Bændablaðið - 08.09.2022, Síða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. september 2022
Gabríel og skrýtna konan er ný
skáldsaga eftir Guðna Reyni
Þorbjörnsson, sauðfjárbónda á
bænum Miðengi í Grímsnes- og
Grafningshreppi.
Þetta er fyrsta bók hans og
örugglega ekki sú síðasta. Guðni er
fæddur og uppalinn í Miðengi og er
þar með um 100 fjár. Hann er einnig
í fullu starfi sem leikskólakennari í
Kerhólsskóla.
Draumurinn rættist
„Ég get vart lýst því hversu
hamingjusamur ég er að geta kallað
mig rithöfund. Það er draumur sem
hefur lengi blundað í mér og því er
gríðarlega ánægjulegt að sjá hann
verða að veruleika. Bókin er skáldsaga
ætluð breiðum hópi lesenda þó ég vilji
ekki fara beint út í söguþráðinn. Fólk
verður bara að lesa bókina,“ segir
Guðni Reynir glottandi.
Sagan flokkast að hans sögn undir
svokallaðar fantasíubókmenntir þar
sem drauma- og þjóðsagnaverur
eru í stóru hlutverki. „Þegar sagan
var skrifuð var hún aðallega hugsuð
fyrir ungmenni á unglingastigi í
grunnskóla. Mig langaði að koma
með eitthvað ferskt og spennandi
lesefni inn á þann markað, sem
myndi á sama tíma halda tengingu
við þjóðsagnaverur okkar. Síðan hef
ég komist að því að yngri lesendur
hafa sótt mikið í bókina sem hefur
komið mér skemmtilega á óvart. Það
hefur fengið mig til þess að huga að
enn breiðari aldurshóp fyrir næstu
sögu og mér finnst það skemmtileg
áskorun,“ segir Guðni Reynir.
Viðtökur framar vonum
Guðni Reynir segist hafa fengið
frábærar viðtökur við nýju bókinni.
„Já, viðtökurnar hafa verið framar
vonum. Auðvitað er bókin tiltölulega
nýkomin út, en nú þegar hefur fólk
komið að máli við mig eða sent mér
skilaboð og hrósað mér fyrir söguna
og beðið um framhald. Þetta yljar
manni um hjartarætur og mér þykir
ofboðslega vænt um það. Um leið
hvetur það mig áfram á þessari braut.“
Leó bókaútgáfa gefur bókina út þar
sem hægt er að kaupa hana, en einnig
fæst hún í Pennanum Eymundsson
og hjá Forlaginu bókabúð. Einnig
er hægt að hafa beint samband við
Guðna Reyni til að nálgast eintak.
- En ætlar Guðni Reynir að gefa
út fleiri bækur?
„Já, ég stefni ótrauður á það því það
eru svo margar sögur í kollinum á
mér sem bíða eftir að komast á blað.
Ég á fullt í fangi með að halda aftur
af mér þegar hugmyndirnar byrja
að koma. Það er ágætis áskorun
fyrir mig að reyna að ná tökum á
hugmyndaflæðinu og skrúfa aðeins
fyrir það og leyfa hverri og einni
hugmynd að gerjast betur áður en ég
fer að vinna með hana. Þetta hefur
allt sinn tíma,“ segir Guðni Reynir.
Kindurnar frábærar
Guðni Reynir hefur alltaf haft mikinn
áhuga á sauðfjárbúskap og elskar
kindurnar sínar, enda er hann með
mjög flott bú þótt það sé ekki stórt.
„Kindurnar gefa mér mjög mikið
og það er alltaf gaman að stússast
í kringum þær, ekki síst á vorin í
sauðburðinum. Ég fæ oft margar
hugmyndir af sögum og söguþráðum
þegar ég er innan um féð, þótt mínar
hugmyndir komi fyrst og fremst í
gönguferðum um náttúruna. Þar fæ ég
minn innblástur og þaðan kom efnið
fyrst og fremst í nýju bókinni, ekki
úr fjárhúsinu en það verður kannski í
næstu bók,“ segir Guðni Reynir alsæll
með að geta kallað sig rithöfund.
/MHH
LÍF&STARF
Menning:
Fyrsta skáldsaga
sauðfjárbónda
Farskólinn, miðstöð símenntunar
á Norðurlandi vestra, er 30 ára
á þessu ári. Framboð námskeiða
hefur aldrei verið meira en um
20 námskeið verða í boði í haust.
Nú fimmta árið í röð eru að
hefjast námskeið um matarhandverk
sem haldin eru í samstarfi við
Vörusmiðjuna á Skagaströnd og
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi
vestra. Vörusmiðjan á Skagaströnd er
orðin svo umsetin að Farskólinn þarf
að festa daga þar ár fram í tímann til
að komast að með sín námskeið.
Halldór B. Gunnlaugsson er
verkefnastjóri hjá Farskólanum.
Haustið 2018 bauð skólinn upp á
sjö námskeið en upp frá því hefur
sífellt verið bætt við námskeiðum á
hverju hausti. „Í raun eru námskeiðin
orðin það mörg að haustið dugar
ekki, þannig að við erum með allt
skólaárið undir. Við erum nú með
alls 21 námskeið sem er undir hatti
Farskólans og fleiri á leiðinni, m.a.
erum við að undirbúa námskeið í
bjórbruggi og annað um þurrkun
á öllu mögulegu, enda var verið
að setja upp öflugan þurrkskáp hjá
Vörusmiðjunni,“ segir hann.
Námskeið skapa frumkvöðla
Halldór segir að í fyrstu hafi
námskeiðin verið hugsuð með bændur
í huga enda hafi þeir kallað eftir þeim.
„Það kom fljótt í ljós að alls konar
fólk hafði áhuga á námskeiðunum
okkar og alls ekki bara af Norðurlandi
vestra, því fólk alls staðar að af
landinu hefur sótt þau. Við höfum
reynt að koma til móts við þann hóp
með því að bjóða öll námskeið um
helgar þannig að fólk geti jafnvel sótt
tvö til þrjú námskeið sömu helgina,“
segir hann.
Það er frábært að fylgjast
með því hversu mikil gróska er í
matarhandverki á svæðinu og fer
sívaxandi. Við fylgjumst stolt með og
finnst við eiga í þessum frumkvöðlum,
þetta er mikið fólk sem hefur sótt nám
og námskeið hjá okkur,“ segir Halldór.
Frá því námskeið Farskólans á
sviði matarhandverks hófust hafa
orðið til tvær vandaðar heimavinnslur
á svæðinu og tvær aðrar eru í
burðarliðnum. „Það er nákvæmlega
það sem við vonuðumst eftir, að
fólk gæti byrjað sína starfsemi hjá
Vörusmiðjunni á Skagaströnd og
þegar umfangið réttlætti framkvæmdir
heima fyrir yrði farið í þær.“
Samstarf í Svíþjóð
Í janúar munu kennarar og starfsfólk
hjá Farskólanum og Vörusmiðjunni
heimsækja Eldrimner, sem er
matarhandverksskóli í Svíþjóð, og
segir Halldór að fólki sé velkomið
að slást með í för. Í ferðinni verður
m.a. sótt námskeið í ostagerð og
þá stendur til að heimsækja nokkra
smáframleiðendur á svæðinu
umhverfis skólann.
Mögulega verður einnig reynt að
fá kennara úr skólanum til liðs
við Farskólann og bjóða upp á
námskeið og jafnvel gætu kennarar
af Norðurlandi vestra sótt sænska
skólann heim. /MÞÞ
Guðni Reynir Þorbjörnsson með skáldsöguna Gabríel og skýtna konan.
Farskólinn á Norðurlandi vestra 30 ára:
Mikil gróska í matarhandverki
Þátttakendur á námskeiðum Farskólans koma alls staðar að af landinu. Hér er verið að kenna súrsun matvæla.
Myndir / Farskólinn, Norðurlandi V.
Framboð námskeiða nú í vetur hefur aldrei verið meira, yfir 20 mismunandi
námskeið eru í boði og áhuginn er mikill. Hér er í gangi námskeið í úrbeiningu.
Samtals voru 25 jeppar á sýningunni.
Þann 16. ágúst sl. var sýning á gömlum og nýjum Ford Bronco við aðstöðu Krúser í Reykjavík. Sýningin var á vegum Bronco.is, Ford Bronco
á Íslandi á Facebook og Krúser. Tilefni sýningarinnar var m.a. að vekja athygli á nýjum Ford Bronco sem kemur í sölu á Íslandi á næsta ári.
Samtals voru 25 Bronco jeppar á sýningunni, og þar af voru tveir splunkunýir jeppar, alveg eins og þeir sem Brimborg hefur sölu á árið 2023.
Bændablaðið mætti á staðinn og tók myndir. af því sem fyrir augu bar. /ÁL
Gamall og nýr Bronco. Hér sést nýi bíllinn
sem kemur í sölu á næsta ári við hlið þess
upprunalega. Við hönnun nýja jeppans var
greinilega horft til útlits þess gamla.
Einn frægasti Bronco landsins. Ferðatæki Birgis
Brynjólfssonar heitins, sem oft var kallaður Fjalli.