Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2016, Síða 106

Andvari - 01.01.2016, Síða 106
104 VÉSTEINN ÓLASON ANDVARJ lega í trausti þess að Benedikt mundi liðsinna honum (Grímur á Jökli talar um „þrjótana á Fjalli“). Þeir sem misnota þegnskap Benedikts eru ekki nein yfirstétt eða misindis- menn heldur venjulegir bændur sem basla við búskapinn eins og aðrir, en það er misjafn sauður í mörgu fé, og í hverju samfélagi hugsa flestir mest eða eingöngu um eigin hag, sumir láta þar við sitja en leita ekki á aðra, aðrir reyna að hafa sem mest gagn af náunga sínum. Svo eru þau hin sem bera hag Benedikts fyrir brjósti. Grímur á Fjalli reynir að leggja honum lið, kemur með kolapoka, býður næturgistingu og ætlar raunar að gera betur við hann en Benedikt þiggur, vegna árvekni sinn- ar: „Troðinn heypoki stóð rétt innan við skemmuhurðina ... Hefðu hjónin verið vakandi myndu þau hafa séð Benedikt fyrir nestisauka“ (85). Aðaltengiliður Benedikts við samfélagið, sannir vinir hans, er fjölskyldan í Botni. Hlýlegar móttökur þeirra, umhyggja og áhyggjur hans vegna tala skýru máli um það. Lýsingin á komu Benedikts að Botni í upphafi þessarar aðventugöngu er meistarastykki. Þar er sögð eða gefin í skyn mikil og löng saga, og mynd brugðið upp af skapgerð og tilfinningum einstaklinga með örfáum orðum. Duldir þræðir tengja þessa mynd við hugleiðingar Benedikts um ævi sína og örlög. Það leynir sér ekki þegar Benedikt kemur að Botni að sérstök vinátta er milli hans og húsfreyjunnar, vináttubönd sem bæði gera orðalaust ráð fyrir og Pétur eiginmaður hennar virðir. Sigríður er viðbúin komu hans, hefur sjálfsagt gáð til mannaferða öðru hverju þann daginn, og hann þarf ekki að kveðja dyra til þess að þær opnist. Eftir að þau hafa skipst á nokkrum orðum segir: „I þeim svifum kom Pétur að í hægðum sínum, húsbóndinn, ofurlítið seinni en kona hans, eins og venjan var á sunnudaginn fyrstan í aðventu í Botni. Og á hæla honum elsti sonurinn Benedikt“ (50). Höfundur gætir þess að vekja athygli okkar á þessu nafni elsta sonarins og láta þess getið að nafnið sé ekki úr ætt þeirra hjóna né algengt á þessum slóðum. Ekki þarf að efa það að hann heitir í höfuðið á aðalpersónunni, enda er milli þeirra orðalaust samband sem skýrast kemur fram í lokakaflanum. Fátt er sagt berum orðum um vináttu Benedikts og fólksins í Botni, en svo margt er gefið í skyn að hver lesandi hlýtur að reyna að fylla þar í ein- hverjar eyður, velta fyrir sér tilfinningum Benedikts og þessa fólks og þeirri sögu sem að baki hlýtur að búa. Það er einkenni mikillar frásagnarlistar (og reyndar allrar listar) að skilja eftir eyður handa lesanda eða áheyranda að fylla í, eyður sem gera kröfu til lesandans og virkja hann til að skapa sög- una með höfundi. Aðventa er ein af þeim sögum sem gera skáld úr okkur öllum. Vitanlega er hægt að stytta sér leið með því að leita til fyrri með- ferðar Gunnars á efninu í frásögninni Den gode hyrde. Vel getur verið að Gunnar hafi hugsað sér forsöguna í Aðventu þá sömu og þar, en það er ekki
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.