Leikhúsmál - 01.11.1963, Blaðsíða 55
Overture
Svo sem á tveimur undanförnum ár-
um hefur Sinfóníuhljómsveit íslands
gefið út ársyfirlit um tónleikahald sitt
á vetri komanda. Áskriftartónleikarn-
ir munu verða 16 auk œskulýðstón-
leika og flutnings ýmissa verka í út-
varpssal. Alkunnugt er að þessi
hljómsveit okkar er einstök í sinni
röð: hún er sinfóníuhljómsveit, út-
varpshljómsveit og leikhúshljómsveit.
Ekki eru það litlar kröfur, sem gerðar
eru til hennar. Neðan úr gryfju Þjóð-
leikhússins hendist hún upp í út-
varpssal, og þaðan er brennt vestur
í Háskólabió — aðeins nógu löng
lykkja lögð á leiðina svo að menn
geti klœðst kjóli og hvítu taui — því
að útlitið verður einnig að vera öllum
til geðs.
Framtíðarhorfur hafa oft verið
skuggalegar og líkar það engum
nema illmennum. Svo var og í sumar
lengi vel, að ekkert fréttist um ákveð-
inn stjórnanda. Óttaslegnir áhuga-
menn spurðu mœðulega: Hvaö verð-
ur um hljómsveitin nœsta vetur? Á
meðan bruggaðist framtiðarplan sem
nú er rétt ókomið á þrykk þ. e. a. s.
ársprógrammið 1963—64. Þegar
þessar línur eru ritaðar er ekki útlit
fyrir annað en að komandi verði at-
hyglisverðasta ár í sögu Sinfóníu-
hljómsveitar íslands. Langur listi
hljómsveitarstjóra er henni œtlaður:
Proinnsias O'Duinn, Páll P. Pálsson,
Robert A. Ottósson, Gunther Schuller
Olav Kielland og Igor Buketoff. Engu
síðri og enn lengri er listi einleikara
og söngvara inn- og erlendra, sem
eiga að koma fram með hljómsveit-
inni í vetur. Forvitnilegast alls eru þó
hin ýmsu verkefni hljómsveitarinnar.
Frumfluttur verður hljómsveitarkon-
sert eftir Jón Nordal, sinfónía eftir
Leif Þórarinsson og hljómsveitarverk
eftir Magnús Bl. Jóhannsson. Auk
þessa eru fjölmörg verk á áœtlaðri
efnisskrá, sem aldrei hafa verið flutt
hér áður þótt gömul og sígild séu.
Þar gnœfir hœst Requiem W. A. Moz-
arts.
Annar tónleikahaldari hefur og gefið
út ársprógramm, en það er Musica
nova, sem nú œtlar á 4. starfsári loks
að safna áskrifendum. Eftirtektar-
verðast er það nýnœmi, að hljófœra-
leikarar félagsins hafa beinlínis beð-
ið nokkur tónskáld um að semja verk
fyrir sig og munu þau verk heyrast í
fyrsta sinn á jarðríki á síðustu tón-
leikum Musica nova í vor.
Ekkert hefur frétzt frá Tónlistarfélag-
inu og Kammermúsikklúbbnum en
líklegt er, að um líkt leyti og blað
þetta kemur út verði öll tónleikastarf-
semi vetrarins komin ! fullan gang
og er það mikið tilhlökkunarefni.
Leikhúsmál munu svo láta orð falla
að þessari starfsemi — hlusta fyrst
en tala svo — þegar þar að kemur
Ljúft er Leikhúsmálum að árna heilla
dómorganistanum, sem nú hefur átt-
unda tug œviskeiðsins. Enginn tón-
listarmaður er ástsœlli I landi sínu
en Dr. Páll ísólfsson. Tónleikagestir
hafa nú heiðrað hann með dynj-
andi lófataki.