Bændablaðið - 08.09.2022, Síða 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 8. september 2022
Slökkvirörið frá Scotty FireFighter
inniheldur 15 cm langt kvoðuhylki í
föstu formi.
Einfalt í notkun; tengist við
garðslöngur og stærri slöngur.
Lausnin er umhverfisvæn.
Við stöðugt rennsli á 4,5 börum
dugar hleðslan í 60 mín.
Hentar mjög vel við 2,5 til 5,9 bör.
Fyrir bændur, sumarhús, slökkvilið og
hvern þann sem þarf að hafa góðan
búnað við hendina.
Skutull ehf.
S. 773-3131 & 842-1314
Skutull ehf.
S. 517-9991 & 842-1314
Tinger Armor
Eigum til á lager þessi frábæru
farartæki, se henta nánast
við allar aðstæður.t.d
Landbúnað-björg n r veit r-
slökkvilið-línuviðgerðir á
hálendinu-verktakar ofl.
Góð burðargeta-skráður fyrir
6 á landi en 4 á vatni.
Mjög hagstæð verð.
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta
Úrval af þægilegum og endingagóðum sokkum.
40 sölustaðir, hafðu samband til að fá upplýsingar um
sölustað í nágrenni við þig.
Sokka Kompaníið ehf. 230 Reykjanesbær - info@socks2go.eu - gsm: 831 8400 - www.socks2go.is
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
Landstólpi býður upp á heysýnatöku ásamt fóðuráætlanagerð og ráðgjöf
varðandi val á kjarnfóðri. Við viljum ekki einungis bjóða upp á gott fóður og
góða ráðgjöf heldur viljum við einnig upplýsa þig, hvetja og kveikja áhuga.
Ekki hika við að hafa samband við fóðurráðgjafa okkar í síma 480 5600 eða
senda póst á netfangið landstolpi@landstolpi.is
FÓÐUR TIL FRAMTÍÐAR
Fóðurráðgjöf og heysýnataka
EFTIRLIT &
EFTIRFYLGNI
FRÁBÆR
ÁRANGUR
FAGLEG
RÁÐGJÖF
NÁIÐ
SAMSTARF
Stjórn minningarsjóðs Ingibjargar
Sigurðardóttur og Guðmundar
Böðvarssonar, skálds og bónda
á Kirkjubóli í Hvítársíðu, komst
að þeirri niðurstöðu að Bjarni
Guðmundsson á Hvanneyri og
Anton Helgi Jónsson skáld hljóti
Borgfirsku menningarverðlaunin
árið 2022.
Verðlaunin eru veitt í tveimur
flokkum. Annars vegar fyrir
menningarmál og hins vegar ljóðlist
og voru afhent í Reykholtskirkju
sunnudaginn 28. ágúst síðastliðinn.
Fróðleikur um búskaparhætti
Í greinargerð vegna verðlaunanna
segir meðal annars að Bjarni
Guðmundsson hafi verið ötull við að
safna fróðleik um búskaparhætti frá
upphafi landnáms til dagsins í dag og
að þeim fróðleik hafi hann miðlað
í fjölda bóka og rita og hann hljóti
menningarverðlaun Minningarsjóðs
Ingibjargar Sigurðardóttur og
Guðmundar Böðvarssonar.
Einföld sem flókin
fyrirbæri skilgreind
Um Anton Helga Jónsson segir að
meðal helstu höfundareinkenna hans
sé ríkt skopskyn sem með tímanum
hefur fengið æ dýpri undirtóna.
Hann beitir heimspekilegri nálgun
á viðfangsefnin sem geta verið
afar hversdagsleg, jarðbundin
og líkamleg. Einföld sem flókin
fyrirbæri eru skilgreind upp á nýtt
með frumlegum og óvæntum hætti,
tvíræðni og margræðni eru meðal
helstu einkenna í skáldskap hans.
Ljóðin afhjúpa hvers kyns mótsagnir
mannlegs lífs, bresti samfélagsins en
einnig einstaklingsins. Anton Helgi
hlaut verðlaunin fyrir ljóðlist.
Um minningarsjóðinn
Minningarsjóður Ingibjargar
Sigurðardóttur og Guðmundar
Böðvarssonar frá Kirkjubóli í
Hvítársíðu var stofnaður 1974 og
hlutverk hans er að leggja lið og
vekja athygli á því sem vel er gert
í menningarmálum í Borgarfirði og
ljóðlist á Íslandi. Auk þess að halda
á lofti minningu hjóna Ingibjargar
Sigurðardóttur og Guðmundar
Böðvarssonar, skálds og bónda á
Kirkjubóli í Hvítársíðu. /VH
Anton Helgi Jónsson við afhendinguna.
Minningarsjóður Ingibjargar Sigurðardóttur og Guðmundar Böðvarssonar:
Bjarni og Anton Helgi hlutu
Borgfirsku menningarverðlaunin
Bjarni Guðmundsson tók lagið. Myndir / Anton Guðmundsson