Morgunblaðið - 22.10.2022, Blaðsíða 14
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Yngvi Halldórsson, forstjóri Sýnar,
tekur á móti blaðamanni í Rauða
herberginu hjá Vodafone. Þaðan er
útsýni yfir borgina og sundin.
Yngvi var ráðinn forstjóri í sumar
sem leið eftir að Heiðar Guðjónsson
lét af störfum af heilsufarsástæðum
og seldi hlut sinn í félaginu.
Yngvi hafði þá verið rekstrar-
stjóri Sýnar í nokkur ár, samhliða
Heiðari, ásamt setu í aðalstjórn fé-
lagsins í tæplega tvö ár.
Samtalið hefst á að ræða bak-
grunn Yngva sem er 45 ára gamall
og útskrifaður viðskiptafræðingur
frá Háskóla Íslands.
Starfaði hjá Alfa Framtaki
„Ég starfaði hjá Alfa Framtaki
áður en ég kom til Sýnar en var
lengst af hjá Össuri. Ég stýrði þar
meðal annars upplýsingatækni og
ferlaumbótum og leiddi þar stór um-
breytingarverkefni en ferill minn
hjá Össuri spannaði í tveimur tíma-
bilum rúmlega tíu ár,“ segir Yngvi.
Spurður hvernig áherslur hans
hafi birst í stóli forstjóra segist
Yngvi hafa haldið áfram þeirri veg-
ferð að efla þjónustu félagsins.
Umbyltu vöruúrvalinu
„Við höfum umbylt vöruúrvalinu.
Við kynntum til sögunnar Fjöl-
skyldupakkann á síðasta ári sem
vöndlar saman Stöð 2 og Stöð 2+
við allsherjarþjónustu í fjarskiptum.
Við erum hér til að þjónusta við-
skiptavini og DNA fyrirtækisins lá í
tækni. Það er uppruninn. Þannig að
við höfum verið að breyta því og er-
um nú meira viðskiptavinamiðuð og
leitumst við að þjónusta viðskipta-
vini sem best. Meðal annars með
hagstæðari skilmálum um uppsagn-
ir og með því að brjóta áskriftar-
pakka upp í minni einingar þannig
að fólk geti komið inn í lægri verð-
punkta. Til dæmis er hægt að kaupa
áskrift að Stöð 2 plús á 3.990 krónur
og nálgast þannig streymisveitu
með nánast öllu okkar efni. Þeirri
áskrift er nú hægt að segja upp inn-
an mánaðar en það var ekki hægt
áður,“ segir Yngvi.
Sögulega góður árangur
– Skilar þetta auknum tekjum?
„Já, til dæmis í Stöð 2 Sport sem
gengur mjög vel. Við erum líka með
mjög góðan áskriftargrunn í bæði
Stöð 2 og Stöð 2+ sem stendur á
sögulegan mælikvarða mjög hátt.
Þannig að við erum ánægð með
það.“
–Það hafa orðið breytingar á
stjórn félagsins í ár. Er það skeið að
baki? Eru hlutirnir farnir að skýr-
ast?
„Já, ég á von á því. Einkafjár-
festar hafa sýnt okkur mikinn áhuga
síðustu mánuði og það er að mínu
áliti komið til af því að margir telja
félagið undirverðlagt á markaði. Ég
deili því og tel að við séum með gríð-
arlega gott fyrirtæki i höndunum.
Sýn er félag sem á innviði, rekur
fjarskiptaþjónustu og öflugustu fjöl-
miðla landsins, auk þess að eiga öfl-
ugt upplýsingatæknifyrirtæki.
Verkefni okkar er að lýsa styrkleik-
um okkar fyrir markaðnum og bæta
reksturinn enn frekar þannig að fé-
lagið njóti sanngjarnar verðlagning-
ar.“
Góður stuðningur frá stjórn
– Hefurðu fengið skilaboð frá
stjórninni varðandi þína framtíð?
„Já. Ég hef fengið góðan stuðn-
ing.“
– Þið vinnið vel saman og þú ert
öruggur með að vera áfram?
„Já. Við höfum sömu markmið.
Þau vilja arðsemi fyrirtækisins sem
mesta og að félaginu gangi vel á
hlutabréfamarkaði. Ég deili því.“
– Nýju fjárfestarnir eru nú með
meirihluta í stjórninni og alls 57%
atkvæða að baki sér. Er rætt um að
það skapi yfirtökuskyldu?
„Nei. Þessir aðilar eru ekki að
vinna saman, eftir okkar bestu vit-
und … Það hefur verið mikill áhugi
frá einkafjárfestum á síðustu vik-
um, í framhaldi af kaupum Gavia
Invest, sem hafa að öllum líkindum
kosið með breytingum og auknu
vægi einkafjárfesta í stjórn. Það er
ekki sami hlutur og að menn séu að
vinna saman.“
Hluthöfum hefur fjölgað
– Kann þessi aukni áhugi að birt-
ast í fjárfestingu í félaginu?
„Við vorum með um 300 hluthafa
síðustu áramót, sem er of lítið fyrir
félag sem skráð er á markað. Þeim
hefur fjölgað töluvert með aðkomu
einkafjárfesta að félaginu og eru nú
um 400. Við vonum þó auðvitað að
þeim fjölgi enn frekar og það er
okkar verkefni að gera félagið að
enn meira spennandi fjárfestingar-
kosti til að svo megi verða.“
– Haft var eftir Heiðari í Frjálsri
verslun í vor, áður en hann hætti, að
mikil verðmæti væru fólgin í inn-
viðum félagsins. Hafið þið frekari
áform um sölu innviða?
„Það er búið að tilkynna um
einkaviðræður og áreiðanleikakönn-
un sem er í gangi við Ljósleiðarann
á sölu á burðarneti. Enn sem komið
er eru ekki áform um neina aðra
innviði í sölu en félagið er ríkt af
innviðum, til dæmis í farsímakerfi.“
Ætla að kynna innviðina betur
– Þannig að hugsanlega er þetta
ekki endastöðin? Kemur til greina
að selja aðra innviði síðar, ef áhugi
væri fyrir hendi á markaði?
„Það eru klárlega innviðir í fyrir-
tækinu sem við ættum að skerpa
betur á fyrir markaðnum hverjir
eru.“
– Er fyrirtækið á góðu skriði?
„Já, við erum búin að vinna sam-
an að mikilli endurskipulagningu.
Ef litið er þrjú ár aftur í tímann,
þegar Heiðar kom hingað inn, þá
var ákveðinn órói, ákveðið ástand,
búið að kaupa eignir 365, miklar
væntingar til þeirra eignakaupa en
þær áætlanir gengu ekki eftir. Á
tímabili voru tíðar afkomuviðvaranir
og árangur félagsins ekki nægilega
góður. “
– Það skeið er að baki?
„Já, staðan er góð núna.“
Hugsuðu reksturinn upp á nýtt
– Hvað hefur breyst? Hvað réði
úrslitum um að það er að baki?
„Það þurfti algjörlega að hugsa
grunnreksturinn upp á nýtt hvað
varðar vörur, verðlagningu og
hreinlega allt kostnaðarlíkanið,
tengja saman tekjur og gjöld og við
þurftum að einbeita okkur betur að
framlegð. Þannig höfum við haldið
rekstrarkostnaði niðri, á sama tíma
aukið tekjurnar og þar með snúið
tapi í hagnað,“ segir Yngvi.
Stjórnin tekið breytingum
Miklar breytingar hafa orðið á
stjórn Sýnar í ár.
Á aðalfundi félagsins í mars voru
þau Hjörleifur Pálsson, Páll Gísla-
son, Petrea I. Guðmundsdóttir, Jó-
hann Hjartarson og Sesselja Birg-
isdóttir kjörin í stjórn. Hjörleifur
var stjórnarformaður en hann hafði
setið í stjórn Sýnar í um áratug og
því fylgt Heiðari Guðjónssyni, þá
forstjóra og stærsta hluthafanum, í
gegnum mikið breytingaskeið. Heið-
ar greindi í ár frá veikindum og
seldi í kjölfarið hlut sinn í félaginu.
Með því komu inn nýir fjárfestar.
Nánar tiltekið keypti fjárfestinga-
félagið Gavia Invest hlut í félaginu á
2,6 milljarða en meðal eigenda voru
Reynir Grétarsson, stofnandi Cred-
itinfo, og Jón Skaftason. Jón var
sagður í forsvari fyrir Gavia. Þá
keyptu hjónin Hilmar Þór Kristins-
son og Rannveig Eir Einarsdóttir
hlut í Sýn fyrir 1,3 ma. en greint var
frá kaupunum í byrjun ágúst.
Kynjakvóti setur mörk
Samkvæmt lögum og samþykkt-
um Sýnar þurfa að minnsta kosti
40% stjórnarmanna að vera af hvoru
kyni. Af því leiðir að í fimm manna
stjórn þurfa að vera að lágmarki
tveir karlar eða tvær konur.
Þessi regla kom við sögu í
stjórnarkjörinu 31. ágúst þegar
nýju fjárfestarnir sóttust eftir
meirihluta í félaginu. Fulltrúar
þeirra voru Jón, Reynir og Hilmar
Þór en aðeins Jón náði kjöri (sjá
graf). Hluti skýringarinnar er áð-
urnefndur kynjakvóti en á grund-
velli hans náðu Petrea og Sesselja
kjöri þrátt fyrir að fá aðeins 1% at-
kvæða hvor um sig. Fyrir vikið voru
fjórir stjórnarmenn af fimm fulltrú-
ar annarra hluthafa, þ.e.a.s. lífeyr-
issjóða. Jóhann og Páll fengu flest
atkvæði en Petrea varð stjórnar-
formaður.
Væri ekki í takt við hluthafa
Nýju fjárfestarnir töldu stjórnar-
kjörið ekki endurspegla hluthafa-
hópinn. Kosið var á ný til stjórnar í
fyrradag og náðu Jón, Hákon Stef-
ánsson og Páll kjöri. Jóhann fór hins
vegar úr stjórn. Hákon er viðskipta-
félagi Reynis, stofnanda Creditinfo.
Þá náði Rannveig Eir Einarsdóttir
kjöri en hún er eiginkona Hilmars
Þórs. Með kjöri hennar hafa nýju
fjárfestarnir meirihluta í stjórn og
er Jón nýr stjórnarformaður.
Leiða má líkur að því að ef Helen
Neely hefði ekki boðið sig fram í
fyrradag hefðu atkvæði dreifst með
öðrum hætti en raunin varð. Það er
að segja að lífeyrissjóðir hafi greitt
Sesselju fleiri atkvæði en ella til að
tryggja kjör hennar, eftir brotthvarf
Petreu og samkeppni frá framboð-
um Rannveigar Eirar og Helen. En
Petrea dró, að eigin sögn, framboð
sitt til baka vegna þrýstings frá
Orkuveitunni. Eiginmaður hennar,
Benedikt K. Magnússon, er fram-
kvæmdastjóri fjármála hjá Orku-
veitunni.
Langt yfir 30% markinu
Jón og Hákon voru saman með
alls 48% atkvæða í kjörinu og ef
Rannveig Eir er talin með er hlut-
fall nýrra fjárfesta 57% (sjá graf).
Nýju eigendurnir eru því langt yfir
því 30% lágmarki sem kveðið er á
um í lögum um yfirtökuskyldu, sem
getur meðal annars lýst sér í sam-
vinnu um beitingu atkvæðisréttar
einstakra aðila til að ná yfirráðum í
skráðu félagi.
Spurður hvort úrslit stjórnar-
kjörsins þýði að nýr meirihluti hafi
yfirtökuskyldu á félaginu, í krafti
þess að hafa fengið samtals 57% at-
kvæða, bendir Hákon Stefánsson,
forstjóri InfoCapital, á að Gavia In-
vest eigi um það bil 16% hlut í Sýn.
Hafi ætlunin verið að taka yfir fé-
lagið í krafti 30% eignarhlutar
„hefði líklegast verið farið í þá veg-
ferð strax“. „Það er ekki stefnan,“
segir Hákon.
Studdu stjórnarmenn
Samkvæmt frétt á vef Viðskipta-
blaðsins greiddi Gildi, sem á 14%
hlut í Sýn, Jóhanni 40% atkvæða
sinna, Páli 40% og Sesselju 20%.
LSR, sem á 8,2% hlut í Sýn, greiddi
Jóhanni 49% atkvæða sinna, Páli
49% og Sesselju 1%. Þá hafi Birta,
sem á 5,1% hlut í Sýn, greitt Jó-
hanni 30% atkvæða sinna, Páli 40%
og Sesselju 30%. Öll voru þau
stjórnarmenn fyrir kosninguna.
Nýir hluthafar ná meirihluta
- Forstjóri Sýnar segist njóta trausts nýrrar stjórnar - Hann tekur undir að félagið sé undirverðlagt
- Miklar breytingar urðu á stjórn félagsins fyrir helgi - Einkafjárfestar höfðu einn mann en nú þrjá
Morgunblaðið/Eggert
Forstjóri Yngvi Halldórsson, forstjóri Sýnar, segir rekstur fyrirtækisins vera á uppleið. Fyrirtækið hafi verið endurskipulagt.
Stjórnarkjör hjá Sýn
31. ágúst 2022
Náðu
kjöri
Jóhann Hjartarson 24,7% ✔
Páll Gíslason 22,7% ✔
Jón Skaftason 22,5% ✔
Reynir Grétarsson 18,1%
Hilmar Þór Kristinsson 10,0%
Petrea I.
Guðmundsdóttir
1,0% ✔
Sesselja Birgisdóttir 1,0% ✔
20. október 2022
Náðu
kjöri
Jón Skaftason 24,1% ✔
Hákon Stefánsson 23,6% ✔
Páll Gíslason 17,2% ✔
Jóhann Hjartarson 16,6%
Rannveig Eir Einarsdóttir 9,3% ✔
Sesselja Birgisdóttir 8,3% ✔
Helen Neely 0,9%
Sigmar Páll Jónsson 0,0%
Samkvæmt samþykktum Sýnar þurfa 40% stjórnarmanna í aðalstjórn að vera af
hvoru kyni.
14 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2022