Bændablaðið - 08.09.2022, Síða 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 8. september 2022
A Wendel ehf.
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík,
S:551 5464 - wendel@wendel.is
www.wendel.is
Hilltip Icestriker 900–1600L
Salt og sanddreifari í tveim
stærðum fyrir stóra pallbíla og
minni vörubíla. Rafdrifinn 12V.
Hilltip Icestriker 380–550L
Salt og sanddreifarari í tveim
stærðum, fyrir minni pallbíla.
Rafdrifinn 12V.
Hilltip Icestriker 600 TR
Rafdrifinn kastdreifari
fyrir dráttarvélar m/öflugum
efnisskömmtunarbúnaði.
Hilltip Snowstriker VP
Fjölplógur fyrir pallbíla, minni
vörubíla og jeppa. Fáanlegur í
185–240 cm breidd.
Hilltip Snowstriker SP
Snjótönn fyrir pallbíla, minni
vörubíla og jeppa. Fáanleg í
165–240 cm breidd.
Hilltip Fjölplógur MVP
Fjölplógur fyrir ameríska
pallbíla t.d. RAM 3500,
GMC 3500 og FORD 350.
Blóðtakan eykur nytjar af
hrossum og styrkir afkomuna
Með annars ágætri umfjöllun
um blóðtökur úr hryssum í
Bændablaðinu þann 25. ágúst sl.
birtist viðtal við þau York Ditfurth
og Sabrinu Gurtner, fulltrúa þýsk-
svissnesku samtakanna TSB/AWF.
Málflutningur þeirra er með þeim
hætti að gera verður við hann
athugasemdir.
Í upphafi viðtalsins
er þeim tíðrætt
um einhvers
konar skipulega
yfirhylmun starf
seminnar. Þeim
fullyrð ingum er
einfaldlega vísað
frá, hvorki bændur
né fyrirtækið hafa
beitt sér þannig. Framkvæmdastjóri
Ísteka bauð þeim vissulega upp á
fund en því máli öllu fylgdu miklar
vífilengjur af þeirra hendi og þau
hugðust koma með fjölmiðlamenn,
algerlega handgengna sér, á fundinn
og var þá vitaskuld sjálfhætt við
hann. Ljóst var að tilgangurinn
var alls ekki sá að birta raunsanna
mynd af starfseminni, sem best
sést á myndbandinu sem birt var
í fyrrahaust.
Fullyrðingar um „járntjald“
halda ekki vatni, hvorki hvað varðar
bændur né fyrirtækið. Upplýst hefur
verið um framgang starfseminnar
í gegnum áratugina í ræðu og riti.
York og Sabrina virðast líka hafa
gleymt því að framkvæmdastjóri
Ísteka setti sig í samband við þau
þegar þau voru hér árið 2019 að
ferðast um sveitir með leynilegar
myndatökur þótt enn væri bætt í
tveimur árum seinna þegar þau
komu upp kerfi falinna myndavéla
heima á býlum bænda. Hann bauð
þeim þá hvoru tveggja á fund til
að fara í gegnum velferðarkerfi
fyrirtækisins og að heimsækja
blóðtökustað sem þau þáðu. Sér er
nú hver feluleikurinn.
Í viðtalinu er líka með grófum
hætti snúið út úr orðum dýra
velferðareftirlitsmanns fyrirtækisins.
Því er haldið fram að hann tali fyrir
því að hryssurnar séu það sem þau
kalla „hálfvilltar“ sem er fjarri
öllu sanni. Það sem sagt var, er að
hryssur þær sem eru í blóðtökum
fái notið frjálsræðis umfram flest
önnur hross; þetta er einmitt
skilgreint svo í lokasetningu 1.
mgr. laga nr. 55/2013, um velferð
dýra: „Enn fremur er það markmið
laganna að þau [dýrin, innskot
höf.] geti sýnt sitt eðlilega atferli
eins og frekast er unnt.“
Það sem átt er við hér er, að
hestur fái að vera hestur, en á
ekkert skylt við að viðhalda eða
auka á villiatferli í neikvæðri
merkingu orðsins.
Notkun viðmælenda blaðsins
á hugtakinu „lært hjálparleysi“ er
afar langsótt. Hugtakið er þekkt
úr sálfræðinni og til dæmis notað
til að skýra þunglyndi. Það byggir
á rannsóknum sálfræðingsins
Seligmans, en hann gerði tilraunir
með hunda. Þegar þeir voru settir
í aðstæður sem þeir gátu alls ekki
stjórnað gáfust þeir hreinlega upp
fyrir rest. Þegar þeir voru svo settir
í nýjar aðstæður sem einnig voru
þeim mótdrægar, gáfust þeir aftur
upp og reyndu engu að breyta þó
að þeir gætu það. Þarna er langt
seilst og fráleitt að geti átt við um
eins inngripalítinn verknað og
blóðtökur úr hryssum eru.
Hitt er svo annað og jákvæðara
mál sem Sabrina ræðir í næstu
málsgrein, að hryssurnar séu
bandvanar og fúsar til að fara
inn í og dvelja þá stund sem þarf
í blóðtökubásnum. Um þetta eru
allir sammála, a.m.k. að hryssurnar
séu nægjanlega meðfærilegar til að
auðvelt sé að setja á þær tökumúl.
Enginn sem fæst við hross vill
þurfa að slást við þau. Að forðast
hvers konar átök er hvoru tveggja
í senn góð hestamennska og svo
mikið léttara á allan hátt. Þetta
sjónarmið kom ríkt fram í máli
blóðbændanna sem rætt var við
í Bændablaðinu. Hagur Ísteka,
bændanna og dýralæknanna sem
verkefninu sinna af því að allt gangi
átakalaust fyrir sig á blóðtökustað
er ótvíræður. Síðastliðinn vetur
og yfirstandandi blóðtökutímabil
hefur enda verið nýttur til að
kortleggja skapgerðareinkenni
hryssna með það fyrir augum að
finna sem fyrst þá gripi sem ekki
hafa æskilegt lundarfar.
Ekkert bendir til að hross þrífist
verr í blóðstóðum en öðrum stóðum
nema að síður sé. Er þá sama hvort
litið er til folaldanna eða mæðra
þeirra. Einnig skýtur skökku við
að viðmælendur blaðsins haldi því
fram að lyfjaefni framleitt með
lífrænum og vönduðum hætti sé
á einhvern hátt lakara en kemísk
efni, enda hefði maður talið þau
almennt séð fremur hallari en hitt
undir lífræna framleiðslu.
Grunnefniviður framleiðslunnar
byggir á aðstæðum stóðanna,
sem eru að miklu leyti lífrænar.
Vinnsla fyrirtækisins á lyfjaefni
fullnægir svo öllum gæðakröfum
lyfjaefnaframleiðslu. York og
Sabrinu er tíðrætt um lyfjameðferð
sem þau kalla staðgengla eCG/
PMSG meðferðar. Vissulega eru
á markaði fjöldamörg lyf sem
notuð eru í tengslum við frjósemi í
skepnum en blekking að halda því
fram að eitthvert þeirra geti komið
í stað eCG/PMSG. Engin þessara
sameinda býr yfir sömu eiginleikum
og eCG/PMSG gerir, eiginleikum
sem gera lyfið bæði fjölhæft og
langverkandi í öllum tilfellum
umfram það sem þessi 36 lyf sem
þau vísa til gera. Leikmönnum er
fullljóst að 36 mishaglega smíðaðir
árabátar hafa sjaldnast roð í
hraðskreiða skonnortu.
Í lokin þetta; þau York Ditfurth
og Sabrina Gurtner leggja
ríka áherslu á hve vel þau vilji
bændum og raunar Íslendingum
almennt. Þau taka í því sambandi
til umræðu framtíð Íslands
sem ferðamannalands og telja
hagnýtingu íslenska hestsins og
hinnar einstöku náttúru landsins
sem gerir unnt að halda stór stóð,
m.a. til blóðtöku, ógna framtíð
landsins sem ferðamannalands.
Þó að ferðaþjónusta skipti miklu
máli í íslensku efnahagslífi eru
stoðirnar fleiri. Hagsæld Íslands
byggir fyrst og fremst á sjálfbærri
nýtingu náttúruauðlinda, nýsköpun
í krafti aukinnar menntunar og
framsækni á öllum sviðum.
Ferðaþjónustan er prýðileg
viðbót en til að hún dafni þarf að
vera til staðar kvikt atvinnulíf á
íslenskum forsendum, blómlegar
sveitir og þar fram eftir götunum.
Ferðamenn hafa þá eitthvað að
skoða og fræðast um. Þeim er ekki
bara þjónað í umhverfi sem helst
mætti líkja við uppsetta sviðsmynd.
Það sem einkennir Ísland
öðru fremur er náttúran, svo
ósnortin í raun og með víðerni
sín og íslensku húsdýrin. Þar eru
ekki bara undir fjöll og firnindi,
heldur og allt graslendið vafið
náttúrulegum gróðri og íslenski
hesturinn hraustur og frjósamur.
Þetta skapar einstakar aðstæður á
heimsvísu sem gera að hér er með
hagkvæmum og ábyrgum hætti
hægt að framleiða eCG/PMSG úr
blóði fylfullra hryssna. Um leið
eru stoðir hrossahaldsins efldar og
grasi sem annars yxi til þess eins að
sölna breytt í beinharðan gjaldeyri.
Kristinn Hugason,
samskiptastjóri Ísteka.
„Það sem einkennir Ísland öðru fremur er náttúran, svo ósnortin í raun og með víðerni sín og íslensku húsdýrin. Þar eru ekki bara undir fjöll og firnindi,
heldur og allt graslendið vafið náttúrulegum gróðri og íslenski hesturinn hraustur og frjósamur. Þetta skapar einstakar aðstæður á heimsvísu sem gera
að hér er með hagkvæmum og ábyrgum hætti hægt að framleiða eCG/PMSG úr blóði fylfullra hryssna. Um leið eru stoðir hrossahaldsins efldar og grasi
sem annars yxi til þess eins að sölna breytt í beinharðan gjaldeyri," segir Kristinn meðal annars. Mynd / ghp
Kristinn
Hugason.
Leikmönnum er fullljóst að 36 mishaglega
smíðaðir árabátar hafa sjaldnast roð í
hraðskreiða skonnortu.“