas hjá honum og á öðrum
tímum gengur hann á birgðir.
Áður en Rússar réðust inn í
Úkraínu fékk Gerhard 12,7 evrusent
fyrir hverja kWh, um 16,9 krónur,
en vegna áhrifanna frá stríðinu hefur
verðið rúmlega þrefaldast og er nú
37 evrusent, eða um 52,2 krónur!
700 milljarða velta!
Sjötta heimsóknin var að höfuð
stöðvum CLAAS í Harsewinkel í
Þýskalandi en fyrirtækið framleiðir
alls konar vélar og tæki fyrir
landbúnað, svo sem dráttarvélar,
þreskivélar og heyvinnuvélar.
CLAAS er, eins og önnur fyrirtæki
sem voru heimsótt í ferðinni, fjöl
skyldufyrirtæki en er gríðarlega stórt
og með árlega veltu í kringum 5
milljarða evra, eða um 700 milljarða
íslenskra króna!
Fyrirtækið á sér afar langa sögu
en í fyrra voru einmitt liðin 100 ár
frá því að forsvarmaður þess, August
Claas, fann upp og fékk einkaleyfi
árið 1921 á hnýtingabúnaði fyrir
bindivélar. Búnaðurinn var svo
einstakur að hann skapaði Claas
algjöra sérstöðu og vinsældir og má
segja að með þessari uppfinningu
hafi verið lagður grunnurinn að
framtíð fyrirtækisins.
Í heimsókninni var boðið
upp á kynningu á starfseminni
í sýningarsal CLAAS þar sem
vélaáhugafólk í hópnum fékk nóg
að skoða og dást að.
Geitabú með rúmlega
5.000 lítra á dag
Sjöunda heimsóknin í ferðinni var
á geitabú hjónanna Anita og Sander
Bremer í Hollandi. Þau hafa búið
með geitur í rúm 20 ár en áður var
Sander kúabóndi og Anita vann utan
bús. Enn í dag standa þau saman að
rekstrinum enda með 1.500 geitur,
mest af hinu mjólkurlagna Sana
kyni. Þessar geitur gefa af sér að
jafnaði um 3,5 lítra á dag en bestu
geiturnar fara í allt að 8 lítra daglega.
Geiturnar eru mjólkaðar tvisvar á
dag og taka mjaltirnar 2 tíma í mál
enda hringekjan með góð afköst, 100
geitur í einu, auk þess sem hvorki
er gerð krafa um að þvo spenana né
taka fyrstu bogana úr þeim heldur
bara skella tækjunum á.
Dagleg framleiðsla búsins er
rúmlega 5 tonn af mjólk og er
hún sótt á þriggja daga fresti af
sérhæfðu afurðafélagi, sem er
samvinnufélag 80 geitabænda í
Hollandi, en það greiðir félögum
sínum 7075 evrusent fyrir lítrann,
eða um 99106 íkr.
Mjólka „endalaust“
Það sem er svolítið sérstakt við
geiturnar er að þær mjólka í raun
„endalaust“, þ.e. mjaltaskeið þeirra
takmarkast ekki við ákveðið tímabil
heldur þar til þær eru með fangi á
ný. Vegna þessa er einungis lítill
hluti þeirra, 250 huðnur, notaðar
í kynbætur og til endurnýjunar
stofnsins, en endurnýjunarhlutfallið
er í kringum 30%, 50 þeirra eru
sæddar en hafrar sjá svo um hinar
200 og er burður oftast í janúar og
fram í mars.
Hver geit fær 34 kið og eru
þau tekin undan um leið og þau
hafa tekið til sín broddmjólkina og
eru á þurrmjólkurfóstru eftir það.
Hafurskiðin eru oftast alin upp í
um átta kílóa þunga og svo seld frá
búinu til slátrunar. Í Hollandi eru
hafurskiðin, sem gagnast lítið sem
ekkert á búum í mjólkurframleiðslu,
stundum send strax til slátrunar eftir
vikueldi en þá þarf að borga með
þeim 10 evrur, eða um 1.400 krónur.
Einungis með 13 hektara
Það vakti athygli hópsins að þetta
stóra geitabú er einungis með 13
hektara af landi og eins og liggur
í augum uppi eru geiturnar því
alltaf inni. Þar eru þær í rúmgóðum
hálmstíum í 200250 geita hópum.
Á sínu eigin landi rækta þau gras
sem geiturnar eru fóðraðar á en
það dugar auðvitað ekki svo
viðbótarhey, hálmur og kjarnfóður
er keypt að búinu.
Þá kaupa þau appelsínuhrat, sem
er afgangur frá djúsverksmiðju í
nágrenninu, og því blandað í fóðrið
fyrir geiturnar. Aðspurð sögðu þau
að geiturnar fái að jafnaði 0,7 kg
af kjarnfóðri á hvert framleitt kíló
mjólkur.
Með 700 naut í eldi!
Síðasta bændaheimsóknin var
til Wouter Dits en hann rekur
myndarlegt nautaeldisbú um 40 km
norðaustan við Brussel í Belgíu.
Hann kaupir nautin frá holdabúum
þegar þau eru 67 mánaða gömul
og hefur hann sérhæft sig í tveimur
frönskum holdakynjum, annars
vegar hinu þekkta Límúsín kyni og
svo hins vegar Blonde d'Aquitaine
frá samnefndu héraði í Frakklandi.
Greinarhöfundi er ekki kunnugt
um íslenskt heiti á þessu kyni en
eflaust mætti kalla gripi af þessu
kyni Hvíta Akvitanía.
Nautin eru afar þæg og góð
í meðförum og að hans sögn er
fyrir löngu búið að rækta úr þeim
skapillsku eða önnur vandamál
tengd lundarfari. Þetta gerir það
að verkum að hann getur verið
með þessi 700 naut á bilinu 724
mánaða með einungis tveimur
stöðugildum og það þrátt fyrir frekar
litla tæknivæðingu búsins.
Kaupir kálfana á 176.000 kr.
Eins og áður segir fær hann gripina
frá búum þegar kálfarnir eru teknir
undan en mörg slík bú eru ekki með
uppeldisaðstöðu heldur einungis
beitarhaga sem henta ekki til
áframeldis þessara gripa.
Kaupverð kálfanna var að sögn
Wouter 1.250 evrur, eða um 176
þúsund krónur, sem er vissulega
há upphæð fyrir 67 mánaða
gamla nautkálfa en að hans sögn
er afkoman góð í greininni enda
eru þessir gripir með gríðarlega
vaxtargetu, eða um 1,61,7 kíló
að jafnaði á dag.
Hann slátrar þeim við 2 ára
aldur og hefur meðalfallþunginn
verið 575600 kíló undanfarin
ár! Til samanburðar má geta þess
að meðalfallþungi álíka gamalla
ungnauta á Íslandi síðustu 12
mánuði, miðað við uppgjörs
tölur RML sem birtust í júlí
sl., var 235 kg!
Vill lækka fallþungann
Að sögn Wouter er ekki sjálfgefið
að svona mikill fallþungi sé
endilega heppilegastur og sagðist
hann vera að skoða það að færa
hann niður í 500 kíló að jafnaði.
Skýringin felst í því að síðustu
kílóin sem nautin bæta á sig eru
lengi að koma enda vaxtarkúrfan
þannig að það hægist á daglegum
vexti þegar nautin eru komin yfir
18 mánaða aldur.
Það megi því nýta aðstöðuna
betur með því að auka gripaveltuna
á búinu. Aðspurður sagðist hann fá
núna 5,85 evrur fyrir kílóið, eða um
825 krónur, og að það væri engin
bið eftir slátrun, raunar væri mikil
eftirspurn eftir slátrun svo hann
getur valið úr á hverjum tíma.
Smitgát mikilvæg
Vegna þess að hann kaupir kálfa af
bændum sem hafa ekki aðstöðu til
áframeldis fær hann oft gripi víða
að og það skapar honum ákveðið
vandamál sem snýr að smitgát.
Það getur verið erfitt að forðast
að fá smit inn á búið en hann reynir
eftir megni að halda aðkomuhópum
aðskildum a.m.k. fyrst um sinn.
Aðspurður sagði hann lungnabólgu
vera aðalvandamálið á búinu, en
hann bólusetur öll aðkomunaut við
komuna og aftur eftir 45 vikur.
Þá hefur hann heimild til þess að
gefa mótefni í fóðrið í hverri viku
þegar lungnabólga er algengust, en
það er á tímabilinu frá nóvember og
fram í febrúar. Þá eru nautin einnig
meðhöndluð með ormalyfjum.
Aðspurður um lyfjakostnað búsins
sagði Wouter að bólusetningin kosti
3 evrur, ormalyfjameðhöndlunin 5
evrur og mótefnameðhöndlunin 10
evrur, alls 18 evrur, eða um 2.540
krónur, á hvern sláturgrip.
Flokkar í hópa eftir stærð
Að sögn Wouter er hann með 110
hektara lands þar sem hann framleiðir
annars vegar maís og hins vegar gras
en hvort tveggja er votverkað á búinu.
Hann fær svo aukalega maísvothey
frá nágrannabónda. Þess utan fá
nautin vel af kjarnfóðri en hann
flokkar nautin í 3 fóðrunarhópa.
Fyrstu tveir eru vaxtarhópar
sem eru á sterkri próteinfóðrun en
síðasti hópurinn er lokaeldishópur
þar sem hann leggur áherslu á
fitusöfnun fyrir slátrun en ekki
vöxt. Þegar hann flokkar í hópana
þá fer hann ekki eftir aldri gripanna
heldur stærð þeirra og eru 25
hafðir saman í hóp á fyrstu tveimur
fóðrunartímabilunum og svo þegar
kemur að fitufóðrunartímabilinu
færir hann nautin niður í hólf með
78 nautum.
Má neyðarslátra heima
Fram kom í máli Wouter að hann
getur neyðarslátrað, sé þess þörf, s.s.
vegna slyss. Þá kemur dýralæknir á
staðinn og sér um aflífun og blóðgun
og svo er dýrinu ekið með hraði í
næsta sláturhús. Þar er skrokkurinn
verkaður, metinn og mældur og ef
sýrustig og aðrir gæðaþættir eru í lagi
er kjötið nýtanlegt til manneldis.
Að hans sögn gerist þetta svo
sem ekki oft en þegar það gerist
þá eru það u.þ.b. 50% innlagðra
og neyðarslátraðra gripa sem
nýtast í raun áfram, hinir falla í
gæðaflokkun vegna sýrustigs eða
annarra þátta og enda sem hráefni
fyrir lífgasframleiðslu.
Síðasta faglega heimsókn
hópsins var á landbúnaðarsýninguna
Libramont í Belgíu, en í næsta
Bændablaði verður fjallað um
þá sýningu.
Streymi heildverslun ehf.
Goðanesi 4
603 Akureyri
S
N
V
588 2544
streymi@streymi.is
www.streymi.is
Heimsókn á geitabú Bremer-hjónanna, sem standa fyrir miðju, með smá gjöf frá hópnum.
Mynd / Vilborg Hrund Jónsdóttir.
Geitakynið Sana er mjólkurlagið og eru geiturnar að gefa af sér að jafnaði
um 3,5 lítra á dag, en bestu geiturnar fara í allt að 8 lítra á dag.
Holdanautin 700 eru sérlega spök og auðveld í meðförum og er Wouter bara
með einn starfsmann með sér við búskapinn.
Það sem er
svolítið sérstakt
við geiturnar er að
þær mjólka í raun
„endalaust“ ...