Bændablaðið - 08.09.2022, Side 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. september 2022
Ferðamaður deyr – Hafnarfjörður
ÁHUGALEIKHÚS Á ÍSLANDI
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Nú er kominn sá tími árs að
þeir fjölhæfu meistarar áhuga-
leikhúsanna fari að gyrða sig
í brók og búa sig undir að æfa
fyrstu takta tilvonandi sýninga
þessa misseris.
Eða vinna bak við tjöldin.
Áætlaður æfingatími er um 6-8 vikur
og í kjölfarið gleður meistaraverkið
þá sem á horfa til jafns við þá sem
koma að því.
Yfirlit áhugaleikhúsa – ef þig
langar að vera með
Áhugaleikhús má finna víða um
land, allt frá höfuðborgarsvæðinu
til Hornafjarðar – en fyrir forvitna
og þá sem áhuga hafa – samkvæmt
upplýsingum frá Herði Sigurðarsyni,
framkvæmdastjóra Bandalags
íslenskara leikara, eru aðildarfélögin
eftirfarandi:
• Freyvangsleikhúsið Eyjafirði
• Halaleikhópurinn Reykjavík
• Hugleikur Reykjavík
• Leikdeild UMF. Gnúpverja
• Leikfélag A-Eyfellinga
• Leikfélag Blönduóss
• Leikfélag Dalvíkur
• Leikfélag Fjallabyggðar
• Leikfélag Flateyrar
• Leikfélag Fljótsdalshéraðs
• Leikfélag Hafnarfjarðar
• Leikfélag Hofsóss
• Leikfélag Hólmavíkur
• Leikfélag Hörgdæla
• Leikfélag Hornafjarðar
• Leikfélag Húsavíkur
• Leikfélag Hveragerðis
• Leikfélag Keflavíkur
• Leikfélag Kópavogs
• Leikfélag Mosfellssveitar
• Leikfélag Norðfjarðar
• Leikfélag Ölfuss
• Leikfélag Rangæinga
• Leikfélag Sauðárkróks
• Leikfélag Selfoss
• Leikfélag Seyðisfjarðar
• Leikfélag Sólheima
• Leikfélag Vestmannaeyja
• Leikfélagið Borg
• Leikfélagið Grímnir
Stykkishólmi
• Leikfélagið Skagaleikflokkurinn
Akranesi
• Leikfélagið Sýnir sem starfar á
landsvísu
• Leikflokkur Húnaþings vestra
• Leikhópurinn Lopi á Suðurlandi
• Litli Leikklúbburinn Ísafirði
• Stúdentaleikhúsið Reykjavík
• Umf. Biskupstungna Leikdeild
Bláskógabyggð
• Umf. Dagrenning Leikdeild
Lundarreykjadal
• Umf. Efling Suður-
Þingeyjarsýslu
• Umf. Íslendingur Leikdeild
Skorradalshreppi
• Umf. Reykdæla Logalandi
• Umf. Skallagrímur Leikdeild.
Allir geta lagt hönd á plóg
Það er þá úr nógu að moða fyrir þá
sem hafa hug á að leggja leiklistina
fyrir sig, en einnig er vert að benda
á störf þeirra er sjá um uppsetningu
leikmyndar, smíðar, saumaskap, ljós,
hljóð, tónlist eða í raun allt það sem
viðkemur sviðslistum. Þar vantar að
sjálfsögðu snillinga líka og um að
gera að hafa samband ef áhugi er
fyrir því að fá að vera með. Eins og
einhver sagði – áhugaleikhúsin eru
nær einu félagasamtökin sem ekki
kostar í, þar er allur aldur velkominn
og allir sem geta lagt hönd á plóg.
Þjónustumiðstöð BÍL veitir
aðstoð á margan hátt
Ágætt er að vita að í þjónustumiðstöð
BÍL (Bandalags íslenskra leikara)
sem er á Kleppsmýrarvegi 8, 104
Reykjavík, er að finna stærsta
leikritasafn landsins fyrir þá er
hyggja á að setja upp leikrit.
Starfsfólk miðstöðvarinnar
aðstoðar við útvegun sýningar leyfa
og sér um innheimtu höfundar-
greiðslna, auk þess að veita aðra
ráðgjöf, en síminn hjá BÍL er 551-
6974.
Lista yfir leikstjóra má svo
finna á vefsíðunni www.leiklist.
is undir flipanum Þjónusta og um
að gera að kynna sér feril þeirra og
fjölbreytileika.
Staðan þessa dagana
Eitthvað er um að leikfélögin séu
þegar komin með næsta verkefni,
ráðningar leikstjóra eru í pípunum
og eftirvænting hjá meðlimum.
Eins og staðan er núna hafa
þessi leikhús hafið uppsetningu á
eftirfarandi verkum:
• Leikfélag Hveragerðis:
Benedikt búálfur,
• Leikfélag Keflavíkur:
Ronja ræningjadóttir,
• Leikfélag Sauðárkróks:
Skilaboðaskjóðan,
• Leikfélag Fljótsdalshéraðs:
Gulleyjan (eftir Robert Louis
Stevenson)
• Leikfélag Kópavogs:
Tvö Dario Fo verk - Betri
er þjófur í húsi en snurða á
þræði/Lík til sölu
Leikfélag Hörgdæla áætlar að
setja verkið Stelpuhelgi í sýningu
eftir áramótin eða í febrúar 2023.
Leikfélag Vestmannaeyja
er einnig með hugmyndir um
barnaleikrit nú með haustinu á borð
við Ávaxtakörfuna og hefur þegar
ráðið leikstjóra til starfa.
Allar horfur eru því á góðu leikári
og áhugasamir hvattir til að vera í
sambandi við leikhúsin, hvort sem
um ræðir að kaupa miða á sýningar,
aðstoða við uppsetningu leikmynda,
ljósa, hljóðhönnun eða annars,
til dæmis því að spreyta sig á sviðinu.
/SP
Áhugaleikhúsin hefja starfsemi sína að nýju:
Titringur í lofti & tilhlökkun
í hjörtum sviðslistafólks
Fyrsti kossinn – Keflavík Stúart litli – Mosfellssveit Rúi og Stúi – Kópavogur Beint í æð – Selfoss Nei, ráðherra – Sauðárkrókur
Leitin að sumrinu – Sólheimar
Pétur Pan – Húnaþing vestra
Ef væri ég gullfiskur – Reykholt
Kardimommubærinn – Eyjafjörður
Hér má líta á myndir frá loknu leikári, en mikið var um glaum og gleði á þessu fyrsta ári eftir faraldur Covid-veirunnar.