Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2016, Page 150

Andvari - 01.01.2016, Page 150
148 HJALTI ÞORLEIFSSON ANDVARI hann kennsluaðferðir í skólum og telur ítroðsluna sem þar sé stunduð ýta undir rangan skilning landsmanna á sögu sinni:37 Það er að vísu saklaust, þótt minnishestar hámi í sig ógrynni fræða, sem þeir reyna aldrei að melta, ef þetta er þeim gaman og metnaður. [...] íslendingar vita of mikið um sögu sína í hlutfalli við það, sem þeir skilja. Meiri menntun er í því fólgin að kunna fá atriði með yfirsýn um samhengi þeirra en vera uppþembdur af ómeltum fróðleik.38 Ahersla á gildi tilfinninga og innlifunar við þekkingaröflun var í anda líf- hyggjunnar þar sem hin sanna þekking þótti ekki fengin með leit að einum helberum sannleika, heldur einmitt með því að lifa sjálfan sig inn í þann veruleika sem til umfjollunar var hverju sinni. Þjóðarsagan var Sigurði hugleikið viðfangsefni, eins og sjá má til dæmis í Islenzkri menningu, og má tengja það heimspeki Herders, sem hann virðist hafa aðhyllst, um nána tengingu kynslóðanna, það er að samofnar mynduðu þær eina lífræna heild.39 Það sjónarmið hans var einnig í samræmi við kenn- ingar Bergsons um heildarsamfellu tímans þar sem öll tilveran var nátengd og streymdi stanslaust áfram. I fyrirlestrunum um einlyndi og marglyndi komst Sigurður svo að orði að ,,[h]ver maður [... lifði] í móðurlífi og á æsku- aldri sögu mannkynsins upp aftur [.,.]“40 og lagði þannig áherslu á að for- tíðin væri síkvik og lifandi. Einstaklingur fæddist í ákveðið fyrirframgefið heildarsamhengi og í gegnum lífið jók hann við reynslu innan þess og hafði þannig áhrif á upplifun eftirkomenda sinna. Algjör skil við liðna tíð voru, þegar á allt var litið, ómöguleg enda fólu þau aðeins í sér ofríki marglyndis- þátta þar sem hið einlynda og íhaldssama, það rótfasta, var með öllu kveðið í kútinn. Mestu skipti því að viðhalda jöfnum hreyfanleika, hinu stöðuga flæði tíma og framþróunar. Danski rithöfundurinn og vítalistinn Johannes V. Jensen hélt fram skoðunum af sama meiði og reyndi að afhjúpa ýmsar tengingar nútímans við fortíðina sem alla jafna lágu ekki í augum uppi. Ut frá því gerði hann mikið úr því náttúrulega samhengi sem mannkynið til- heyrði. Það væri hluti líffræðilegrar þróunararfleifðar ásamt öðrum lífverum sem tengdi það við hið forsögulega en um leið framvindunni, hinu ókomna.41 Þá margbreytni sem manninum var nauðsynleg taldi Sigurður heillavæn- legast að sækja út í náttúruna og tiltók dæmi um ábúanda á afdalabæ sem unnið gat gegn tilbreytingarleysi með því að fylgjast með síbreytilegum blæ- brigðum í umhverfi sínu. Fyrir Sigurði var þjóðin öll samfléttuð ættjörðinni sem fóstrað hafði hana gegnum súrt og sætt og því var gerlegt að greina sögu heildarinnar og öðlast tengingu við fortíðina í gegnum landið sjálft: „Hver hlutur á sér sína sögu, sín sambönd við heildina í allar áttir, í hverju sandkorni mætast þúsundir vega, og eftir því hvern veginn þú gengur, lítur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.