Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2013, Side 23

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2013, Side 23
369 að Þjóðabandalaginu eftir fyrri heimsstyrjöld og þá einkum vegna skuldbindinga í 10. gr. Stofnskrár Þjóðabandalagsins um skyldur til að verja önnur aðildarríki.74 Bandaríkin voru þó alls ekki áhugalaus um frið og öryggi á heimsvísu og á árunum milli stríða var þar sterk friðarhreyfing og voru Bandaríkin m.a. í farabroddi við gerð París- arsáttmála Kellog Briand árið 1928 sem var fyrsti samningur þar sem styrjöldum var opinberlega úthýst sem mögulegu úrræði til að leiða til lykta deilur ríkja.75 En síðari heimsstyrjöldin skall engu að síður á og í kjölfar henn- ar voru Sameinuðu þjóðirnar stofnaðar 1945. Því hefur verið haldið fram að Sáttmáli SÞ (SSÞ) og það fyrirkomulag sem þar var sett á laggirnar til hemja valdbeitingu ríkja í alþjóðakerfinu hafi verið sniðið að þörfum Bandaríkjanna.76 Grundvallarreglan er bann við beitingu vopnavalds í milliríkjasamskiptum, sbr. 4. mgr. 2. gr. SSÞ, en frá henni eru þó tilgreindar tvær undantekningar í SSÞ. Í fyrsta lagi er um að ræða sjálfsvarnarrétt ríkja sem ráðist er á ein og sér eða í félagi við önnur ríki, sbr. 51. gr. SSÞ. Í öðru lagi er um að ræða sérstakar valdheimildir Öryggisráðs SÞ til að heimila valdbeitingu, sbr. VII. kafla SSÞ.77 Þótt Alþjóðadómstóllinn í Haag hafi ekki farið fullum fetum eftir því þá hefur afstaða Bandaríkjanna verið sú að beiting sjálfsvarnarréttar sé pólitískt viðfangsefni, auk þess sem Bandaríkin og önnur stórveldi hafa neitunarvald i Öryggisráðinu.78 Þá felur SSÞ, ólíkt 10. gr. Stofnskrár Þjóðabandalagsins, ekki í sér beina skyldu aðildarríkja til að grípa til aðgerða gegn ríkjum er beita ólög- mætu vopnavaldi heldur er það háð pólitísku mati. Mætti segja að regluverk SÞ hámarki aðstöðu Bandaríkjanna til að geta haft áhrif á önnur ríki en lágmarkar að sama skapi skyldur þeirra og að önnur ríki geti haft áhrif á þau. Þótt færa megi fyrir því rök að framangreint fyrirkomulag í Sátt- mála SÞ hafi í megindráttum virkað sæmilega eru engu að síður á því brotalamir í framkvæmd og enn er það svo að ríki beita á stund- um vopnavaldi án þess að fyllileg stoð virðist vera fyrir þeim að- gerðum í sáttmálanum. Bandaríkin koma þar nokkuð oft við sögu 74 Shirley V. Scott: International Law, US Power – The United States Quest for Legal Security, bls. 12 og 107. 75 Nefnist formlega General Treaty for Renunciation of War as an Instrument of National Policy frá 27. ágúst 1928. Shirley V. Scott: International Law, US Power – The United States Quest for Legal Security, bls. 109-113. 76 Shirley V. Scott: International Law, US Power – The United States Quest for Legal Security, bls. 92-94. 77 Þetta fyrirkomulag er m.a. útskýrt nánar í Pétur Dam Leifsson: „Öryggisráð Samein- uðu þjóðanna og réttur ríkja til að beita vopnavaldi samkvæmt reglum þjóðaréttarins“. Í ritinu Lögberg – rit Lagastofnunar Háskóla Íslands, Reykjavík 2003, bls. 581-614. 78 Shirley V. Scott: International Law, US Power – The United States Quest for Legal Security, bls. 123.

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.