Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2013, Page 28

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2013, Page 28
374 sem lýst er í 53. og 64. gr.101 Bandaríkin hafa á hinn bóginn stutt dyggilega við ýmis regluverk þjóðaréttar sem þykja falla að hags- munum þeirra, sbr. bann við hvalveiðum í atvinnuskyni og það að banna eða draga úr notkun ósoneyðandi efna.102 Þá má geta þess að í kjölfar þess að Menningarmálastofnum SÞ (UNESCO) samþykkti aðild Palestínu sem ríkis tilkynntu Bandaríkin að þau myndu hætta að greiða framlag til stofnunarinnar sem fram til þess hafði verið umtalsvert.103 5. NIÐURSTÖÐUR Sé leitast við að horfa yfir sviðið og draga ályktanir blasir við að Bandaríkin hafa lengstum reynt að hafa virk áhrif á flest helstu regluverk þjóðaréttar á sama tíma og þau virðast þó gera sitt ítrasta til að takmarka áhrif slíkra samninga og stofnana á eigin hagsmuni. Þegar staða Bandaríkjanna hefur verið sterk, eins og við lok síðari heimsstyrjaldar, hefur þeim tekist vel að koma þessum markmiðum sínum til leiðar en nú virðist bera æ meira á árekstrum Bandaríkj- anna við ýmis regluverk af meiði þjóðaréttar. Bandaríkin eru almennt mjög upptekin af sérstöðu sinni í sam- félagi þjóðanna sem jafnvel gengur stundum svo langt að því er blákalt haldið fram að þau eigi í reynd annars konar réttindi og beri annars konar skyldur en ríki almennt. Ólíkt því sem t.d. virðist nú vera viðtekin nálgun í Evrópu þá virðast Bandaríkjamenn oft og tíðum fremur líta á þjóðarétt sem einhvers konar utanaðkomandi réttarkerfi sem þurfi þá eftir atvikum að verjast gegn þegar þau gildi sem þar eru borin á borð kunna að ógna bandarískum hagsmunum. Það tæki sem Bandaríkin nota þá einkum til varnar er þeirra eigin landsréttur og stjórnskipan sem virðist einkum skilgreina almenn- an þjóðarétt sem einhvers konar hluta af því víðtækara regluverki sem lýtur að alþjóðasamskiptum Bandaríkjanna almennt. Þótt Bandaríkin fari sér almennt hægt við að takast á hendur skuldbindingar að þjóðarétti þá virðast þau engu að síður oftar en ekki vilja taka mjög virkan þátt í því að móta bæði þjóðréttarsamn- inga og alþjóðastofnanir sem þau verða síðan jafnvel sjálf ekki að- ilar að. Virðist þetta endurspegla það viðhorf að þjóðaréttur, samn- ingar og alþjóðastofnanir séu þá fyrst og fremst nokkurs konar tæki til að vinna að markmiðum Bandaríkjanna en með þessu móti geta þau vissulega haft áhrif á önnur ríki á sama tíma og komið er í veg fyrir að önnur ríki geti haft áhrif á stöðu Bandaríkjanna. Þannig 101 John F. Murphy: The United States and the Rule of Law in International Affairs, bls. 20-21. 102 Shirley V. Scott: International Law, US Power – The United States Quest for Legal Security, bls. 43, 138 og 154. 103 Sean D. Murphy: Principles of International Law, bls. 227.

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.