Bændablaðið - 08.09.2022, Side 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. september 2022
Ávextirnir verða seldir í áskrift og
sent er frítt í fyrirtæki sem panta fyrir
ákveðna upphæð. Þjónustusvæðið er
Tröllaskagi, Eyjafjörður og Húsavík.
Bessi er lögreglumaður á Dalvík,
hann kynntist Bor árið 2019 þegar
hann flutti frá Madrid á Spáni til
Dalvíkur til að spila fótbolta með
Dalvík/Reyni.
„Aldrei hefði mig grunað hvað líf
mitt átti eftir að breytast mikið eftir
að ég eignaðist hann sem vin,“ segir
Bessi. Planið hjá Bor var að fá Sheilu
kærustu sína til Íslands og búa þar eitt
sumar og taka stöðuna að því loknu.
Sheila kom og fékk vinnu í
Íþróttamiðstöðinni á Dalvík en Bor
fékk stöðu sem stuðningsfulltrúi
í Dalvíkurskóla og síðar meir
kennarastöðu, en hann er menntaður
kennari frá sínu heimalandi.
Tungumálakennsla
í heita pottinum
Bessi segir þau Bor og Sheilu hafa
unnið hug og hjörtu Dalvíkinga
með jákvæðni sinni og kærleika.
„Þau hafa frá upphafi borið sig
eftir að komast inn í samfélagið
á Dalvík og tala bæði íslensku
mjög vel,“ segir hann og rifjar
upp að þegar þeir kynntust hafi sig
langað að læra spænsku og fóru
leikar þannig að Bessi kenndi Bor
íslensku og ensku raunar líka, en
hann launaði greiðann með því að
kenna honum spænsku.
„Kennslustundir fóru yfirleitt
fram í heita pottinum í Sundlaug
Dalvíkur og þar töluðum við
til skiptis, íslensku, ensku og
spænsku, um tuttugu mínútur
hvert tungumál. Fólk sem ekki
þekkti okkur rak stundum upp
stór augu þegar við vorum að
spjalla saman og sífellt að skipta
um tungumál,“ segir hann.
Hugmyndin að Fincafresh,
sem er spænskt orð og líkast til
nær herra- eða búgarður því best
í íslenskri þýðingu, má rekja til
þess að Bor kom eitt sinn í kaffi
til Bessa. „Ég tók fram fjórar
appelsínur, skar eina í sundur og
hún reyndist ónýt,“ segir hann og
skar hvern ávöxtinn á fætur öðrum
í sundur þangað til loks fannst ein
sem var næstum því æt. Bor spurði
hvaðan þessar appelsínur væru
keyptar, það væri alls ekki árstíð
þessa ávaxtar á þessum tíma.
„Það var eiginlega þá sem ég
áttaði mig á að Íslendingar eru
í sérflokki hvað það varðar að
láta bjóða sér gamla ávexti, við
þekkjum ekkert annað,“ segir
Bessi. Þegar hann spurði Bor hvar
Spánverjar kaupi appelsínur þann
tíma sem þær vaxa ekki á Spáni
svaraði hann: Hvergi, við borðum
bara það sem er nýtt.“
Fundu ávaxtabónda í Andalúsíu
Í framhaldinu ákváðu þeir félagar
að flytja sjálfir inn ferska ávexti
fyrir vini og ættingja, en sáu fljótt
að það myndi aldrei borga sig
vegna mikils flutningskostnaðar.
„Næsta hugmynd var að flytja
inn ávexti fyrir allan bæinn og
þetta stækkaði sífellt eftir því sem
við veltum vöngum lengur yfir
þessu og nærliggjandi byggðarlög
voru tekin með í dæmið. Það
varð úr að við stofnuðum fyrir-
LÍF&STARF
bondi@byko.is
Nótuð plastborð fyrir hesthús
Stærðir: 32 x 138 x 2400mm
Hjá BYKO færðu sterk og endingargóð
nótuð plastborð. Henta vel fyrir
hesthús og önnur gripahús.
úr endurunnu plasti
Innflutningur á Norðurlandi:
Ferskir, lífrænir ávextir frá Andalúsíu í áskrift
– Lögga og kennari á Dalvík stofnuðu saman fyrirtæki
Margrét Þóra Þórsdóttir
mth@bondi.is
„Viðbrögðin hafa vægast sagt verið ótrúlega góð, við erum hreinlega hrærðir
yfir þessum góðu viðtökum og hvað fólk hér á Norðurlandi og þá einkum
í Dalvíkurbyggð hefur stutt dyggilega við bakið á okkur og hvatt okkur
áfram,“ segir Bessi Ragúels Víðisson, Dalvíkingur sem ásamt félaga sínum,
Borja López Laguna, kallaður Bor, er í startholunum með innflutning á
ferskum lífrænum ávöxtum frá Spáni undir nafninu Fincafresh.
Skálað fyrir góðum samningi. Frá vinstri eru Fermin López Laguna, Bessi Ragúels Víðisson, Borja López Laguna,
Alberto Aragoneses og Ryan Danger Tanner liggur fyrir framan þá. Myndir / Aðsendar
Fincafresh mun bjóða upp á ávaxtakassa sem í er blanda af þeim ávöxtum
sem eru í uppskeru hverju sinni.
Finca bananar.