Bændablaðið - 08.09.2022, Qupperneq 49

Bændablaðið - 08.09.2022, Qupperneq 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 8. september 2022 Víkurhvarf 5 Vagnar og stálgrindahús frá WECKMAN Steel STÁLGRINDAHÚS Fjöldi stærða og gerða í boði Stærð palls 2,55 x 8,60 m Verð kr. 1.890.000,- með virðisaukaskatti Weckman flatvagnar / löndunarvagnar RÚLLUVAGNAR – LÖNDUNARVAGNAR Stærð palls 2,55 x 9,0m Vagnar 6,5 - 17 tonn. Verðdæmi: 8 tonn kr. 1.250.000,- með virðisaukaskatti. 12 tonn kr. 1.590.000,- með virðisaukaskatti. STURTUVAGNAR Burðargeta 6,5 – 17 tonn þak og veggstál galvaniserað og litað Bárað• Kantað• Stallað• Fjöldi lita í boði Víkurhvarfi 5 • Kópavogi • Sími 588 1130 hhaukssonehf@simnet.is Víkurhvarf 5 SK ES SU HO RN 2 01 2 Víkurhvarf 5 Vagnar og stálgrind hús frá WECKMAN Steel STÁLGRINDAHÚS Fjöldi stærða og gerða í boði Stærð palls 2,55 x 8,60 m Verð kr. 1.890.000,- með virðisaukaskatti Weckman flatvagnar / löndunarvagnar RÚLLUVAGNAR – LÖNDUNARVAGNAR Stærð palls 2,55 x 9,0m Vagnar 6,5 - 17 tonn. Verðdæmi: 8 tonn kr. 1.250.000,- með virðisaukaskatti. 12 tonn kr. 1.590.000,- með virðisaukaskatti. STURTUVAGNAR Burðargeta 6,5 – 17 tonn þak og veggstál galvaniserað og litað Bárað• Kantað• Stallað• Fjöldi lita í boði Víkurhvarfi 5 • Kópavogi • Sími 588 1130 hhaukssonehf@simnet.is Víkurhvarf 5 SK ES SU HO RN 2 01 2 Ögurhva fi 8 7-18 tonn Alhliða fasteignasala Kynslóða- / eigendaskipti bújarða Stofnun og skráning landspildna og lóða Loftur Erlingsson Löggiltur fasteignasali GSM 896-9565 loftur@husfasteign.is Hús Fasteignasala · Austurvegi 26 · 800 Selfoss Sími: 497 1155 · www.husfasteign.is Kle�agörðum 11 - 104 Reykjavík - meiraprof.is - meiraprof@meiraprof.is Ré�ndin gilda í Evrópu Auknir atvinnumöguleikar Íslensk og ensk námskeið C-CE-D-C1-C1E-B/Far Skráning á námskeið er inni á síðunni meiraprof.is Fyrirspurnir sendist á meiraprof@meiraprof.is Íslensk námskeið mánaðarlega Ensk námskeið 4 - 6 sinnum á ári Skorri ehf • Bíldshöfði 12 • 110 Rvk • 577-1515 • Nýtt! vefverslun: www.skorri.is 516-2600 vorukaup@vorukaup.is • Loft í loft • Loft í vatn • Vatn í vatn Reiknuð hækkun september- grundvallar frá síðustu verðlagningu var 4,56% og fengu bændur fulla hækkun samkvæmt uppreiknuðum verðlagsgrundvelli. Á dagskrá fundarins lá, ásamt öðru, fyrir að taka fyrir erindi matvælaráðuneytisins um tillögur starfshóps um verðlagsmál. Umræddur starfshópur var skipaður við endurskoðun starfssamnings nautgriparæktarinnar 2019. Þann 6. maí 2021 skilaði starfshópurinn skilabréfi til ráðherra þar sem lagðar eru til þrjár megintillögur. Undirrituð sat í umræddum starfshóp og tel ég mikilvægustu tillögu bréfsins vera að reiknilíkan verðlagsbúsins verði endurskoðað en það var samróma álit starfshópsins. Endurnýjun verðlagsgrunns hefur lengi verið til umræðu meðal kúabænda og kom talsvert til tals í nýlokinni hringferð BÍ um landið. Það er ekki að ástæðulausu. Verðlagsgrunnur kúabús er orðinn yfir 20 ára gamall, grunnbúið er með 188.000 lítra framleiðslu auk uppeldis geldneyta en á síðustu áratugum hefur orðið gríðarleg framþróun í íslenskri mjólkurframleiðslu. Árið 2021 var fjöldi kúabúa 517 talsins, þeim hefur fækkað og þau hafa stækkað. Meðalbústærð síðasta árs var 51,1 kýr og meðal innleggið 288.088 lítrar mjólkur. Meðalframleiðsla íslenskra mjólkurkúa hefur aukist um 50% á síðustu 30 árum og má rekja þá þróun til bættrar þekkingar og fóðrunar en ekki síst bætts aðbúnaðar og stórkostlegrar tækniframþróunar, m.a. með tilkomu mjaltaþjóna. Það gefur því auga leið að núverandi grundvöllur lýsir ekki hagkvæmu nútímabúi. Mörg ár aftur í tímann má finna bókanir í fundargerðum verðlagsnefndar þar sem nefndarmenn leggja til og ítreka mikilvægi þess að verðlagsgrundvöllur verði uppfærður. Það er því afar ánægjulegt að á fundi nýrrar verðlagsnefndar í síðustu viku var ákveðið að fyrir næsta fund verðlagsnefndar í októberbyrjun muni formaður nefndarinnar í samstarfi við matvælaráðuneytið gera tillögu um framkvæmd og verkáætlun að uppfærslu á reiknilíkönum verðlagsnefndar, eins og lagt er til í skilabréfi starfshópsins. Lengi hefur verið rætt um verkefnið eins og ógjörningur væri að framkvæma það. Flóknari verkefni hafa þó verið leyst og með tilkomu gagna úr rekstrarverkefni RML ætti lítið að vera því til fyrirstöðu að uppfæra verðlagsgrundvöll kúabús. Aftur til framtíðar Uppfærsla verðlagsgrunns er að mínu mati grundvallarforsenda fyrir styrkingu núverandi verðlagskerfis og verður grunnurinn að endurspegla hagkvæmt nútímabú. Íslenskir kúabændur hafa á síðustu árum hagrætt verulega í sínum rekstri, búum hefur fækkað, þau hafa stækkað og í heildina framleiða íslenskir bændur í dag meiri mjólk með færri kúm. Þegar niðurstöður rekstrar- verkefnis RML fyrir árið 2020 og kostnaðarliðir verðlagsgrunns septembermánaðar sama ár eru borin saman má einna helst sjá talsverðan mun í liðum breytilegs kostnaðar svo sem kjarnfóðri, rekstrarvörum og aðkeyptri þjónustu. Í verðlagsbúinu eru þessir liðir stórlega vanmetnir, það sama á við um vaxtakostnað. Við höfum ekki enn niðurstöður úr rekstrarverkefni RML fyrir 2021 en eins og flestir vita hafa hækkanir á aðföngum verið gríðarlegar undanfarið, auk þess að aukinn vaxta- og fjármagnskostnaður er farinn að taka verulega í í rekstri nútímakúabúa sem hafa mörg hver farið í gegnum mikinn uppbyggingarfasa með tilheyrandi fjárfestingum. Tekjuliður núverandi verðlags- grundvallar hefur ekki verið tekinn til endurskoðunar eftir gildistöku nýrra búvörusamninga svo að breytingar á afurðaverði, beingreiðslum og öðrum tekjum hafa því ekki haft áhrif við verðákvörðun. Þetta hlýtur að þurfa taka til skoðunar við uppfærslu á verðlagsgrunninum. Hér vil ég enn og aftur nýta tækifærið og hvetja þau ykkar sem hafa hingað til ekki tekið þátt í rekstrarverkefni RML til að gera það. Gagnasafnið sem fæst út úr verkefninu er afar dýrmætt fyrir hagsmunagæslu landbúnaðarins en það er ekki síst gagnlegt fyrir bændurna sjálfa í þeirra búrekstri. Þau raungögn sem úr verkefninu fást nýtast að vonum til að færa verðlagsgrunn kúabús aftur til framtíðar. Herdís Magna Gunnarsdóttir, varaformaður BÍ og formaður NautBÍ Ný verðlagsnefnd og upp- færður verðlagsgrundvöllur Herdís Magna Gunnarsdóttir. Ný verðlagsnefnd hittist á sínum fyrsta fundi í síðustu viku á nýrri skrifstofu matvælaráðuneytisins. Fráfarandi nefnd fundaði síðast í mars þegar verðlagsgrundvöllur marsmánaðar var tekinn fyrir og var þá einnig síðast verðlagt. Kúabændur hafa fundið fyrir verulegum hækkunum í sínum rekstri, í aðföngum, aðkeyptri þjónustu og vaxtahækkunum. Það var því afar brýnt að ný nefnd tæki til starfa.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.