Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2016, Side 95

Andvari - 01.01.2016, Side 95
ANDVARI 93 „HVORKI STJÓRNAÐ NÉ VERA STJÓRNAÐ" tákni fyrir afleiðingarnar af öllu leynimakkinu og afneituninni sem kemur á daginn að eru til staðar í fjölskyldu Sögu. Auður Jónsdóttir notar gjarnan truflanir sem dramatískt tæki, en það er m.a. algeng tækni í leikritaskrifum. Truflanir og tafir á framvindu eru til dæmis áberandi í skáldsögunum Fólkinu í kjallaranum, sem rataði einmitt á svið, Vetrarsól (2008) og Stóra skjálfta þar sem verða nær stanslausar trufl- anir og tafir á framvindu og frásögn. Fyrir utan flogin er aðalpersónan Saga alltaf að sofna, í tíma og ótíma, og þar með stöðva atburðarásina og flæðið í frásögninni. Ekki nóg með það, þegar hún finnur gögn í tölvunni sinni sem gætu varpað ljósi á fortíðina reynast þau óskiljanleg vegna tölvuvíruss þann- ig að hún þarf að bíða eftir aðstoð við að ráða fram úr því. Það er því einkar dæmigert fyrir hrynjandi sögunnar að þegar vinkona Sögu ætlar að upplýsa hana um það hvers vegna hún hafí skilið við manninn sinn nær þessi vin- kona aðeins að segja: „Nú auðvitað af því að ...“ áður en þær eru truflaðar.31 Eins og minnisleysið eru slíkar tafir algeng frásagnartækni í afþreyingar- bókmenntum og -kvikmyndum en aftur liggur meira að baki; tenging við stærra samhengi sem liggur til grundvallar sögunni; óminnið. Stóri skjálfti byrjar að vissu leyti eins og spennusaga, á æðisgenginni leit að týndu barni, ívari, syni Sögu sem ráfað hefur burt á meðan hún er í flogi, og framan af einkennist bókin af ákveðnum hasar og eltingaleik við minnið. Spurningar vakna ein af annarri: Af hverju býr eiginmaður Sögu ekki lengur hjá henni? Hvaðan komu hvítu rósirnar í stofunni? „Dó einhver?“32 Saga vill bæði muna fortíðina og komast hjá því að takast á við hana; hún gerir hvort tveggja í senn að fletta ofan af og dylja. í viðtali í DV sagði Auður Jónsdóttir að bækurnar Fólkið í kjallaranum, Tryggðarpantur og Vetrarsól snérust allar „um mismunandi tegundir af afneitun“33 og það þema heldur áfram í Stóra skjálfta. Helsti eiginleiki Sögu er einmitt feluleikur, að bæla niður, þykjast ekki vita það sem hún veit og þykjast vita það sem hún veit ekki. Enginn má vita „að minnið er gatasigti“.34 Þannig byggir hún upp viðráðanlega sögu af lífi sínu og annarra: „Hún þráði að ná stjórninni, ráða eigin líkama, eigin lífi; stjórna öllu gangverki heimsins ef þess þyrfti með.“35 Það verður sérlega brýnt eftir að hún eignast barn sem glímir við veikindi og minnir stöðugt á hverfulleika þessa lífs. Þá verður lífsnauðsynlegt að gleyma því sem „pass- aði ekki inn í myndina af móður og barni“36 - þ.e.a.s. að gleyma flogaveik- inni. í þessari sögu verður flogaveikin þannig að árásarmanni sem ógnar Sögu og barninu hennar, truflar blekkingarleikinn og dregur allt hið ósagða og ósegjanlega upp á yfirborðið. Hún var ekki eins mikið frík þegar hún taldi sér trú um að hún sjálf réði ferðinni. Þegar hún hagaði sér eins og læknisfræðilega skilgreiningin á henni sjálfri væri bara djöfuls vitleysa fannst henni hún vera laus undan árásarmanninum sem elti
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.