Tímarit lögfræðinga - 01.12.2013, Side 3
349
RITSTJÓRNARGREIN:
STAÐA HÉRAÐSDÓMSTÓLANNA
Réttarkerfi okkar stendur og fellur með öflugum, sjálfstæðum dóm-
stólum sem njóta trausts samfélagsins til þess að skera úr um rétt-
indi og skyldur þegnanna að lögum, fella dóma vegna meintra brota
og ákvarða refsingar. Nú, þegar rúm tuttugu ár eru liðin frá því að
núverandi dómstólaskipan í héraði var komið á fót, er tilefni til að
líta um öxl og meta hvað hefur reynst vel og hvað betur mætti fara.
Talsmenn dómstólaráðs, auk nýkjörins formanns dómarafélags-
ins, hafa að undanförnu fjallað um erfiða stöðu héraðsdómstólanna
sem fyrst og fremst má rekja til niðurskurðar á fjárveitingum. Þótt
dómstólarnir hafi á síðustu árum staðið undir grundvallarhlutverki
sínu og séu nú nálægt því að komast í gegnum þá holskeflu mála
sem hrun fjármálakerfisins hafði í för með sér er ljóst að fjárveiting-
arnar hafa nú um árabil miðast við algera lágmarksstarfsemi. Hvers
kyns þróunarstarf innan dómstólanna, t.d. aukin nýting rafrænna
miðla (rafrænt réttarfar), virðist liggja niðri, aðstoð ritara og lög-
lærðra aðstoðarmanna við dómara er af skornum skammti, aðstaða
í dómsölum er orðin bágborin og dómarar tala um að starfsþjálfun
dómara og símenntun sé vart til staðar. Þá er ljóst að dómarar hafa
dregist aftur úr í launum og öðrum starfskjörum. Í kjölfar auglýs-
ingar um embætti héraðsdómara, sem auglýst var til umsóknar
haustið 2013, barst aðeins ein umsókn. Þótt varast verði að draga of
víðtækar ályktanir af þessu einstaka tilviki virðist þó sem dómara-
starfið sé ekki talið sérlega eftirsóknarvert af reynslumiklum lög-
fræðingum, þ. á m. málsmetandi lögmönnum.
Stjórnvöld hafa sýnt að þeim er umhugað að treysta íslenskt
réttarkerfi. Má í því sambandi nefna þær fyrirætlanir í stjórnarsátt-
mála ríkisstjórnarinnar að efla löggæslu og koma á fót millidóm-
stigi í einka- og sakamálum. Unnið er að þessum umbótum á veg-
um innanríkisráðuneytisins. Héraðsdómstólarnir mega ekki verða
útundan í þessari góðu viðleitni stjórnvalda. Það skiptir höfuðmáli
fyrir réttarkerfið að mál fái sem vandaðasta málsmeðferð vel mennt-
aðra og reyndra lögfræðinga. Segja má að hjarta réttarkerfisins slái
í héraðsdómi þar sem gagnaöflun fer fram, vitni koma fyrir dóm og