Bændablaðið - 08.09.2022, Page 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. september 2022
Í síðustu tölublöðum Bændablaðsins hef
ég skrifað greinar um starfsemi RML. Í
þessari grein mun ég fjalla um fjármála-
og tæknisvið sem virkar sem stoðsvið fyrir
fagsviðin tvö ásamt því að sjá um ytri
tækniþjónustu fyrirtækisins.
Fjármál, mannauðsmál,
markaðsmál og tæknimál eru
meginviðfangsefni sviðsins.
Tíu manns vinna við
forritun, þjónustu, mannauðs
eða fjármálastjórnun. Öll
tæknimál RML hvort sem
það lýtur að innri rekstri eða
rekstri skýrsluhaldskerfa
eru á ábyrgð þessa
sviðs. Fjármál, launa- og
rekstrarbókhald ásamt verkskráningu eru
ansi viðamikil verkefni. Reikningagerð
byggir á verkskráningu starfsfólks en þar
eru einnig mikilvægar upplýsingar sem eru
nýttar við verkefnastjórnun og utanumhald
um vinnuframlag til einstakra verkefna.
Upplýsingarnar nýtast við greiningu á því hvað
þau framlög til RML eru að fara í.
Öll kerfi RML eru miðlæg þannig að
ekki á að skipta máli hvar viðkomandi er
staðsettur. Mikil áhersla hefur verið lögð á
að rafræn tenging starfsmanna sé góð og var til
dæmis Covid engin áskorun fyrir okkur hvað
fjarvinnslu varðar þar sem við vorum vön að
takast á við það að vinna að verkefnum þrátt
fyrir að starfsfólk og viðskiptavinur væru ekki
stödd á sama stað.
Þróun og vinna við skýrsluhaldskerfi
Bændasamtakanna er á ábyrgð RML
samkvæmt sérstöku samkomulagi sem gert var
þegar tölvudeild Bændasamtakanna var færð
yfir til RML í ársbyrjun 2020. Fram að þeim
tíma var mikil samvinna um þróun forritanna
milli ráðunauta RML og tölvudeildar.
Þegar tölvudeildin kom yfir til RML voru
allir þættir sem tengjast þróun, viðhaldi
skýrsluhaldskerfa/forrita og þjónusta komin
á einn stað, en þjónustan hafði verið fyrir í
RML. Skýrsluhaldskerfin eru fimm, fjögur
þeirra halda utan um íslensku búfjárkynin en
forritið jörð er landupplýsingakerfi. RML
þjónustar og heldur utan um dk bóhaldslausn
fyrir bændur en þorri bænda nota þessa lausn
við sitt bókald. Auk þess er haldið utan um
nokkur önnur minni forrit fyrir þriðja aðila
innan tæknihluta RML.
Búfjárkerfin Huppa, Fjárvís, Heiðrun og
WorldFengur gegna fyrst og fremst því hlutverki
að halda utan um ætternisupplýsingar viðkom-
andi búfjártegunda. Ætternisupplýsingarnar
eru nauðsynlegar við ræktun stofnsins en
líka til þess að halda utan um búféð sem
sérstakt íslenskt kyn. Ísland hefur alþjóðlegar
skuldbindingar til varðveislu á þeim stofnum
sem hér eru og nýtast skýrsluhaldskerfin
til þess að halda utan um þær upplýsingar.
Skýrsluhaldskerfin eru einnig notuð til ýmiss
konar upplýsingarsöfnunar. Greiðslukerfi
í sauðfjár og nautgriparækt byggir á
upplýsingum úr Fjárvís og Huppu. Einnig
eru kerfin til grundvallar við forðagæslu.
Mikilvægi skýrsluhaldskerfanna er því ótvírætt
en einnig hefur verið kallað eftir því að þau
verði notendavænni, nýtist enn fremur við
bústjórn og geti tengst hvers konar jaðartækjum
sem nýtast við búskapinn. WorldFengur er eina
skýrsluhaldskerfið sem er alþjóðlegt en það
heldur utan um ætternisupplýsingar íslenska
hestsins í öllum þeim löndum þar sem hann
er ræktaður að einhverju marki. WorldFengur
og íslenskt eignarhald hans er því gríðarlega
mikilvægt auk fyrrgreinds hlutverks, þá er
WorldFengur undistaða þess að varðveita
íslenska hestinn sem íslenskan og fá til þess
alþjóðlega viðurkenningu.
Skýrsluhaldskerfið Jörð.is nær til
grunnskráningar á túnum, skráningar á
uppskeru hvort sem það er í útiræktun eða
ylrækt, skráningar á ræktun, ástandi lands,
áburðargjöf og notkunar á varnarefnum.
Einnig heldur kerfið utan um niðurstöður
efnagreininga á heyi, búfjáráburði og jarðvegi.
Skráningar í Jörð.is liggja til grundvallar
greiðslu vegna ræktunarstyrkja. Jörð er
þannig eitt af verkfærum sem bændur nota við
áætlanagerð og ákvarðanatöku í búrekstrinum.
Eins og í skýrsluhaldskerfunum í búfjárrækt
hefur verið kallað eftir því að tengingar við
jaðartæki, svo sem áburðardreifara verði komið
á í Jörð.is til að skráningar verði nákvæmari
og markvissari.
Skýrsuhaldskerfin krefjast mikils viðhalds
og þróunarvinnu. Tæknin þróast hratt,
reglugerðir breytast og kröfur notenda verða
eðlilega í samræmi við aðrar tækniþróanir.
Það er því áskorun að halda úti kerfum sem
jafn ríkar kröfur eru gerðar til með mjög
fáum notendum til þess að standa undir þeim
kostnaði sem rekstur þeirra krefst.
Á fjármála- og tæknisviði eru einnig fleiri
verkefni unnin en hér eru upptalin í stuttri
grein en upplýsingar um þjónustu og ráðgjöf
má sjá á heimasíðu okkar, WWW.rml.is, ásamt
því að starfsfólk RML er ávallt til viðtals,
hvort sem um er að ræða í gegnum síma eða
á starfsstöðvum RML.
Karvel Karvelsson,
framkvæmdastjóri RML.
Karvel
Karvelsson.
Starfsemi RML
– Fjórði hluti
Í síðasta tölublaði Bændablaðsins
(15. tölublað) birtist fyrri hluti
umfjöllunar um NØK ráðstefnuna
sem haldin var dagana 24.-27. júlí
sl. á Selfossi.
Þar fjölluðum við um ráðstefnuna í
heild sinni og erindin sem haldin voru
undir yfirskriftinni „loftslagsmál,
umhverfi og velferð“. Í þessu
tölublaði ætlum við að fjalla um
seinni hluta ráðstefnunnar en hann
sneri að framleiðslustjórnun, kúm
framtíðarinnar, nýjum eiginleikum,
litlum stofnum og norrænu samstarfi.
Mismunandi framleiðslustjórnun
Dagurinn byrjaði á erindum um
framleiðslustjórnun í mjólkur-
framleiðslu á Íslandi og í Finn-
landi. Framleiðslustjórn í mjólkur-
framleiðslu í núverandi mynd má
segja að hafi verið tekin upp árið
1992 hér á landi og var fest í sessi
við endurskoðun samnings um
starfsskilyrði í nautgriparækt árið
2019 þegar yfirgnæfandi meirihluti
kúabænda, eða um 90% bænda,
kaus að halda í greiðslumarkskerfið.
Byggir núverandi kerfi á tilboðs-
markaði þar sem markaðsverð
greiðslumarks er grundvallað á
jafnvægisverði, hámarksverð er þó
þrefalt afurðastöðvaverð. Alls eru
haldnir þrír markaðir á ári en bændur
geta að hámarki óskað eftir 50.000
lítrum til kaups á hverjum markaði.
Í Finnlandi hefur greiðslumarkskerfið
tekið töluverðum breytingum
undanfarin ár. Á árunum 1984-1995
var það á vegum finnska ríkisins, þ.e.
ríkið sá um útdeilingu greiðslumarks.
Lítil hreyfing var á markaðinum og
bændur áttu erfitt með að stækka bú
sín. Ekkert fjármagn tapaðist þó út úr
greininni. Árið 1995 gengu Finnar í
Evrópusambandið (ESB), þá breyttist
kerfið og greiðslumarkið gekk kaupum
og sölum milli bænda. Við það rauk
verðið upp og greiðslumarkið varð
mikil fjárfesting en bændur gátu
stækkað við sig, höfðu þeir efni á því.
Árið 2015 var greiðslumarkskerfið
í mjólk síðan afnumið innan ESB.
Tilgangur aðgerðarinnar var að
lækka mjólkurverð og „eyðileggja“
mjólkurmarkaðinn þar sem meiri
mjólk þýddi lægra verð. Bar aðgerðin
þó lítinn árangur þar sem verðlækkun
á mjólkurvörum skilaði sér ekki til
neytenda. Framleiðslumarkaðurinn
varð hins vegar frjáls fyrir bændur,
þeir gátu aukið framleiðslu sína en
við það varð mjólkurverð óstöðugt
og innflutningur á mjólkurvörum
jókst. Á síðastliðnu ári, 2021, tók
„hið nýja greiðslumark“ gildi þegar
stærsta mjólkurafurðastöð Finnlands,
Valio, tók að útdeila framleiðslurétti
til sinna framleiðenda. Samningur
er gerður við hvern og einn bónda
en framleiðslurétturinn er byggður
á framleiðslugetu búsins, aðstöðu,
gæðum mjólkurinnar og öðrum þáttum.
Þeir bændur sem hafa samning við
afurðastöðina geta þannig selt mjólk
sína til hennar en framleiðslurétturinn er
ekki framseljanlegur og verða bændur
að skila honum hyggist þeir ekki
nota hann. Mjólkurframleiðsluréttur
bænda í Finnlandi liggur því í
dag hjá afurðastöðvunum sem
ráða gæðaviðmiðum, magninu og
staðsetningu framleiðslunnar.
Kýr framtíðarinnar
Yfirskrift dagsins var meðal annars
kýr framtíðarinnar – nýir eiginleikar –
litlir stofnar. Litlir stofnar á sannarlega
við íslensku kúna en Egill Gautason,
doktorsnemi við Árósaháskóla, hélt
erindi um rannsóknir sínar á skyldleika
íslensku kýrinnar við önnur kúakyn,
áhrif innflutnings á stofninn og
skyldleikarækt. Rannsókn hans leiddi
í ljós að íslenska kýrin tilheyrir hópi
norðurnorrænna kúakynja og er eini
stóri, óblandaði stofninn innan hópsins.
Önnur kúakyn sem tilheyra
þessum hópi eru meðal annars
sænskar fjallakýr og finnska
landkynið, Finncattle. Nýlegar,
óbirtar rannsóknir hafa síðan sýnt að
norska Telemark kúakynið er í raun
skyldast íslensku nautgripunum.
Þrátt fyrir mjög takmarkaðan
innflutning á árum áður er íslenska
kýrin svo til laus við innblöndun
og innflutningur því haft lítil áhrif
á stofninn. Þrátt fyrir að íslenska
kýrin hafi verið einangruð lengi
er skyldleikarækt lítil í stofninum
en hún eykst um 0,14-0,19% á ári,
sem er sambærilegt og hjá öðrum
mjólkurkúastofnum.
Í Noregi eru helstu áherslur GENO
ræktunarsambandsins að norska
rauða kúakynið verði leiðandi sem
sjálfbært og efnahagslega hagstætt
kúakyn. Þar er lögð áhersla á að
viðhalda erfðabreytileika, forðast
skyldleikaræktun og hafa breitt
ræktunarmarkmið. Minni áhersla
er nú lögð á mjólkurmagn en aukin
áhersla á júgurheilbrigði, heilsufar
og frjósemi. Auk þess er verið að
rannsaka nýja eiginleika á borð við
fóðurnýtingu og metanlosun. Fyrstu
niðurstöður metanrannsókna sýna að
kýrnar losa að meðaltali 441 g metans
á dag, erfðafræðilegur breytileiki
er til staðar í kyninu og eiginleikinn
hefur arfgengi upp á 0,22. Ýmis
tækifæri eru því til staðar til að rækta
umhverfisvænna kyn en áframhaldandi
rannsóknir mikilvægar. Niðurstöður
fóðurrannsókna liggja enn ekki fyrir
en Norðmenn vinna nú að þróun
fóðurnýtingarstuðuls fyrir norska rauða
kúakynið. Í Svíþjóð er áhersla lögð
á nýja eiginleika líkt og metanlosun
og aukna fóðurnýtingu gripanna en
stefnt er að frjósamari og heilbrigðari
nautgripum með gott skap, gott
sköpulag og mikil mjólkurgæði. Telja
Svíar að langlífi, heilbrigði og frjósemi
komi til með að verða fyrirferðarmeira
í ræktun næstu ára en mikilvægt sé að
stunda ábyrga og sjálfbæra ræktun.
Það sé gert með því að varðveita gömul
gen (ræktunarkyn), fylgja ræktunar-
markmiðum, lágmarka umhverfisáhrif
og síðast en ekki síst, með því að skapa
verðmæti fyrir bændur.
Ræktendur danskra Holstein kúa
telja að nú fyrst förum við að sjá
raunverulega framleiðslugetu kúnna
og gert er ráð fyrir því að í fyrsta skipti
framleiði yfir 1.000 Holstein kýr meira
en 100.000 kg af mjólk á æviskeiði
sínu. Stefnt er á aukið langlífi og betri
nýtingu á gripunum en hvoru tveggja
leiðir af sér umhverfisvænni kýr.
Áhersla er einnig lögð á gott sköpulag
og góða fóðurnýtingu en gífurlega
sterkt val er til staðar innan Holstein
kynsins, bæði með erfðamengisúrvali
og kyngreiningu sæðis. Fram kom að
fjöldi Holstein kúa á Norðurlöndunum
hefur haldist nokkuð stöðugur
undanfarna áratugi. Þannig hefur kúm
af öðrum kynjum fækkað en hlutfall
Holstein-kúa fer stöðugt vaxandi.
Norrænt samstarf
(NCDX og iDDEN)
Árið 2013 ákváðu Norðurlöndin að slá
höndum saman og þróa sameiginlegt
viðmót sem flytur gögn milli mjaltakerfa
og gagnagrunna nautgriparæktarinnar.
Mtech Digital Solutions í Finnlandi
sá um þróun viðmótsins sem kom til
notkunar árið 2015 og gengur undir
nafninu Nordic Cattle Date Exchange
(NCDX). NCDX sér um flutning gagna
á milli mjaltakerfanna og gagnagrunna
skýrsluhaldsins og er í dag tengt Lely
og DeLaval mjaltaþjónum. NCDX er
þannig notað á yfir 1.500 búum í dag
en það safnar helstum upplýsingum um
kýrnar; grunnupplýsingum, hreyfingu,
burðum, beiðslum, fangskoðunum,
geldstöðu auk mjólkurskýrslna.
Kerfið var síðan útvíkkað þegar
Ástralía, Austurríki, Belgía, Kanada,
Þýskaland, Holland og Bandaríkin
keyptu hugbúnað NCDX og stofnuðu
félagið iDDEN eða The International
Dairy Data Exchange. Félagið sér nú
um áframhaldandi þróun kerfisins og
hefur sett sér þau markmið að safna
gögnum ekki einungis úr mjaltaþjónum
heldur einnig úr hálsböndum kúnna,
úr gjafakerfum og tilraunastofum
(mjólkurskýrslur). Með stofnun iDDEN
hafa 13 lönd með samtals 20 milljónir
mjólkurkýr sameinast um þróun á
tæknilausnum sem gerir gagnaflæði
milli tölvustýrða mjaltakerfa og
annarra bústjórnarlausna einfalt og
skilvirkt. RML er aðili að NCDX
og iDDEN og vinnur að innleiðingu
lausnarinnar hérlendis.
Biocode
Harri Mäkivuokko kynnti ráðstefnugesti
fyrir Biocode, vefþjónustu sem hjálpar
fyrirtækjum og einstaklingum að finna
leiðir til að minnka kolefnisfótspor
sitt. Vefþjónustan er í eigu tveggja
finnskra landbúnaðarsamtaka,
Association of ProAgria og Mtech
Digital Solutions en markmið hennar
er að skapa verðmæti fyrir bændur og
matvælafyrirtæki. Forritið er einfalt
í notkun, notendur þurfa einungis að
þekkja sína framleiðslu og/eða þá
þjónustu sem þeir nýta sér, forritið
reiknar út kolefnisfótsporið byggt á
allri virðiskeðju (lífsferil) vörunnar og
leggur til leiðir hvernig minnka megi
kolefnisfótsporið. Bændur t.d. skrá inn
uppskeru og þá þjónustu sem þeir nýta
og fá þannig upplýsingar hvernig þeir
geti stundað umhverfisvænni búskap.
Þannig er hægt að nota forritið til að
aðstoða sig við að velja umhverfisvænni
vöru ásamt því að velja umhverfisvænni
framleiðendur og fyrirtæki.
Að lokum
Það helsta sem í huga manns situr eftir
ráðstefnuna er hve Norðurlöndin eiga
miklu meira sameiginlegt heldur en
maður leiðir hugann að dags daglega.
Samstarf þessara frændþjóða er
vaxandi og hefur aukist jafnt og þétt á
undanförnum áratugum. Þar má nefna
sameiginlegt kynbótastarf Dana, Finna
og Svía og öflugt og vaxandi samstarf
á sviði skýrsluhalds. Það er alls ekki
óhugsandi að framtíðin beri í skauti
sér einn sameiginlegan norrænan
nautgriparæktargagnagrunn.
Greinilegt er að áherslur í
ræktunarstarfinu færast stöðugt yfir
á aðra eiginleika en nyt og aðrir
eiginleikar, sem einkum lúta að
endingu, frjósemi og heilsufari vega
stöðugt þyngra. Þá er stöðugt leitað
nýrra leiða til að meta þessa þætti
með meira öryggi en hingað til.
Loftslagsmálin voru fyrirferðarmikil
og þess ekki langt að bíða að losun
metans frá nautgripum fari minnkandi
með kynbótum, betri fóðurnýtingu,
meiri endingu kúnna og betri og
markvissari bústjórn.
Greinilegt var að Danir töldu afnám
framleiðslustýringar eitthvert mesta
happ sem mjólkurframleiðsla hefur
upplifað í langan tíma meðan að hinar
þjóðirnar voru meira efins.
Félagsskapur eins og NØK á fullan
rétt á sér og mun áfram stuðla að aukinni
samvinnu og betri og hagkvæmari
nautgriparækt á Norðurlöndunum.
Guðmundur Jóhannesson
og Guðrún Björg Egilsdóttir,
félagsmenn í NØK.
Guðrún Björg
Egilsdóttir.
Guðmundur
Jóhannesson.
NØK (Nordisk Økonomisk Kvægavl) 2022
-Seinni hluti
LESENDARÝNI