Leikhúsmál - 01.11.1963, Blaðsíða 72

Leikhúsmál - 01.11.1963, Blaðsíða 72
Brendan Behan: Offcflrykkia — engin félagsieg smán 9. febrúar 1923 fœddist ég í Dublin í Holles Street. Faðir minn var þá vegna lýðrœðisskoðana sinna í fangabúð- um, þar sem voru 10.000 fangar, þar á meðal núverandi forseti lýðveldisins, Sean T. O'Kelly. Öll fjölskylda mín var strang-lýðrœðissinnuð, og tóku allir virkan þátt í því að frelsa Irland undan margra alda yfirráðum Englands. A annan hátt en margir góðir þjóðernissinnar voru fjöl- skyldumeðlimir kreddubundnir lýðrœðissinnar. Voru það og eru þann dag í dag. Faðir minn, Stephan Behan, er forseti ,,Málara- og skipamálarafélags" írlands. Móður- brcðir minn, Peader Kearny, skrifaði „Soldiers Song", nú- verandi þjóðsöng, og mörg önnur byltingarljóð. Hann var líka málari að iðn. Hvað trúarbrögð sneríi, var fjölskylda mín alltaf kaþólsk og mjög andvíg klerkum. Það er undarlegt, en ég veit ekki um neinn klerk í nokkrum œttlið fjölskyldu minnar og ég veit ekki til, að neinn fjölskyldumeðlimur hafi dáið án klerklegrar þjónustu. Deo Gratias. Faðir minn var 1922 settur út af sakramentunum af því að hann var lýðrœðis- sinni, og ég 1939; en í kaþólskum löndum hneyklast enginn á þvl — allra sízt presturinn — þegar um það er að rœða að ganga í hjónaband eða vera jarðsettur. Ég er lélegur trúmaður— eins og margir aðrir meiri háttar listamenn. Samt lifi ég í þeirri von, að frceðsla kirkjunnar um annan heim standi betur heima en skoðanir hennar á þessum heimi. Annars geta hinir góðu þjáðst um alla eilífð með hinum vondu. Ég óx upp í fátœkrahverfum Norður-Dublin. Stór hús, þar sem heil fjölskylda bjó oft í einu herbergi. Við höfð- um samt tvö: eldhúsið og bakherbergið. í eldhúsinu var geysimikil eldavél. Þar borðuðum við og höfðumst við á daginn. Faðir minn og móðir og ungbarnið hverju sinni — við vorum átta, sjö strákar og ein stelpa — sváfu þar og hin börnin sváfu í bakherberginu, sem aðskilið var frá framherberginu með vœngjahurð. í framherberginu var rekið smáhóruhús. Fyrir því, sem þar fór aðallega fram, höfðum við lítinn áhuga, en ég hafði gaman af samtölunum, sem við gát- um vel hlustað á, og einnig af söngnum, þegar fólkið var drukkið. Og allt var mjög huggulegt og heimilislegt á dimmum vetrarnóttum. Ég gekk I skóla hjá frönskum líknarsystrum í North Willi- am Street — og raunar með ánœgju. Ég var eftirlœti þeirra. Þegar ég var 1 1 ára, var ég sendur til Hinna kristi- legu brœðra í North Circular Road — ég hataði þá, og þeir hötuðu mig. Þeir voru bœndasynir úr sveit og óttuð- ust börnin úr leigukumböldunum, alveg eins og við óttuð- umst þá. Munkarnir hentu mér út 1936, og ég fór í iðn- skóla að nema málaraiðn. Frá 9 ára aldri var ég í Fianna Eirann, skátafélagi lýðrœðissinna, og 1937 var ég skip- aður í I. R. A. (írska lýðveldisherinn) sem boðberi. 1939 var ég tekinn fastur I fyrsta sinn í Liverpool og dœmdur til þriggja ára betrunarhúsvistar, af því að ég hafði sprengiefni I fórum mínum. 1942 var ég látinn laus, gerð- ur útlœgur og seinna dœmdur af herrétti I Dublin I 14 ára fangelsi vegna morðtilraunar á tveimur leynilög- reglumönnum. 1946 var ég látinn laus I sambandi við almenna náðun, en 1947 var ég aftur lokaður inni I Man- chester, af því að ég aðstoðaði I. R. A.-mann við að flýja úr fangelsi. Þeir gátu ekki sannað neitt samband mitt við flóttann og dœmdu mig þar af leiðandi I 4 mánaða fang- elsi vegna brots á útlegðardómi. Til Frakklands kom ég I fyrsta sinn 1947. Ég vann um hrlð I París við málningu á loftferðasýningunni á Gare des Invalides og I St. Gratien. Fyrir skömmu lenti ég 1 orðasennu á Orly-flugvellinum. í greinum I France-Soir og I Paris-Presse las ég, að ég hefði átt að segja, að ég vildi ekki deyja fyrir Frakkland. Ég vildi heldur ekki deyja fyrir Frakkland né heldur fyrir Irland, né yfirleitt — ef það vceri I valdi mlnu; en I þessum greinum var það borið upp á mig, að ég vœri andvígur Frökkum. Það, sem ég I rauninni sagði, var að ég vildi ekki deyja fyrir Air France. Ég elska Frakkland, en mitt eigið Frakkland. Hið lýðrœðislega Frakkland. Ég elska írland, hið lýðrœðis- lega írland. Margt fólk I Quarter Latin hjálpaði mér auðvitað — og okkar eigin írsku landar: Morris Sinclair, frœndur hans John og Sam Beckett og Mark Mortimer, sem kennir við British Institute. Claude Sarraut hefur llka oft gefið mér að borða, en þetta voru allt listamenn. Hvað drykkjuskap snertir verð ég að segja, að I Dublin á neyðartlmum œsku minnar þótti ofdrykkja engin félagsleg smán. Ef manni heppnaðist að fá nóg að borða, var það talin hetjudáð — ef manni tókst að drekka sig fullan, þá var það sigur. 70
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Leikhúsmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Leikhúsmál
https://timarit.is/publication/1743

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.